Læknablaðið - 15.10.2009, Qupperneq 83
1909-2009 LÆKNAFÉLAG REYKJAVÍKUR 100 ÁRA
Læknirinn og samfélagið
Afmælishátíð dagana 16. og 17. október
Föstudagur 16. október kl. 15-18
Læknaklúbburinn. í Hlíðasmára 8 í Kópavogi
Kl. 15:00-15:20 Læknar boðnir velkomnir. Sigurður Böðvarsson formaður Læknafélags Reykjavíkur
Kl. 15:20-15:40 Læknirinn og samfélagið, áður fyrr. Óttar Guðmundsson formaður Félags áhugamanna um sögu læknisfræðinnar
Kl. 15:40-16:00 Læknirinn og samfélagið í framtíðinni. Tryggvi Helgason læknir
Hlé - Léttar veitingar
Kl. 16:30-18:00 Umræður, spjall og jafnvel kappræður. Læknirinn og samfélagið.
Hér koma læknar saman beint frá mikilvægum störfum sínum, slaka á og njóta samvista við kollegana í okkar eigin húsnæði.
Óformleg og þægileg samvera og jafnvel óvæntar uppákomur.
Laugardagur 17. október kl. 10-16. Hilton Nordica hótelinu í Reykjavík
Kl. 10:00-10:10 Sigurður Böðvarsson formaður býður gesti velkomna og setur hátíðina
Kl. 10:10-10:20 Ávarp heilbrigðisráðherra
Kl. 10:20-10:25 Ólafur Þór Ævarsson, formaður afmælisnefndarinnar kynnir Listaþing
Kl. 10:25-10:30 Hildur Svavarsdóttir, heimilislæknir kynnir fræðsludagskrána
1. Listatorg lækna
Læknar starfa ekki einungis í þjónustu læknislistarinnar, fjölmargir leggja stund á sköpun og miðlun í hinum ýmsu greinum lista. Hér sýna allir
læknar sem vilja listir sínar aðrar en læknalistina. Sýningin verður opin öllum.
2. Heilsa - ábyrgð okkar allra - Fræðsla fyrir almenning og lækna
Fræðsludagskránni er skipt í eftirfarandi: Barnaheilsu, ungiingaheilsu, kvennaheilsu, karlaheilsu og heilsu og hamingju. Hópstjórar eru Michael
Clausen barnalæknir, Hildur Svavarsdóttir heimilislæknir, Ebba Margrét Magnúsdóttir kvensjúkdómalæknir, Eiríkur Jónsson þvagfærasérfræðingur
og Ólafur Þór Ævarsson geðlæknir.
Fræðslan fer fram á sýningarsvæðum hvers sviðs. Gestir koma í heimsókn á svæðin og læknarnir fræða með aðgengilegum hætti og með
margskonar miðlum.
Heilsa í 100 ár. Sýning frá Lækningaminjasafninu og fræðsla frá Félagi áhugamanna um sögu læknisfræðinnar. Anna Þorbjörg Þorgrímsdóttir
safnstjóri og Óttar Guðmundsson, geðlæknir.
3. Dagskrá Félags áhugamanna um sögu læknisfræðinnar: "Kaun og benjar holdið hrjá"
Hinn árlegi Egils Snorrasonar fyrirlestur félagsins verður haldinn að lokinni setningarathöfn. Þrír fyrirlesarar fjalla um sögu holdsveikinnar á íslandi
og í Noregi.
- Óttar Guðmundsson formaður FÁSL býður gesti velkoma
- Leprosy in Norway, remarkable science, pubtic health and crime. Lorentz M. Irgens prófessor frá Bergen (Egils Snorrasonar fyrirlestur)
- Visitatia Bjarna Pálssonar á Kaldaðanesspítala 1763. Sögulegt yfirlit holdsveikinnar á íslandi. Erla Dóris Halldórsdóttir sagnfræðingur.
- „Hver erþessi Jesú pfslarmynd?" Úlfar Þormóðsson rithöfundur
4. Afmælishátíð
Laugardagskvöldið 17. október verður skemmtileg afmælishátíð lækna og maka þeirra með glæsilegum kvöldverði, skemmtun og dansleik á
Hótel Hilton Nordica. Þar verða óvæntar uppákomur og læknar sjá sjálfir um skemmtiatriði og tónlist. Allir læknar mæti, ungir sem aldnir og allir
eru velkomnir. Líka þeir sem tilheyra öðrum svæðafélögum eða FÚL.
Fordrykkur er í boði félagsins.
Matseðill: í forrétt er humarsúpa, síðan lambahryggur með lerkisveppum og að lokum mangósalsa með pavlovu í eftirrétt. Verð 6900 kr.
Miðar á afmælishátíðina verða seldir á heimasíðu Læknafélags íslands. Vegna undirbúnings er mikilvægt að menn greiði miðana sem fyrst.
Lokadagur fyrir miðakaup er föstudagur 16. október.
í undirbúningsnefnd afmælisins, skipaðri af Sigurði Böðvarssyni, formanni Læknafélags Reykjavíkur, sitja: Ólafur Þór Ævarsson formaður, Anna
Kr. Jóhannsdóttir, Elínborg Guðmundsdóttir, Friðný Jóhannesdóttir, Gestur Þorgeirsson, Halla Skúladóttir, Hildur Svavarsdóttir, Högni Óskarsson,
Magni S. Jónsson og Óskar Einarsson.
LÆKNAblaðið 2009/95 719