Sagnir - 01.04.1989, Side 108

Sagnir - 01.04.1989, Side 108
Magnús Hauksson að loka bænum, loka fyrir símann og loka fyrir útvarpið, þannig að íbúar úti um land fréttu ekkert af því sem var að gerast í höfuðstaðnum þar til rödd Helga Hjörvars heyrðist í útvarpinu þegar það var opnað á ný. Vitaskuld gefur það þáttum sem fjalla um söguleg efni aukið gildi að geta notað upptökur af þessu tagi.“ Hljóðbandaefni, og auðvitað ekki síður myndefni, hefur þanníg í sér þætti sem ritheimildir geta ekki miðlað. Þetta gerir að verkum að auk þess sem þetta efni hefur ótví- rætt heimildagildi lífgar það upp á dagskrána og gerir hana áhugaverðari og áheyrilegri, og vonandi skemmti- legri. „Hlustendur komast í mun nánari tengsl við hið sögulega efni sem verið er að flytja þegar persón- ur fortíðarinnar eru leiddar fram ljóslifandi. Slíkt er afar mikilvægt og þar kemur gildi útvarpsins ótvírætt fram," segir Eggert. Og hann heldur áfram: „Talsverður munur er t.d. á því að leiða saman Einar Olgeirsson og Stefán Jóhann Stefánsson í hita baráttunnar, þegar sá síðarnefndi leiddi ríkisstjórn sem hinn fyrrnefndi gagnrýndi óspart, frekar en að lesa upp úr Alþingistíðindum það sem þeir voru að segja. Og ef við fáum einnig tónlist frá sama tíma, jafnvel flutta af samtímahljómsveitum eða -söngvurum nálgumst við tíðaranda tímabilsins enn betur." En það getur verið dálítið fyrir- hafnarsamt að nota heimildir á hljóðböndum. Oft þarf að hlusta á heilu þættina frá upphafi til enda tii að finna það sem leitað er að. Að þessu leyti eru ritheimildir þægi- legri því fljótlegt er að renna augum yfir grein eða heila bók til að ganga úr skugga um hvort eitthvað nýtist manni. Þetta var einmitt reynsla Heimildarmenn Eggert Þór Bernharðsson, sagnfræðingur. Elín Kristinsdóttir, deildarstjóri safna- deildar Ríkisútvarpsins. Gunnhildur Björnsdóttir, filmusafni sjónyarpsins. Jóhanna Hafliðadóttir, aðstoðarfrétta- Eggerts Þórs: „Sá sem hefur tak- markaðan tíma getur varla leyft sér að hlusta á gamalt útvarpsefni klukkustundum saman dag eftir dag. Viti maður hins vegar nákvæm- lega að hverju maður er að leita er þetta yfirleitt lítið vandamál. Oftar en ekki er þó nauðsynlegt að sitja við segulbandið langtímum saman til þess að finna eitthvað bitastætt og þegar upp er staðið getur upp- skeran í krónum talið, laun dag- skrárgerðarmannsins, stundum ver- ið æði rýr, ef við lítum á þá hlið mála. í samanburði við þá vinnu sem fer í leit að efni á hljóðböndum er ritun eigin texta og flutningur hans fremur fyrirhafnarlítí11. Býsna langur tími fór nefnilega oft í það að hlusta á efni sem kom síðan að litl- um eða engum noturn." Þar eð spjaldskrárnar gefa tiltölu lega litlar upplýsingar um efni þátta verður leitin enn fyrirhafnarsamari og Eggert telur flokkunina í þeim skrám sem hann þurfti að nota á sfnum tíma „frekar óhagstæða" sagnfræðingum. „Auðvitað er einn vandinn við spjaldskrárgerðina eða flokkunina í heild fólginn í því að í ýmsum þáttum er minnst á mál sem hefði kannski verið áhugavert að nota, e.t.v. eitthvað örstutt sem var alls ekki meginefni þáttanna. Kannski er drepið á einhver atriði í 5-10 mínútur af klukkustundarlöng- um þætti en slíkt kemur þá yfirleitt ekki fram á spjaldinu. Oft eru þó ítarlegri upplýsingar á blöðum sem fylgja spólunum en til þess að kom- ast yfir þær þarf maður að hafa vit á að biðja um viðkomandi spólur. Vandinn þarna er svipaður og ann- ars staðar. Allir sem flokka efni lenda í erfiðleikum með það hvort sem þeir fást við bækur, blöð, tíma- maður á fréttastofu hljóðvarps. Jón Sigbjörnsson, fyrrverandi deildar stjóri tæknideildar hljóðvarps. Máni Sigurjónsson, starísmaður við segul- bandasafn safnadeildar hljóðvarpsins. rit eða eitthvað annað. En vissulega fylgja því ókostir að hafa ekki góða efnisflokkaða skrá yfir útvarpsefnið. Ef slík skrá væri til gætu sagn- fræðingar án efa nýtt útvarpið mun betur sem miðil og heimildagildi segulbandasafnsins kæmi glögglega í ljós.“ Lokaorð Af því sem nú hefur verið rakið má sjá að lengi vel í sögu útvarpsins var lítið hugsað um að útvarpsefni gæti haft þýðingu fyrir seinni kynslóðir sem sögulegt heimildaefni. En fram- undan er vonandi betri tíð því auð- sjáanlega er skilningur að vaxa á menningarlegu og sögulegu gildi út- varps- og sjónvarpsefnis og þýðingu góðs skipulags á vistun þessa efnis og skráningu. Með tilkomu safna- deildar útvarpsins hafa aðstæður breyst til batnaðar. Ávegum þessar- ar deildar er unnið að samræmdum reglum um grisjun útvarps- og sjón- varpsefnisins. Enn sem komið er, er tölvutæknin fyrst og fremst notuð við ritvinnslu, t.d. á fréttastofu hljóðvarps, en lítið fram undir þetta við skipulagningu og skráningu vist- aðs efnis. Á filmusafninu hafa er- lendar fréttir verið tölvuskráðar í u.þ.b. eitt ár og nýlega var farið að tölvuskrá innlent fréttaefni. í fram- tíðinni hlýtur þessi tækni að koma meir við sögu í sambandi við geymslu, skráningu, efnistöku og leit. Það sem einkum virðist valda erfiðleik- um við að nota gamalt útvarpsefni er að það er ekki nema að mjög tak- mörkuðu leyti efnistekið. Allir hljóta að sjá að það er afar tímafrekt og kostnaðarsamt að efnistaka allt efn- ið sem er vistað. Tilvísanir 1 „Sagnfræði og fjölmiðlun." Sagnir. Tímarit um söguleg efni 9, Rv. 1988, 42—49. 2 Lög um Þjóðskjalasafn íslands, nr. 66 frá 27. júní 1985, Stjórnartíðindi 1985, A, Rv. 1985, 206. 106 SAGNIR
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Sagnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.