Sagnir - 01.04.1989, Page 75

Sagnir - 01.04.1989, Page 75
Konan: „góð guðsgjöf til síns brúks' skóla í Húnavatnssýslu og búnaðar- skóla á Hólum og þar segir greinar- höfundur: Það er mál til komið að fara að hugsa um menntun kvennfólks- ins, svo það geti betur gegnt lífs- köllun sinni á eptir sem húsmæð- ur og lagt fyrsta grundvöll til menntunar barna sinna.8 I ljósi þessa er ekki undarlegt, að þegar Sighvatur Árnason, bóndi og alþingismaður af Suðurlandi, leggur fram frumvarp um rétt kvenna til menntunar árið 1885, að þingmenn reyni að tína til ýmis mótrök. Kon- um eiga að nægja kvennaskólarnir. Frumvarp þetta er „meinlaust" eins og frummælandi kemst að orði. Það veitir aðeins takmörkuð réttindi til skólagöngu og prófa og ekki rétt til embætta. Þingmenn virtust hafa lít- •nn áhuga á að fjalla um þetta mál og eyddu tímanum í að tala um nauðsyn þess að lagfæra fjárforræði giftra kvenna og töldu þakkarvert ef einhver kæmi með slíkt frumvarp. Umræður um frumvarp Sighvats voru yfirleitt á þá leið að það væri óþarft, á undan þörfum tímans og því engin ástæða til að ræða það frekar og þingmenn ganga meira að segja svo langt að segja að óþarfi sé að eyða hinum dýrmæta tíma þings- ins í að ræða jafn óþarft frumvarp.9 Algengt var að rök þingmanna miðuðu að því að seinka framgangi frumvarpa um jafnrétti kynjanna og eitt besta dæmið um það er frá 1891 begar fjallað var um rétt kvenna til menntunar og embætta. Þá steig Lárus E. Sveinbjörnsson í pontu og sfakk upp á að málið yrði sett í nefnd sökum þess að: Ytarlegri ákvæði vanti í frumvarp- ið, t.a.m. þegar svo er komið, að landshöfðingi og biskup eru orð- in hjón, stipsyfirvöldin maður og kona, forseti er kvongaður l.ass- essor landsyfirdómsins, og sýslu- maður og héraðslæknir sömu- ieiðis, o.s.frv.10 Farið var að tillögu Lárusar, en ekki tókst betur til en svo að málið óagaði uppi í nefndinni. Þau urðu reyndar örlög margra frumvarpa um jafnrétti kynjanna kringum aldamót- in. Hér hefur það gerst sem sumir karlar óttuðust svo mjög, konan hefur náð yfirhöndinni og karlinn umhuerfist i kuenhlutuerkið, þjakaður af lífstykkinu alrœmda. „Ómerkileg smámál“ Ein aðalrök þingmanna og and- stæðinga jafnréttis á árunum 1880- 1915, voru þau að konur hefðu ekki beðið um aukin réttindi sjálfar. Þannig var t.d. á Alþingi 1893 er Klemens Jónsson mælti gegn frum- varpi um kjörgengi kvenna til sveita- og safnaðarstjórna. Hann segir: Mjer er ekki kunnugt, að almenn- ur áhugi á þessu máli hafi komið fram á þingmálafundum víðsveg- ar um land allt ... Hjer heyrast engar raddir í þá átt að fá aukin rjettindi kvenna, frá þeirri hlið, sem það ætti að koma, nefnilega frá kvennfólkinu sjálfu.11 Skúli Thoroddsen, flutningsmaður frumvarpsins, mótmælir fullyrðing- um Klemensar og nefnir Þingvalla- fundinn 1888, þar sem fram komu áskoranir frá konum í Þingeyjar- og ísafjarðarsýslum um aukin rétt kvenna.12 Að auki má geta þess að á þingmálafundum í Þingeyjarsýslu voru samþykktar áskoranir til Al- þingis um aukin réttindi kvenna árin 1889 og 1891.13 Hið sama gerðist á þingmálafundum í ísafjarðarsýslu og nágrenni árin 1887 og 1891.14 Rök Klemensar eru því út í hött. Hann lætur sér samt ekki segjast og telur samþykkt Þingvallafundarins ekki sýna almennan þjóðarvilja. Annars eru menn við sama heygarðs- hornið í þessum umræðum og tala um kjörgengismálið sem „ómerki- legt smámál" og að ekki eigi að „hrúga inn á þingið óþarfamál- Konur og kýr Árið 1911 er mikilvægt fyrir sögu kvenréttinda á íslandi, en þá var samþykkt á Alþingi frumvarp sem veitti konum rétt til hverrar þeirrar menntunar sem þær æsktu og sömuleiðis réttindi til allra embætta á sömu forsendum og karlar. Þessi mikli sigur íslenskra kvenna er nánast einsdæmi í sögu kvennabaráttunnar. Til dæmis má geta þess að norskar konur fengu ekki fullan rétt til embætta fyrr en árið 1938 og var þá reyndar prests- embættið undanskilið. Rétt til að sinna því fengu þær norsku ekki fyrr en 1958.16 Það var Hannes Hafstein sem flutti frumvarpið að undirlagi Bríetar Bjarnhéðinsdóttur.17 í flutnings- ræðu Hannesar kemur fram að hann telur sjálfsagt að veita konum þessi réttindi. Jafnframt er augljóst að hann álítur að körlum stafi engin ógn af auknum réttindum kvenna því að þær muni eftir sem áður sinna heimilisstörfum eða eins og SAGNIR 73
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Sagnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.