Læknablaðið - 15.11.2005, Síða 61
UMRÆÐA & FRÉTTIR / ÚR ÝMSUM ÁTTUM
Nefnd falið að semja
lagafrumvarp um
stof nf ru m u ran n só kn i r
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra hefur skipað nefnd til að fjalla um
nýtingu stofnfrumna til rannsókna og lækninga og semja frumvarp til laga
nm stofnfrumurannsóknir. Stofnfrumurannsóknir hófust fyrst á níunda
áratugnum. Töluverður árangur hefur náðst nú þegar og eru vonir bundn-
ar við að stofnfrumur geti orðið til þess að lækna ýmsa illvíga sjúkdóma.
Stofnfrumurannsóknir vekja hins vegar margvíslegar siðfræðilegar spurning-
ar, einkum þegar notast er við fósturvísa til rannsóknanna og hafa umræður
nm þau efni verið ofarlega á baugi meðal margra þjóða á liðnum árum. Hér
á landi eru slíkar rannsóknir ekki heimilar samkvæmt lögum nema þær séu
liður í glasafrjóvgunarmeðferð eða greiningu arfgengra sjúkdóma í fóstur-
vísunum sjálfum. Að öðru leyti er ekki fjallað um stofnfrumurannsóknir í
íslenskum lögum.
Formaður nefndarinnar er Sveinn Magnússon skrifstofustjóri í heilbrigð-
isráðuneytinu og aðrir nefndarmenn Sigurður Guðmundsson landlækn-
ir, Magnús Karl Magnússon læknir, Björn Guðbjörnsson formaður Vísinda-
siðanefndar, Þórarinn Guðjónsson frumulíffræðingur, Ingileif Jónsdóttir
ónæmisfræðingur, Vilhjálmur Árnason formaður stjórnar Siðfræðistofnunar,
Sólveig Anna Bóasdóttir guðfræðingur og Jóhann Hjartarson lögfræðingur.
Starfsmaður nefndarinnar er Ágúst Geir Ágústsson, lögfræðingur. Nefndinni
er ætlað að ljúka störfum í lok mars 2006.
(Frétt frá heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu.)
Villa í yfirlýsingu
í síðasta tölublaði Læknablaðsins var birt sameiginleg yfirlýsing lækna og
lyfjaiðnaðar um samskipti þessara aðila. Meinleg þýðingarvilla skaut upp
kollinum í yfirlýsingunni og því verður hún birt aftur f heild í desemberblað-
inu.
Líf af lífi
Þrátt fyrir miklar umræður um erfðafræði
síðustu ár er almenn þekking á efninu sumpart
brotakennd. Nú er komin út bókin Líf af lífi
- gen, erfðir og erfðatœkni þar sem höfundur-
inn, Guðmundur Eggertsson prófessor í líffræði
við Háskóla íslands, rekur rannsóknir á erfða-
efninu, skýrir hvernig genið er gert úr garði
og hvernig það starfar í lifandi frumu. Sagt er
frá þeim umdeildu rannsóknaraðferðum sem
kenndar eru við erfðafræði og frá hugmyndum
manna um að nýta þær aðferðir til lækninga og
jafnvel breytinga á erfðaefni mannsins.
Læknablaðið 2005/91 861