Sveitarstjórnarmál


Sveitarstjórnarmál - 01.12.2001, Page 37

Sveitarstjórnarmál - 01.12.2001, Page 37
Menningarmál að vefsmiðja þeirra hafi verið. Þeirri rannsókn er enn ekki lokið og gera menn sér vonir um að ljúka rannsókninni á næsta ári. Rekstur Eiríksstaða Eiríksstaðir eru reknir af sveitarfélaginu Dala- byggð enn sem komið er. Ástæða þykir að móta fyrst rekstur Eiríksstaða áður en ákvörðun er tekin um framtíðarrekstrarform. Stjórn Eiríksstaða- nefndar er skipuð Friðjóni Þórðarsyni formanni, séra Óskari Inga Ingasyni ritara, Jóhanni Sæmundssyni svo og oddvita og sveitarstjóra Dalabyggðar. Uppbyggingin á Eiríksstöðum hefur mikla þýðingu fyrir byggðarlagið. Með opnun Eiríksstaða og nýendurgerðs þriggja stjörnu hótels á Laugum hefur orðið áþreifanleg aukning ferðamanna um byggðarlagið. Ekki má gleyma að öll sú uppbygg- ing sem á sér stað í ferðaþjónustu á svæðinu er atvinnuskapandi fyrir héraðið í heild. Kjötsúpa er framreidd við langeld á Eiríksstöðum. Uppbygging menningartengdrar ferðaþjónustu er því vel við hæfi á þessum sögufrægu slóðum og óskandi er að samstaða verði meðal heimamanna um framhaldið í náinni framtíð. Lokaorð Ljóst er að Eiríksstaðir eru aðeins upphafið að menningartengdri ferðaþjónustu í Dalabyggð. Eftir að dyngja kvennanna fannst gera Dalamenn sér vonir um að i náinni framtíð verði dyngjan búin til fyrir neðan bæinn. Hreppsnefnd Dalabyggðar hefur gefið Eiríks- staðanefnd umboð til að vinna að undirbúningi opnunar safns Leifs Eiríkssonar. Safnið verður til húsa í gamla kaupfélagshúsinu niðri við nýju smábátahöfnina í Búðardal. Ásamt því að hýsa Leifssafn þá verða jafnframt landafundum gerð skil með veglegri sýningu ásamt því að sett verður upp héraðssýning. Fyrirhugað er að í sýningarhús- inu verði einnig upplýsingamiðstöð ferðamanna og kaffhús fyrir gesti. Verkefnisstjóri leitast við að vera í góðu samstarfi við skóla og söfn í landsijórðungnum, sem og ann- ars staðar á landinu. Einnig er unnið að því að vera í samstarfi við erlenda aðila eins og Brattahlíð á Grænlandi þar sem Eiríkur rauði og kona hans Þjóðhildur tóku búsetu eftir brotthvarf frá íslandi og við L’Anse aux Meadows á Nýfúndnalandi þar sem norrænar víkingabúðir hafa fundist og verið endurbyggðar. Unnið er að því að fá Eiríksstaði samþykkta inn á heimsminjaskrá Sameinuðu þjóðanna. Dalirnir eru vagga landafundanna og eru fá héruð sem eiga eins marga sögustaði og Dalasýsla. skrifstofuskápar - einfaldlega betri r Minnumá rammasamning okkar við L Ríkiskaup _i 1 *JT BEDCO & MA.THIESEN EHF Bæjarhraun 10 - Sími 565 1000
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.