Sagnir - 01.04.1989, Side 91

Sagnir - 01.04.1989, Side 91
Gaddavírsgirðingar 12. grein gaddavírslaganna frá 1903 hljóðar svo: Fari ferðamaður um hlið á girðingu, er hann skyldur að loka því á eptir sjer; vanræki hann það, varðar það 2-10 kr. sekt auk skaðabóta. Vísvitandi skemmdir á girðingu varða 5-50 kr. sekt auk skaðabóta. Sektir þessar renna að hálfu til uppljóstrarmanns og að hálfu til sveitar- sjóðs þar sem brotið er framið.1 Þessi lagagrein hefur ef til vill verið tilefni leiksins sem Halldór Laxness lýsir í Brekkukotsannái. „Þetta gerðist um þær mundir, eigi alllaungu eftir Búastríðið, sem gaddavírsöld var að hefjast á íslandi. Þessi sérstaki varníngur, sem er í flestum löndum lögbannaður nema til hernaðarþarfa, enda sagður uppfundinn í Búastríðinu, hefur orðið íslendíngum meiri friðstillir en önnur vara útlend sem menn kunna að nefna; og þar sem í öðrum löndum eru hörð viðurlög við því ef menn festa upp slíkt óféti á víða- vángi á friðartímum, þá varð gaddavír næst á eftir brennivíni og sem- enti einhver girnilegasta munaðarvara íslendínga um skeið. Um fátt hefur þjóðin sameinast eins innilega og að streingja þennan dýrðar- varníng útum öll foldarból, yfir holt og hæðir, mýrar og móa, uppí fjallsupsir, útá ystu sjávarhamra. í fyrstu höfðu margir þann sið sem búar höfðu gegn einglendíngum, að fara yfir gaddavír hvar sem þeir komu að honum, en þá voru sett lög á Alþíngi um friðhelgi gaddavírs á íslandi. Þessi lög voru í nokkrum sveitum og kaupstöðum gerð enn víðtækari með sérstökum staðbundnum reglugerðum, þarámeðal hjá okkur í höfuðstaðnum. Þar var sett sú reglugerð um gaddavír, að hverjum manni sem staðinn væri að yfirstöplun slíkra heilagra vé- banda skyldi gert að greiða tíu krónur í sekt. í þann tíð var veturgam- all sauður virtur á tíu krónur. ... Nú sem við erum þar staddir bakvið leiti, þá veltur sá fróðleikur uppúr einum í hópnum, að hver maður sem fari yfir girðíngu af þessu tagi verði sekur um tíu krónur. Okkur kom fljótlega saman um að gaman væri að taka sér fyrir hendur heljar- stökk sem svo hátt væri metið til fjár. Meðþví nú glæpur þessi bar í sér alla þá lokkun sem fylgir fjárglæfrum, tókum við okkur til allir saman og fórum að hoppa yfir gaddavír. Ég vil ekki segja að þetta verk hafi verið unnið með öllu hjartsláttarlaust, enda höfðum við einn mann á gagnnjósn um það hvort njósnarar væru nær. En svo fór sem okkur hafði reyndar grunað, einginn tók eftir því ódæði sem við vorum að fremja, og við vorum ekki sektaðir. Slík réttmæt fjársekt, sem við vorum ekki krafðir um, var fundið fé. Þarna hafði nú sérhver okkar grætt sem svarar veturgömlum sauð þegar í fyrstu lotu. Svo það var ekki furða þó við reyndum aftur."2 1 Lög nr. 64 19. des. 1903 Stjórnartíðindi tyrir ísland 1903, 330. 