Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.11.2005, Page 58

Læknablaðið - 15.11.2005, Page 58
UMRÆÐA & FRÉTTIR / KONUR í LÆKNASTÉTT Ráðstefnunefndin. Talið frá vinstri: Lilja Sigrún Jónsdóttir, Ingi- björg Georgsdóttir, ína Marteinsdóttir, Ólöf Sigurðardóttir, Margrét Árnadóttir, Ósk Ingvars- dóttir og Helga Hannes- dóttir (á myndina vantar Ellen Mooney og Katrínu Fjeldsted). Barbro Dalilbom-Hall stjórnunarráðgjafi rœðir framtíðarstöðu lœkna. HOT Kristín Jónsdóltir kynnti Margréti Guðnadóttur sem var heiðruð áfundinum sem fyrsti kvenprófessor í Lœknadeild Háskóla íslands. Á myndinni eru einnig Ólöf Sigurðardóttir og Margrél Georgsdóttir fyrrverandi og núverandi formenn Félags kvenna í læknastétt á íslandi. á að vera með karla og konur í handleiðslu og lýsti upplifun sinni þannig að karlinn sjái dokt- orsnámið sem leið til að safna vopnum til að beita gegn keppinautunum og koma sjálfum sér áfram í vísindaheiminum. En við upphaf doktorsnáms nálgist konan verkið á ólíkan hátt og hafi tilhneig- ingu til að vera viðkvæmari fyrir gagnrýni á verk sín. Knorring líkti ritgerðarsmíðum konunnar við meðgöngu, persónulegu skapandi ferli. Hann sagði líka að konur krefðust meiri nándar við handleið- arann en karlar og það gæti leitt til misskilnings. Mæður og strákar Seinni dagurinn var helgaður heilsu kvenna og þar vorum við meðal annars að koma á framfæri því sem vel hefur verið gert hér á landi. Til dæmis var sagt frá þátttöku kvenna í Reykjavíkurrannsókn Hjartaverndar en þar hafa þær verið með frá 1968 sem þykir sérstakt. Einnig var sagt frá starfsemi Leitarstöðvar Krabbameinsfélagsins, lágum barna- dauða og virku ungbarna- og mæðraeftirliti. Við fengum líka í heimsókn læknanema sem sögðu frá verkefni sem þau hafa skipulagt og heitir Ástráður (www.astradur.is) en það snýst um kynfræðslu fyrir ungt fólk. Kynning þeirra vakti mikla hrifningu og lófaklappinu ætlaði aldrei að linna. Einnig voru hádegisverðarfundir um geðheilsu kvenna fyrri daginn og hjarta- og lungnasjúkdóma kvenna seinni daginn. Við ræddum stjórnunarhlutverk kvenna í lækna- stétt. Við vitum að konur og karlar hafa mjög ólík- an stjórnunarstíl og að konur sem herma eftir körl- um ná ekki langt. Meðal fyrirlesara unt þetta var Barbro Dahlbom-Hall, sænskur stjórnunarráðgjafi sem hefur skrifað fjölmargar bækur um stjórnun lækna og hvernig eigi að kenna læknum að stjórna. Þar kom glöggt í ljós hversu mismunandi upplifun kvenna og karla er á stjórnun og samvinnu. Meðal þess sem hún ræddi var að á stórum stofnunum eins og sjúkrahús eru flest þyrfti fólk að vinna saman og það væri sérstaklega nauðsynlegt að kenna ungum körlum samvinnu, þeim hættir til að gogga dálítið hver í annan og verja sín svæði á meðan konurnar bregða sér þá í móðurhlutverk- ið og hjálpa þeim þannig óbeint við að viðhalda „strákamynstrinu“.“ Ólík heilsa kynjanna Á síðustu árum hafa rannsóknir leitt í ljós mikinn mun á heilsu kvenna og karla og það var til um- ræðu á þinginu. Hvað fannst Ólöfu athyglisverðast sem þar kom fram? 858 Læknablaðið 2005/91

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.