Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.12.2001, Síða 89

Sveitarstjórnarmál - 01.12.2001, Síða 89
Umhverfismál Hinn 23. október 1997 voru SORPU veitt umhverfisverðlaun UMFÍ og Umhverfissjóðs verslunarinnar fyrir stórstígar framfarir í sorpeyðingu og endurvinnslu úrgangs á höfuð- borgarsvæðinu. Myndin er tekin í móttöku- og flokkunarstöðinni við það tækifæri. Á undanfÖrnum árurn hefur verið þróuð fram- leiðsla á moltu úr garðaúrgangi en mikið magn berst Sorpu á hverju ári. Tekist hefur að þróa mjög góða afúrð en ekki hefúr gengið sem skyldi að fá aðila á markaði inn í þetta samstarf. Flokkun alls þess efnis sem berst til endurvinnslustöðvanna hefur leitt af sér margs konar starfsemi. Hér má nefna lítið fyrirtæki, Góða hirðinn, sem er að vaxa upp. Það fyrirtæki byggir starfsemi sína á að end- urnýta húsgögn og búnað sem berst til endur- vinnslustöðvanna og selja. Allur ágóði af þeirri starfsemi fer til líknarmála. Nýjasta verkefnið sem nú er verið að þróa er til- raun með endurvinnslu bylgjupappa og svinaskíts. Þar er á ferðinni merkileg tilraun, sem unnið er að með Svíum og stuðningi umhverfisráðuneytisins. Vonandi tekst vel til með þetta verkefni, því að hér eru á ferðinni stórir úrgangsflokkar. Heimild til að stofna hlutafélög í stofnsamningi var kveðið á um að hann skyldi endurskoða í siðasta lagi innan fO ára frá stofnun byggðasamlagsins „með hliðsjón af framkvæmd hans og breyttum aðstæðum“. Á undanfornum árum hefúr verið unnið mjög að því að færa rekstur úr höndum hins opinbera yfir til einkaaðila. Einkafyrirtæki hafa verið að færa sig inn á þennan vettang og því þarf vel að gæta að samkeppnis- reglur séu í heiðri hafðar. Rekstrarfyrirkomulag fyrirtækisins hefur því verið rætt í hópi eigenda þess. Leitað var eftir því í tengslum við endur- skoðun stofnsamningsins fyrir fáum árum hvort hljómgrunnur væri fyrir þvi að breyta byggða- samlaginu í hlutafélag. Jafnframt að kannaður yrði áhugi annarra á að taka þátt í slíkum rekstri. Ekki reyndist stuðningur hjá öllum aðildarsveitarfélögum fyrir þessari breytingu. Á hinn bóginn var í endurskoðuðum stofnsamningi, sem undirritaður var í maí 1998, sett inn nýtt ákvæði um að stjórn byggðasam- lagsins væri heimilt að stofna hlutafélög til að sinna ýmsum verkefnum sem féllu að tilgangi byggðasamlagsins. Fyrirtækið á að gegna lögboðnum skyldum eig- enda sinna, sveitarfélaganna sem að baki því standa. Þann tíma sem fyrirtækið hefúr starfað hefur markaðurinn á þessu sviði verið að þróast. Lögð hefúr verið áhersla á að ýta undir þessa þróun. Þannig hafa verið stofnuð sérstök fyrirtæki um nýja starfsemi sem ætla má að samkeppni geti orðið til um. Þá hafa einstakir rekstrarþættir jafnan verið boðnir út eftir því sem kostur er. Á síðasta ári var gjaldskrá fyrirtækisins breytt þannig að að- greint var gjald fyrir urðun á urðunarstaðnum í Álfsnesi. Með því skapast svigrúm og tækifæri fyrir þá aðila sem vilja bagga sorp. Á þeim rúma áratug sem Sorpa hefúr starfað hefúr fyrirtækið vaxið og dafnað. Eigið fé fyrirtækisins nemur nú 640 milljónum króna og veltan á síðasta ári var um 1.020 milljónir króna. Á árinu 2001 tók fyrirtækið við 112 þúsund tonnum og af því má ætla að um tæpur þriðjungur fari til endurvinnslu. Fyrirtækið hefur frá upphafi lagt metnað sinn í að þjóna ibúum höfúðborgarsvæðisins vel og upp- fylla þær kröfúr sem til þess eru gerðar um leið og leitast er við að halda öllum kostnaði í lágmarki. Sorpa mun áfram hafa mikilvægu hlutverki að gegna við að þróa nýjar aðferðir sem bætt geta um- hverfi okkar og mun halda áfram að vera leiðandi fyrirtæki á sviði umhverfismála.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114

x

Sveitarstjórnarmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.