2 Halldór Kiljan Laxness: Brekkukotsannáll, Rv. 1977, 45-46. Að lokum Athyglisvert er hversu skammt hræðslan við gaddavírinn entist. Eft- ir 1904 minnist enginn á skaðsemi hans, enda hætta blaða- og tímarits- greinar að birtast um málið, sem bendir til að menn hafi almennt viðurkennt að gaddavírinn væri framtíðargirðingarefni. Á Alþingi er heldur ekki framar deilt um skað- semi vírsins heldur um framkvæmd laganna og hverjir eigi að greiða þann kostnað sem lögunum fylgi. í þeim umræðum halda menn áfram að skiptast í tvö horn eftir hagsmun- um. Á Alþingi 1909 og 1913 eru fáir þingmenn á móti lánveitingum til túngirðinga og er því óhætt að segja að gaddavírinn, hér sem annars- staðar, hafi unnið fullan sigur. Tilvísanir 1 Guðjón Guðmundsson: „Lög um tún- girðingar eða „Gaddavírslögin"." Freyr. Mánaðarrit um landbúnað, þjóðhagsfræði og uerzlun, Rv. 1904, 27. 2 The Encyclopedia Americana vol. 3, Connecticut 1986, 224. 3 Gann L.H.: Colonialism in Africa 1870-1960 vol. 1, Cambridge 1969, 348. 4 Árni Jónsson: „Girðingar." Búfræð- ingurinn. Ársrit Huanneyrings og Hól- amannafélags, Hvanneyri 1951, 7. 5 Alþingistíðindi 1901 C, Rv. 1901, 546. 6 Alþingistíðindi 1901 C, brt. 505, 658. 7 Alþingistíðindi 1901 B, 684. 8 Alþingistíðindi 1901 B, 686. 9 Alþingistíðindi 1901 B, 687. 10 „Andmæli. „Meiri gaddavír."" Fjall- konan. Bœndablað Verzlunarblað 20. okt. 1903, 162. U Alþingistíðindi 1903 A, Rv. 1903, 607-609. 12 Alþingistíðindi 1901 C, 707-708. — Alþingistíðindi 1901 A, 299-301. 13 Alþingistíðindi 1903 C, 254-256. Til samanburðar má nefna að árið 1904 kostaði saumavél á bilinu 35-45 krónur. Landhagskýrslur fyrir ísland 1904, Rv. 1904-5. 14 Alþingistíðindi 1903 A, 621. '5 Lög nr. 64 19. des. 1903. Stjórnartíð- indi fyrir ísland 1903, Rv. 1903,326. 16 Ari Brynjúlfsson: „Fáein orð um tún- girðingar." Austri 2. apríl 1904, 37. '7 Alþingistíðindi 1903 A, 618. 18 Alþingistíðindi 1903 A, 1025. 19 Stjórnartíðindi fyrir ísland 1903, 326-332. 20 Stefán Bergsson: „Túngirðingarlög síðasta þings." Gjallarhorn 15. janú- ar 1904, 10-11. 21 Guðjón Guðmundsson: „Lög um tún- girðingar eða „Gaddavírslögin"", 27. 22 „Túngirðingarmálið." Fjallkonan... 18. ágúst 1903, 130. 23 Alþingistíðindi 1903 A, 606. 24 Alþingistíðindi 1905 A, Rv. 1905, 296. 25 Alþingistíðindi 1905 A, 296. 26 Lög nr. 22 20. okt. 1905. Stjórnartíð- indi fyrirísland 1905, Rv. 1905, 167. 27 Lög nr. 62 22. nóv. 1907. Stjórnartíð- indi fyrirísland 1907, Rv. 1907,422. 28 Alþingistíðindi 1907 A, Rv. 1907, 403. 29 Lög nr. 52 30. júlí 1909. Stjórnartíð- indi fyrir ísland 1909, Rv. 1909, 266. 30 Lög nr. 64 19. des. 1913. Stjórnartíð- indi fyrir ísland 1913, Rv. 1913, 326- 332. 31 Lög nr. 24 1. febr. 1952. Stjórnartíð- indi 1952, A. Rv. 1952, 44-48. SAGNIR 89
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Sagnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.