Sveitarstjórnarmál - 01.12.2001, Blaðsíða 28
María Karen Sigurðardóttir, forstöðumaður Ljósmyndasafns Reykjavíkur:
Ljósmyndasafn Reykjavíkur
í nýju húsnæði
Ljósmyndasafn Reykjavíkur var opnað í nýjum
og glæstum húsakynnum á 6. hæð í Grófarhúsi,
Tryggvagötu 15, haustið 2000. Það var upphaflega
stofnað sem einkafyrirtæki árið 1981, en Reykja-
víkurborg eignaðist það árið 1987. Ljósmyndasafn
Reykjavíkur er eina sjálfstæða safnið í landinu á
sínu sviði.
Hlutverk Ljósmyndasafns Reykjavíkur er að
safna, skrá og varðveita ljósmyndaefni, svo sem
ljósmyndir, glerplötur, filmur og skyggnur. Nú
þegar á Ljósmyndasafn Reykjavíkur um 1,5 millj-
ónir ljósmynda, auk flölda áhalda, tækja og ýmissa
muna. Safnið tekur við og varðveitir efni frá fyrir-
tækjum, stofnunum og einstaklingum.
Ljósmyndasafnið skapar fræði- og fagfólki að-
stöðu og tækifæri til fjölbreyttra rannsókna á ljós-
myndum og þáttum þeim tengdum. Safnið hefúr
það einnig að markmiði að vekja áhuga almenn-
María Karen Sigurðardóttir
ShJ lauk iiámi i vélsmíði frá
Fjölhraulaskóla I éslurlands
■P..,, 'Bl ' á Akranesi I9SS og lœkni-
slúdentspróji frá stuna
skóla 1991 og B.Sc.-prófi i
i Ær Jórvörslu frá Del Konge-
lige Danske Kuiislakadenii.
B I Konservalorskolen. efiir aó
hafa numið þar 1992-1995.
Lokaverkefni hennar var Jón Kaldal samlingen
paa Islands Nationalmuseum og Reykjaviks Foto-
museum. Hún starfaði á sumrin 1986-1991 m.a.
við vélsmíði hjá Islenska Járnblendifélaginu á
Grundartanga og í Skipasmíðastöð Þorgeirs og
Ellerts hf. Akranesi. Hún var sumarið 1994 i sjálf-
boðavinnu með styrk frá Norrœnu ráðherranefnd-
inni á Borgarskjalasafninu í Tallinn i Eistlandi,
starfaði á Þjóðminjasafni Islands, Landsbóka-
safni-Háskólabókasafni og Byggðasafninu í
Görðum á Akranesi 1995-1996, á Arbœjarsafni
1996-1998, m.a. sem deildarstjóri forvörslu-
deildar. Síðan á Ljósmyndasafni Reykjavíkur og
hefur verið forstöðumaður þess frá árinu 2000.
Hún þýddi og staðfærði ritið: „ Undirbúningur
neyðaráœtlunar fyrir menningarstofnanir “ ásamt
Sigurjóni Baldri Hafsteinssyni. Vinnur nú m.a. að
rannsóknarverkefninu „Rannsókn á varðveisluað-
stœðum og ástandi íslenskra Ijósmyndasafna “, sem
er styrkt af Rannís.
Grófarhús. Ljósm. Sigríður Kristín Birnudóttir.