Milli mála - 01.01.2011, Síða 173
173
Mennta- og menningarmálaráðuneytið úthlutar styrkjum í sam-
ræmi við reglur til fræðsluaðila og fyrirtækja er bjóða nám í íslensku
sem ekki er hluti af almennu námi á grunn- eða framhaldsskólastigi.
Styrk irnir eru m.a. auglýstir til umsóknar í fjölmiðlum og fer
úthlutun fram tvisvar til þrisvar á ári. Rétt til að sækja um styrki
eiga fræðsluaðilar og fyrirtæki í samvinnu við „hæfan“ fræðslu aðila.
Í 4. grein í reglum um úthlutun kemur fram að umsækjendur skulu
veita upplýsingar um „markmið námsins, lýsing[u] á inntaki þess,
námsefni og aðstöðu til kennslunnar, kennara, menntun hans eða
færni og starfsreynslu […] kennslustundafjölda, nemendafjölda,
kennslutíma, um námskeiðskostnað og fjármögnun.“42 Mennta-
mála ráðuneyti hefur eftirlit með framkvæmd íslenskukennslu.43
Aðrir en hið opinbera hafa lagt fé til íslenskukennslu. Á árun um
fyrir 2007 höfðu ýmsir menntasjóðir á vegum stéttarfélag anna,
aðal lega Landsmennt (www.landsmennt.is) og Starfsafl (www.starfs-
afl.is) styrkt bæði námskeið og námsefnisgerð í íslensku sem öðru
tungu máli. Á árunum 2004–2006 nam þessi upphæð 48,7 milljón-
um króna. Árið 2006 kölluðu Starfsgreinasambandið og Samtök
atvinnulífsins eftir auknum fjárframlögum ríkisins til íslensku-
námskeiða.44 Ríkið brást skjótt við og árið 2007 var framlag til
eflingar íslensku sem annars máls hækkað úr 24,3 milljónum króna
frá árinu 2006 í 119,6 milljónir króna . Það ár fengu 77 fræðsluaðil-
ar og fyrirtæki styrki til íslenskukennslu. Upphæð styrkja var frá
rúmum 20 þúsund krónum til tæplega 40 milljóna króna, hinn
stærsti vegna um 5.773 þátttakenda. Árið 2008 var úthlutað 155
milljónum króna til 65 fræðsluaðila og fyrirtækja. Upphæð til
hvers umsækjanda var frá 75 þúsund krónum til 37,6 milljóna
vegna um 5.100 þátttakenda en þó aðeins þeirra nemenda sem
höfðu sótt a.m.k. 75% af kennslustundum.45 Árið 2009 lækkaði
heildarupp hæðin niður í 128 milljónir vegna efnahagsástandsins.
Ljóst er að hið opinbera var tilbúið að mæta aukinni þörf fyrir
íslenskukennslu en hin mikla dreifing fjármagnsins, sérstaklega í
42 Reglur um úthlutun styrkja til íslenskukennsku fyrir útlendinga vorið 2009, Reykjavík: Mennta-
málaráðuneytið, http://www.menntamalaraduneyti.is/media/MRN-doc-eydublod/Uthlutunar-
reglur_vor_2009.pdf [sótt 30.0711].
43 Sama rit.
44 Íslenska með hreim er líka íslenska, bls. 7.
45 Sama rit.
BIRNA ARNBJÖRNSDÓTTIR