Sagnir - 01.04.1989, Side 89

Sagnir - 01.04.1989, Side 89
Gaddavírsgirðingar Réttardagur i Borgarrétt í Eyjafirði árið 1938. Ekki er uitað með uissu huenœr réttin uar gerð, en líklega hefur það uerið snemma á 19. öld eða jafnuel fyrr. Kletturinn hefur uafalaust ráðið miklu um ual réttarstæðis þar sem hann sparar mönnum mikla uinnu uið byggingu og uiðhald hennar. kvæmd laganna. Ymislegt fleira þótti athugavert við lögin. Til dæmis þótti lánstím- inn of langur. Eðlilegra væri að miða við þann tíma sem girðingarn- ar muni endast, 15-18 ár, og þá losni menn við að greiða af láninu löngu eftir að girðingarnar séu ónýt- ar. Mönnum var heldur ekki ljóst hvað gerðist þegar girðingarnar væru ónýtar. Á landssjóður þá að leggja út nýja upphæð fyrir girðing- um? var spurning sem heyrðist. Úr vörn í sókn Skoðanir Guðjóns Guðmundssonar virðast vera nokkuð dæmigerðar fyr- ir álit margra á gaddavírslögunum. Með þeim sé verið að bjóða ónytj- ungum og ráðleysingjum takmarkalítið og mjög illa trygt lán, til þess að girða tún sitt með út- lendu og lítt þekktu girðingaefni, og jafnframt séð um að enginn eyrir af þessu mikla fé... lendi hjá innlendum mönnum, heldur alt í vasa útlendra verksmiðjueigenda og auðmanna. Atorkumaðurinn aftur á móti, sem vill girða tún sitt með grjóti eða öðru góðu inn- lendu efni, fær enga hjálp til þess, enda þótt nóg og gott grjót sé alveg við hendina.21 Fleirum þótti nóg um eyðsluna og sveið að sjá á eftir svo miklum pen- ■ngum út úr landinu; nær hefði verið að veita lánum til allra girðingarteg- unda, því girðingaraðstæður séu mismunandi." Innflutningur á girð- ingarefni var í andstöðu við sjálfs- þurftarhugsunarháttinn, sem taldi Srjót og torf efni sem fólk ætti að nota, þar sem það kostaði ekkert. Þegar þau sjónarmið, sem fram hafa komið, eru skoðuð þarf ekki að koma á óvart þótt frumvarpið hafi breyst í meðförum Alþingis. En for- vitnilegt er að athuga hvaða þing- nienn voru meðmæltir girðingar- iögunum og hverjir ekki. Afstaðan ^empr glöggt fram í viðhorfum Þeirra til landbúnaðar og sjávarút- Vegs. Formælendur gaddavírsins sögðu að sjávarútvegurinn tæki fólk frá landbúnaðinum í góðærum en skilaði því svo á sveitina þegar svik- nli sjávarafli brygðist. Nú verði land- búnaðurinn að snúa vörn í sókn og girðingarframkvæmdirnar voru hluti af þeirri sókn. Þessir þingmenn voru á sömu skoðun og Guðjón Guðlaugs- son: menning þjóðarinnar og hagsæld byggist á engu fremur, en á nýti- legum landbúnaði; eyðileggist hann, þá mun skamt að bíða eyðileggingar landsins sjálfs; verði land vort einungis fiskiver, þá gef eg ekki mikið fyrir framtíð þess.23 Ekki þarf að koma á óvart að þeir þingmenn sem mæltu á þessa leið voru flestir kjördæmakjörnir fyrir landbúnaðarhéruð og jafnframt bændur. Þegar það er haft í huga er ekki að undra þótt þeim væri mikið í mun að rétta landbúnaðinum hjálpar- hönd. Þeim þingmönnum sem voru á móti gaddavírslögunum fannst óréttlátt að veita svo miklum fjár- munum til einnar atvinnugreinar. Kristján Jónsson sagði að landbún- aðurinn væri ekki lengur þýðingar- mestur heldur hefði sjávarútvegur og iðnaður bæst í hópinn. Þessir þingmenn voru flestir annaðhvort konungkjörnir, stunduðu embættis- störf og bjuggu í Reykjavík eða þjóð- kjörnir fyrir staði þar sem sjávarút- vegur skipti meira máli en landbún- aður. Því er eðlilegt að þeir hafi ekki viljað veita peningum í atvinnugrein sem þeir töldu sig hafa lítilla hags- muna af að gæta. Framkvæmd laganna Eftir 1904 þagna þær raddir sem töldu gaddavírinn hættulegan, enda var komin nokkur reynsla á hann og flestir sammála um nytsemi hans. Ekki var lengur minnst á að heppi- legra væri að girða með torfi og grjóti og verður ekki annað séð en almennt hafi verið viðurkennt að gaddavír væri framtíðargirðingar- efni. Deilur almennings í blöðum og tímaritum hljóðna með öllu og þingmenn deila nú eingöngu um framkvæmd laganna og þann kostn- að sem þeim sé samfara. En þegar farið var að framfylgja lögunum frá 1903 kom í ljós að þau hafa ekki verið nægilega vel kynnt, að minnsta kosti var mönnum sem sóttu um lán hafnað, bæði af því að fyrirframgreiðslu vantaði hjá sumum, en hjá flestum voru skýrslur skoðunar- manna það ófullkomnar að ekki var SAGNIR 87
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Sagnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.