Læknablaðið - 15.10.2009, Page 69
UMRÆÐUR O G FRÉTTIR
AÐALFUNDUR LÍ
Ögmundur Jónasson heilbrigisráðherra messar yfir læknum.
Ekki kosið í 30 ár
Aðalfundur
Læknafélags
íslands á
Selfossi 17. og
18. september
Hávar
Sigurjónsson
Þau sögulegu tíðindi urðu á aðalfundi Læknafélags
Islands á dögunum að í fyrsta sinn í 30 ár var
kosið milli frambjóðenda í stjórn félagsins.
Elínborg Bárðardóttir gekk úr stjórninni og í stað
hennar lagði stjórnin til að Ragnar Gunnarsson
heilsugæslulæknir á Selfossi yrði kjörinn. Aðrir í
stjórn gáfu kost á sér aftur en Teitur Guðmundsson
bauð sig einnig fram og þar með þurfti að efna til
leynilegrar kosningar aðalfundarfulltrúa þar sem
velja átti fjóra af fimm frambjóðendum. Kristinn
Tómasson, formaður talningarnefndar, kynnti
síðan niðurstöðurnar og varð hún á þann veg að
sitjandi stjórnarmenn voru endurkjömir ásamt
Ragnari Gunnarssyni.
Fundurinn fór fram á Hótel Selfossi að þessu
sinni og hófst á fimmtudegi kl. 17 með ávarpi
heilbrigðisráðherra, Ögmundar Jónassonar. Hann
gerði að umræðuefni óumflýjanlegan niðurskurð
ríkisútgjalda sem blasti við á öllum sviðum og
þar væri heilbrigðiskerfið engin undantekning.
„Almenna reglan er sú að stofnanir sem ekki
sinna heilbrigðisþjónustu með beinum hætti er
gert að skera niður um 10% en hinum er gert
að skera niður um 5-6%. Niðurskurðarkrafan í
heilbrigðiskerfinu er að meðaltali á milli 6-7% og
er geigvænlegur niðurskurður sem kemur ofan
á niðurskurð þessa árs upp á 6,7-7 milljarða. Það
er mjög mikilvægt að okkur takist að gera þetta
þannig að kerfið skaðist ekki til langframa."
Ráðherrann sagði að hverri stofnun væri að
mestu leyti í sjálfsvald sett hvemig hún stæði að
niðurskurði en hann kvaðst þó vilja líta þannig
á þessar aðgerðir að þær væru umbótastarf og
Birna formaður hugsar sig um.
að þrátt fyrir allt myndu þessar aðgerðir skila
heilbrigðiskerfinu sterkara en ella inn í framtíðina.
„Það er verkefnið." Hann gerði árangur í aðhaldi
við lyfjakostnað að umtalsefni og sagði hann
byggja á góðu samstarfi við lækna. „Við munum
halda áfram á þessari braut og taka lyfjaflokkana
fyrir hvern af öðrum. Þetta er hins vegar afskaplega
viðkvæm umræða og þarf að gæta sín vel þegar
teknar eru ákvarðanir um niðurskurð lyfja,
sérstaklega sjúkrahúslyfjanna. Þar er mikilvægt að
gott samstarf sé við læknastéttina."
Ráðherrann lýsti sérstakri aðdáun sinni á
nýafstöðnu tóbaksvamaþingi Læknafélags íslands
og sagði lækna hafa þar lagt mikilvæg lóð á
vogarskálarnar í baráttunni gegn tóbakinu.
Hann sagði ennfremur að sæmilega góð sátt
hefði ríkt um skiptingu heilbrigðisþjónustunnar
milli opinberra aðila og einkareksturs en kvaðst
hafa ákveðnar efasemdir um að landamæri þessa
væru á réttum stað. Hann undirstrikaði að hann
LÆKNAblaðið 2009/95 705