Sveitarstjórnarmál

Volume

Sveitarstjórnarmál - 01.12.2001, Page 87

Sveitarstjórnarmál - 01.12.2001, Page 87
Umhverfismál 501 stjóri, Seltjarnarnesi, Jón Ásbjörnsson bæjartækni- fræðingur, Mosfellsbæ, og Guðmundur Benedikts- son sveitarstjórnarmaður, Kjalarnesi. Verkefnisstjórnin réð Verkfræðistofu Guðmundar og Kristjáns og sænska ráðgjafarfyrirtækið VBB til starfa við undirbúninginn. Fyrst var farið í að at- huga hagkvæmni sorpbrennslu með orkunýtingu fyrir höfuðborgarsvæðið og í framhaldi af því at- hugun á urðunarstað svo að greining kosta næði til allra þátta sorpeyðingar. Ljóst var í upphafi að finna yrði nýjan urðunarstað fyrir sorp af höfuð- borgarsvæðinu, því að þeir tveir staðir sem þá voru í notkun, á Hvaleyrarholti og í Gufunesi, myndu ekki endast nema fáein ár í viðbót. Verkefnisstjórnin skilaði áliti sínu og tillögum á árinu 1987 og er þar lagt til að sveitarfélögin stofni hlutafélag um móttöku á sorpi, rekstur á urðunar- stað, framleiðslu og sölu á eldsneyti og orku úr sorpi og vinnslu og sölu á efnum úr sorpi til end- urnýtingar. Niðurstaða sveitarfélaganna átta var að stofna byggðasamlag í samræmi við ákvæði IX. kafla sveitarstjórnarlaga nr. 8/1986 um samvinnu sveitarfélaga við framkvæmd einstakra verkefna. Stofnsamningur um Sorpeyðingu höfuðborgar- svæðisins bs. var undirritaður 15. febrúar 1988. Gott starfsfólk Þórður Þ. Þorbjarnarson var kjörinn fyrsti for- maður stjórnar og gegndi hann formennsku þar til hann lést í október 1992. Hann vann mikið og gott brautryðjendastarf á þessum vettvangi. Björn Árna- son varaformaður tók við og gegndi formennsku út það kjörtímabil. Ingimundur Sigurpálsson, bæjar- stjóri í Garðabæ, var stjórnarformaður kjörtíma- bilið 1994-1998, en þá tók greinarhöfundur við formennsku. í stjórn Sorpu sitja níu menn. Fimm þeirra koma frá Reykjavík, einn frá Kópavogi, einn frá Hafnarfirði og önnur aðildarsveitarfélög kjósa tvo stjórnarmenn til tveggja ára í senn eftir nánara samkomulagi þeirra í millum. Stjórnin skiptir sjálf með sér verkum. Ögmundur Einarsson var ráðinn framkvæmda- stjóri fyrirtækisins strax í upphafi og hefúr stýrt því og mótað af mikilli festu og framsýni öll þessi ár. Sorpa hefúr notið víðtækrar þekkingar hans og reynslu. Hann hefúr lagt mikla áherslu á að efna til samstarfs við aðila erlendis og til dæmis hafa náðst Þórður Þ. Þorbjarnarson, þáverandi borgarverkfræðingur, formaður verkefnisstjórnar og fyrsti formaður stjórnar SORPU. Myndin er tekin við vígslu móttökustöðvar SORPU í Gufunesi 26. apríl 1991. samningar um endurvinnslu í öðrum löndum, sem er harla óvenjulegt. Sorpa er í dag stærsti útflytj- andi héðan til Svíþjóðar í magni talið. Fyrirtækið hefur átt því láni að fagna að hafa góðu starfsfólki á að skipa. Nú starfa tæplega 100 manns hjá fyrirtækinu og hefur um fjórðungur þeirra starfað frá upphafi. Á afmælisárinu var gerður í fyrsta sinn vinnustaðasamningur Sorpu við starfsmenn fyrirtækisins. Sá árangur sem náðst hefur með starfsemi undanfarinna ára og sú stað- reynd að almenningur leitar í auknum mæli til fyr- irtækisins með hvaðeina sem varðar endurvinnslu og sorpförgun segir sína sögu um fyrirtækið og starfsmenn þess. Fræðsla og flokkun úrgangs Þegar litið er til baka og horft til þeirrar þróunar sem orðið hefúr á starfstíma fyrirtækisins er óhætt að segja að góður árangur hafi náðst. í upphafi var lagt af stað af metnaði til að gera betur en áður hafði þekkst og þróa nýjar leiðir. Urðunarstaður var fundinn í Álfsnesi í landi Kjalarness og gerður um hann leigusamningur til ársins 2014. Urðunar- staðnum voru settir strangari skilmálar en annars staðar tíðkuðust og ákveðið að bagga allt sorp sem þangað færi. Ný mótttökustöð var byggð í Gufu- nesi og áhersla lögð á að gera umhverfi allt og um- gjörð um reksturinn eins snyrtilega og kostur væri.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.