Sagnir - 01.04.1989, Page 9

Sagnir - 01.04.1989, Page 9
Mér verður hússins dæmi... hugsunarhætti, verður því að skóla- bókardæmi um það, hvernig þessi angi vistfræðinnar, sem felst í línu- dansinum milli trúmennsku við „arf feðranna“ og heimanmund framtíðar- innar getur þróast. Þegar loks eru til peningar, er allri stöðnun lýst stríði á hendur og í ákafa hafist handa um uppbyggingu og þá kannski ekki alltaf af fyrirhyggju. Það vill gleym- ast að smekkur einnar kynslóðar þarf ekki endilega að vera rétthærri en annarrar, vegna þess að hún er nýrri. Sú þjóð gæti vaknað upp við þau gömlu sannindi, sem íslenskur málsháttur fræðir okkur um: Hægra er að breyta en bæta. Einhver slík tilfinning hlýtur að hafa legið að baki, þegar sett voru lög um húsafriðun á íslandi árið 1969. Við skulum skoða þau nánar. Húsafriðunarlög2 - Húsafriðunarsjóður Eriðun húsa og annarra mannvirkja á Islandi var leyfð með þjóðminja- lögum, sem samþykkt voru á Alþingi '9. maí 1969. Lög þessi voru ýtarleg °g náðu yfir allar greinar þjóðminja- vörslunnar, sem þá þóttu tilhlýðileg- ar- Tóku þau við af lögum um vernd- un fornminja sem konungur undir- ritaði 1907 og lögum um byggða- söfn og viðhald fornra mannvirkja frá 1947. Lögin voru í sex köflum, sem fjölluðu um Þjóðminjasafn •slands, fornminjar, kirkjugripi og minningarmörk, friðun húsa og aunarra mannvirkja, byggðasöfn, og 'oks um almenn ákvæði. Kaflinn um húsafriðun var algert nýmæli í ís- lenskum lögum, en hliðstæð lög höfðu um langt árabil gilt í nálæg- um löndum, til dæmis höfðu sam- baerileg lög verið í gildi í Bretlandi frá 1944 * í hinum íslensku lögum var gert ráð fyrir skipan sérstakrar húsafriðunarnefndar, sem skyldi §era tillögur til menntamálaráð- herra um friðun tiltekinna húsa og mannvirkja, bœði í opinberri eigu °S í einkaeign. Var friðunin tvíþætt, ar*nars vegar alfriðun, þar sem í en§u mátti breyta hinu friðaða húsi eða mannvirki, þ.e. friðun í A-flokki, hins vegar friðun á ytra borði eða til- 'eknum hluta hússins, svonefnd friðun í B-flokki. Samkvæmt lögun- um er það menntamálaráðherra sem ákveður friðun að fengnum til- lögum húsafriðunarnefndar og við- komandi sveitarstjórnar. Ennfremur er sveitarstjórn heimilt að ákveða friðun að fengnum tillögum húsa- friðunarnefndar. Þáverandi þjóðminjavörður, Krist- ján Eldjárn, taldi kaflann um húsa- friðun vera bráðþarfan, enda húsa- friðun eitt brýnasta verkefnið í þjóðminjavernd næstu áratuga.4 Sex árum síðar, eða í maí 1975, voru samþykkt lög um breytingu á þjóðminjalögunum, þar sem kveðið var á um sérstakan húsafriðunar- sjóð. Tekjur sjóðsins voru ákveðnar árlegt framlag ríkis og sveitarfélaga, og skyldi húsafriðunarnefnd ákveða styrki úr honum til viðhalds og endurbóta mannvirkja, sem að dómi nefndarinnar hafa menningar- sögulegt gildi.5 Þessar lagasetningar og afskipti opinberra aðila áttu sér langan að- draganda, og verður nú rakinn gangur þessara mála. Ahugi á húsafriðun vaknar Hörður Ágústsson skrifar grein í Birting 1962, sem hann nefnir „Af minnisblöðum málara" og segir svo í upphafi:6 Of mörgum íslendingi uirðist óljóst, að menningararfur þjóðar- innar er fjölþættari en almennt er talið. Vissulega ber þar bók- menntirnar hœst. En því má ekki gleyma, að uið höfum einnig á öðrum suiðum skapað uerðmœti, sem ástœðulaust er um að þegja, huað þá sýna fullkomið kœru- leysi. Þeirra á meðal er húsagerð og híbýlakostur margs konar... Sannleikurinn er sá, að íslending- ar hafa ekki enn gert sér Ijóst - huort sem það stafar af kœruleysi eða skilningsskorti - að framlag þeirra til byggingarlistar er að vissu leyti ekki ómerkara en ým- issa stœrri þjóða, þegar að- stœðna allra er gœtt. SAGNIR 7
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Sagnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.