Sveitarstjórnarmál - 01.12.2001, Blaðsíða 73
Umferðaröryggismál
hennar var ónotaður barnabíl-
stóll. Móðirin sagði að barnið
væri alltaf í stólnum, þetta
væri undantekning því systir
barnsins væri ekki með í
bílnum í dag og þá fékk það
að sitja í hennar sæti.
• Bræður, tveggja og íjögurra
ára, sátu lausir í barnabíl-
stólum. Kona sem ók bílnum
sagði að þeir losuðu sig alltaf
úr beltunum. Hún sagðist ekki
nenna að berjast við þá lengur.
í 18. grein samnings Samein-
uðu þjóðanna sem ísland sam-
þykkti i nóvember 1992 segir
um réttindi barnsins: „Foreldrar
eða lögráðamenn, ef við á, bera
aðalábyrgð á uppeldi barns og
því að barni sé komið til þroska.
Það sem er barninu fyrir bestu
skal vera þeim efst í huga.“
Reynslan sýnir að endurteknar
kannanir á notkun öryggisbún-
aðar barna í bílum vekja foreldra
til ábyrgðar og athafna. Niður-
stöður frá því að fyrsta könnunin
var gerð árið 1996 og nú þegar
sú síðasta var gerð í apríl sl.
sýna að ástandið batnar ár frá
ári. Árið 1996 nutu aðeins um
72% barna þess öryggis sem
fylgir góðum öryggisbúnaði en
92% árið 2001. Takmark okkar
er að öll börn noti réttan örygg-
isbúnað. Foreldrum ber skylda
til að sjá um að börn þeirra séu
vel varin í bíl. Með því uppfylla
þeir þá skyldu að gera það sem
er barninu fyrir bestu eins og
segir í barnasáttmála Sameinuðu
þjóðanna.
Það er von þeirra sem standa
að umferðarkönnuninni að okkur
takist í sameiningu að fækka
slysum á börnum í umferðinni.
Aðstoð heimamanna, það er fé-
laga í Slysavarnafélaginu Lands-
björgu, var ómetanleg, einnig
aðstoð nemenda Kennaraháskól-
ans. Með því að virkja svo
stóran hóp fólks til forvarna í
heimabyggð er meiri von um há-
marksárangur.
HITAVEITA
SUÐURNESJA
HITAVEITA SUÐURNESJA
LEIÐANDI FYRIRTÆKI
í NÝTINGU JARÐVARMA
Hitaveita Suðurnesja er fyrsta orkuveitan í heiminum sem tvinnar saman framleiðslu á heitu vatni
til húshitunar, heitu kranavatni auk framleiðslu á rafmagni.
Þekking byggð á íslensku hugviti og reynslu hefur gert okkur kleift að skipa okkur sess sem leiðandi
fyrirtæki í sölu á ódýrri orku til fyrirtækja og heimila.
Ódýr orka í formi gufu og eða rafmagns, ferskvatn og hreinn sjór úr hraunlögum sem kælimiðill til
hverskyns iðnaðar, mannauður og nægjanlegt auðunnið landrými fyrir hverskyns atvinnustarfsemi
í nálægð alþjóðaflugvallar og góðra hafnarmannvirkja setja Suðurnesin efst á blað hvað kosti varðar
við ákvörðun staðsetningar stóriðju jafnt sem smærri fyrirtækja.
Nýttu þér reynslu okkar og þekkingu og leitaðu upplýsinga.
Hitaveita Suðurnesja • Brekkustig 36 • 260 Reykjanesbæ • Sími 422 5200 • Fax 421 4727 • www.hs.is