Sagnir - 01.04.1989, Síða 101

Sagnir - 01.04.1989, Síða 101
Ungbörn þjáð af þorsta ung á annars konar fæðu.9 En meira að segja við ríkulega kúamjólkurgjöf var ungbarnadauðinn miklu meiri en meðal brjóstabarna. Um það liggja fyrir hvað gleggstar upplýsing- ar frá Prússlandi. Jafnvel eftir alda- mót, þegar ungbarnadauði var þó almennt farinn að minnka frá því sem var á 19. öld, var hann tvöfalt eða þrefalt meiri hjá pelabörnum en brjóstabörnum, og gildir það bæði í borgum og dreifbýli og nærri jafnt hjá fátæku fólki sem betur stæðu.10 Þarna er sem sagt eitthvað stórlega athugavert við kúamjólkina, þótt það hafi lítt komið að sök við breytt- ar aðstæður síðar á öldinni. Dagný tekur saman11 sex kosti brjóstamjólkur fram yfir kúamjólk, raunar miðað við nútímaaðstæður. Fyrsta atriðið, lægra hvítuinni- haid brjóstamjólkur og ólík hlutföll eggjahvítuefna, er við okkar að- stæður talin meginröksemdin gegn því að gefa ungbörnum óþynnta kúamjólk. í henni er tvöfalt til þre- falt meira af hvítu, þar af meirihlut- ■nn ostefni (kasín), en í móður- rnjólk er miklu minna af því. Kúa- mjólkin myndar í maga barnsins stífan drafla, sem meltist treglega °g getur valdið magablæðingum. (Efnahvatar, sem þola ekki geril- sneyðingu, hafa þó gert mjólkina í gamla daga betur meltanlega að þessu leyti en samsölumjólk nútím- ans.) Til að ráða bót á þessu er nægilegt að þynna kúamjólkina, svo að heildarmagn hvítu verði hæfi- legt; þá kemur hátt hlutfall ostefnis lítt að sök.12 En það tíðkaðist ein- mitt ekki í gamla daga að þynna mjólkina. Annan megingalla kúamjólkur- innar sem ungbarnafæðis nefnir Dagný hins vegar ekki. Hún er of sölt, nalríummagnið ríflega þrefalt á við brjóstamjólk.13 Þessa umfram- seltu þurfa börnin að losa sig við í þvaginu, sem hefur mælst nærri fjórum sinnum saltara úr pelabörn- um en brjóstabörnum.14 Þau þurfa líka að losna við gegnum nýrun þvagefnið, sem myndast við að brenna hvítu, og það verður miklu meira af hinni hvíturíku kúamjólk en af móðurmjólkinni. Af þessum tvennum sökum þarf pelabarn á óþynntri kúamjólk ferfalt meira vatn til þvagmyndunar en brjóstabarn getur komist af með.15 Börn eru viðkvæmust fyrir seltu fyrstu dagana, meðan nýru þeirra eru enn ekkí fullvirk. Þess vegna gat það skipt miklu máli hvort börn voru lögð á brjóst í fáeina daga, eins og virðist hafa tíðkast fram yfir 1750, eða alin á óþynntri kúamjólk frá fyrsta degi, eins og orðin var regla um 1800.16 Eftir fyrstu dagana eða vikuna eiga nýru barnsins að geta losað það vandræðalaust við salt og þvag- efni, sem kúamjólkinni fylgja, aðeins ef barnið skortir ekki vatn til þvag- myndunar. En út af því getur brugð- ið og ástæða er til að ætla að það hafi einmitt verið algengt á íslandi fyrr á tíð, og raunar í öðrum vest- rænum löndum allt fram á þessa öld. Ungbörn hafi iðulega þjáðst af vökvaskorti, annað hvort vegna skertrar vökvatekju eða aukins vökva- taps, og því illa mátt við því aukna vökvatapi um nýrun sem því fylgir að nærast á kúamjólk í stað móður- mjólkurinnar. Vegna „skertrar vökvatekju", sagði ég. Nú er mjólkin að mestu vatn, jafnt móðurmjólk sem kúamjólk, en hvað drekka ungbörn mikið af henni? Fái þau sjálf að ráða, fer það aðallega eftir orkuþörf þeirra; þau drekka sig södd og lítið umfram það. Orkugildi kúamjólkur er mjög áþekkt brjóstamjólk, þannig að barn ætti að hafa lyst á svipuðu magni af hvorri sem er (jafnvel taka við þeim mun meira af kúamjólkinni sem sum næringarefni hennar meltast verr). En formæður okkar áttu víst til að gefa ungbörnum feitari mjólk en venjulega kúamjólk. Kannski var haldið til þeirra eftirhreytunum, því sem síðast er mjólkað úr kúnni, en það er feitasta mjólkin. Eða barns- mjólkin jafnvel blönduð rjóma.1' Þá varð mjólkin saðsamari, barnið drakk minna og fékk minni vökva. Á sama hátt drekka börn minna fái þau aðra næringu með mjólk- inni. Það getur átt við um dúsu- fæðið, sem Dagný drepur á, þar sem matur var tugginn í léreftsrýju, og börnin látin totta. Dúsan gat a.m.k. skilað drjúgri næringu ef smjöri var bætt við tugguna eða fisk- lifur.18 Þannig gátu íslensku börnin á fyrri tíð búið við skerta vökvatekju á sama hátt og þau börn sem nú fá of sterka blöndu af þurrmjólk af því að ekki er fylgt nákvæmlega leiðbein- ingum framleiðandans.19 Þetta ætti þó ekki að koma svo mjög að sök nema við bætist aukið vökvatap, en þar eru aðalhætturnar tvær. Önnur sú, að barnið tapi miklu vatni um húð (með svita) og SAGNIR 99
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132

x

Sagnir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.