Sveitarstjórnarmál - 01.12.2001, Page 88
Umhverfismál
Efnt var til hófs er fyrsti áfangi gasveitunnar í Álfsnesi var tekinn
( notkun 6. desember 1996. Á myndinni stilla þeir sér upp, talið
frá vinstri, Magnús Stephensen, deildarstjóri tækni- og þróunar-
deildar 1991-1999, Ingimundur Sigurpálsson, bæjarstjóri Garða-
bæjar og formaður stjórnar SORPU 1994-1998, Björn Árnason,
bæjarverkfræðingur í Hafnarfirði og formaður stjórnar SORPU
1992-1994, og Ögmundur Einarsson, framkvæmdarstjóri
SORPU. Ljósm. Unnar Stefánsson.
Sorpa þurfti að glíma við ýmsa byrjunarörðug-
leika. Viðhorf fólks til flokkunar og endurvinnslu
var ólíkt því sem nú er. Með samstilltu átaki hefur
tekist að sigrast á erfiðleikum og breyta viðhorfi
almennings. Þar hafa starfsmenn fyrirtækisins
gegnt lykilhlutverki. Fyrir nokkrum árum ákvað
stjórn Sorpu að koma á laggirnar sérstakri fræðslu-
deild og leggja þar með meiri áherslu á kynningar-
og upplýsingamál. Kynningar- og fræðsluuefni
hefur verið beint til skóla og leikskóla. Það starf
hefur skilað góðum árangri. Fátt veitir rneira að-
hald á heimilunum í þessu sambandi en börn sem
eru meðvituð um umhverfi sitt.
í stofnsamningi byggðasamlagsins voru sett
markmið um framleiðslu á eldsneyti og orku auk
endurvinnslu og endurnýtingar eftir því sem hag-
kvæmt væri. Fljótlega var farið að hvetja til flokk-
unar á úrgangi heimila og fyrirtækja og gáma-
stöðvar settar upp víða á höfúðborgarsvæðinu.
Heiti þeirra hefur nú verið breytt í endurvinnslu-
stöðvar en það lýsir betur verkefni þeirra eins og
það hefur þróast frarn á þennan dag. Endurvinnslu-
stöðvarnar sem starfræktar eru á höfuðborgarsvæð-
inu eru nú átta talsins. Nú á fólk möguleika á Qöl-
breyttri flokkun og getur séð árangurinn í margvís-
legurn myndum. Á afmælisárinu sendi Sorpa bæk-
ling inn á hvert heimili á höfuðborgarsvæðinu, þar
sem kynntar eru 25 leiðir til að flokka úrgang og
minnka þar með það rnagn sem fer til urðunar.
Fjölbreytt þróunarverkefni og ný
fyrirtæki
Fyrirtækið hefur ávallt leitast við að bjóða upp á
skynsamlegar og hagkvæmar lausnir í úrgangs- og
endurvinnslumálum. í þeim tilgangi hefur Sorpa
staðið að fjölbreyttum þróunarverkefnum. Þannig
er til dæmis allt timbur kurlað og endurnýtt sem
kolefnisgjafi við framleiðslu járnblendis í verk-
smiðju íslenska járnblendifélagsins á Grundar-
tanga. Með þessari endurvinnslu hefur verið stigið
merkilegt skref, því að slik aðferð hefur hvergi
verið notuð fyrr og hefur þetta þróunarverkefni
járnblendifélagsins og Sorpu vakið athygli viða.
Með þessari aðferð rninnka gróðurhúsaáhrif verk-
smiðjunnar um 30-40%.
Fleiri þróunarverkefni hafa verið unnin á vett-
vangi Sorpu og má þar nefna gassöfnun í urðunar-
staðnum á Álfsnesi. Samkvæmt starfsleyfi Sorpu
ber að safna því gasi sem myndast við rotnun líf-
rænna úrgangsefna á urðunarstað og nýta það eftir
fremsta megni. Eftir að hafa staðið að þróun vegna
nýtingar metangassins ákvað stjórn byggðasam-
lagsins að stofna sérstakt fyrirtæki, Metan hf., til
að hreinsa, dreifa og selja metangas, auk þess að
framleiða orku úr því. Fyrirtækið var stofnað í
ágúst 1999 af Sorpu og Aflvaka og tæpu ári síðar
hófst sala á metangasi til bifreiða i samvinnu við
Olíufélagið hf. Þá höfðu tuttugu fýrstu metanbíl-
arnir verið fluttir til landsins af Heklu hf. Með
þessu hefur verið stigið enn eitt skrefið til að bæta
umhverfið. Miklir möguleikar bíða í framtíðinni,
því að gasvinnslan getur séð fyrir eldsneyti á 1500
bifreiðar og umhverfisáhrifin eru veruleg. Þegar
hafa fleiri aðilar flutt inn bíla sem ganga bæði fyrir
gasi og bensíni og ýmis fyrirtæki hafa sýnt áhuga á
að hafa þannig bíla i innanbæjarsendiferðum og
leggja þar með sitt af mörkum til betra umhverfis.
Orkuframleiðsla inn á raforkukerfi landsmanna er i
undirbúningi og á síðasta ári veitti iðnaðarráðherra
Metani hf. orkuframleiðsluleyfi fyrir 2 mega-
vöttum. Nýsköpunarsjóður gekk á síðasta ári til
liðs við fyrirtækið og ýmis sóknarfæri eru nú til
skoðunar.
Sorpa beitti sér sömuleiðis fýrir stofnun sérstaks
fyrirtækis um eyðingu spilliefna ásamt Aflvaka og
fýrirtækinu Sagaplast hf. Efnamóttakan hf. var
stofnuð síðla árs 1998 i þessum tilgangi og nýverið
gekk endurvinnslufýrirtækið Fura hf. til liðs við
fýrirtækið. Það er yfirlýst stefna Sorpu að draga
sig smám saman út úr rekstri þeirra fyrirtækja sem
stofnuð eru í þróunartilgangi eftir því sem þeint
vex fiskur um hrygg.