Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.10.2009, Side 69

Læknablaðið - 15.10.2009, Side 69
UMRÆÐUR O G FRÉTTIR AÐALFUNDUR LÍ Ögmundur Jónasson heilbrigisráðherra messar yfir læknum. Ekki kosið í 30 ár Aðalfundur Læknafélags íslands á Selfossi 17. og 18. september Hávar Sigurjónsson Þau sögulegu tíðindi urðu á aðalfundi Læknafélags Islands á dögunum að í fyrsta sinn í 30 ár var kosið milli frambjóðenda í stjórn félagsins. Elínborg Bárðardóttir gekk úr stjórninni og í stað hennar lagði stjórnin til að Ragnar Gunnarsson heilsugæslulæknir á Selfossi yrði kjörinn. Aðrir í stjórn gáfu kost á sér aftur en Teitur Guðmundsson bauð sig einnig fram og þar með þurfti að efna til leynilegrar kosningar aðalfundarfulltrúa þar sem velja átti fjóra af fimm frambjóðendum. Kristinn Tómasson, formaður talningarnefndar, kynnti síðan niðurstöðurnar og varð hún á þann veg að sitjandi stjórnarmenn voru endurkjömir ásamt Ragnari Gunnarssyni. Fundurinn fór fram á Hótel Selfossi að þessu sinni og hófst á fimmtudegi kl. 17 með ávarpi heilbrigðisráðherra, Ögmundar Jónassonar. Hann gerði að umræðuefni óumflýjanlegan niðurskurð ríkisútgjalda sem blasti við á öllum sviðum og þar væri heilbrigðiskerfið engin undantekning. „Almenna reglan er sú að stofnanir sem ekki sinna heilbrigðisþjónustu með beinum hætti er gert að skera niður um 10% en hinum er gert að skera niður um 5-6%. Niðurskurðarkrafan í heilbrigðiskerfinu er að meðaltali á milli 6-7% og er geigvænlegur niðurskurður sem kemur ofan á niðurskurð þessa árs upp á 6,7-7 milljarða. Það er mjög mikilvægt að okkur takist að gera þetta þannig að kerfið skaðist ekki til langframa." Ráðherrann sagði að hverri stofnun væri að mestu leyti í sjálfsvald sett hvemig hún stæði að niðurskurði en hann kvaðst þó vilja líta þannig á þessar aðgerðir að þær væru umbótastarf og Birna formaður hugsar sig um. að þrátt fyrir allt myndu þessar aðgerðir skila heilbrigðiskerfinu sterkara en ella inn í framtíðina. „Það er verkefnið." Hann gerði árangur í aðhaldi við lyfjakostnað að umtalsefni og sagði hann byggja á góðu samstarfi við lækna. „Við munum halda áfram á þessari braut og taka lyfjaflokkana fyrir hvern af öðrum. Þetta er hins vegar afskaplega viðkvæm umræða og þarf að gæta sín vel þegar teknar eru ákvarðanir um niðurskurð lyfja, sérstaklega sjúkrahúslyfjanna. Þar er mikilvægt að gott samstarf sé við læknastéttina." Ráðherrann lýsti sérstakri aðdáun sinni á nýafstöðnu tóbaksvamaþingi Læknafélags íslands og sagði lækna hafa þar lagt mikilvæg lóð á vogarskálarnar í baráttunni gegn tóbakinu. Hann sagði ennfremur að sæmilega góð sátt hefði ríkt um skiptingu heilbrigðisþjónustunnar milli opinberra aðila og einkareksturs en kvaðst hafa ákveðnar efasemdir um að landamæri þessa væru á réttum stað. Hann undirstrikaði að hann LÆKNAblaðið 2009/95 705

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.