Læknablaðið : fylgirit - 01.12.2000, Page 28

Læknablaðið : fylgirit - 01.12.2000, Page 28
I ÁGRIP ERINDA / X. VÍSINDARÁÐSTEFNA LÆKNADEILDAR HÍ Efniviður og aðferðir: Sautján hundruð Reykvíkingar, 50 ára og eldri, voru valdir með slembiúrtaki úr þjóðskrá og boðið að taka þátt. Eilt þúsund fjörtíu og fimm einstaklingar mættu til skoðunar; 583 konur og 462 karlar. Augasteinar voru skoðaðir með rauf- arsmásjá af tveimur vönum augnlæknum. Pátttakendur fylltu einnig út spurningalista um heilsufar og lífsvenjur. Niðurstöðurnar voru reiknaðar með lógistískri aðhvarfsgreiningu. Niðurstöður: Aukin áhætta fyrir skýmyndun í augasteinskjarna kom fram hjá eldra fólki, þeim sem reyktu og þeim notuðu áfengi. Aðrir þættir sem skoðaðir voru og höfðu engin merkjanleg áhrif á áhættuna voru; útivera, tálflögnun, hjartasjúkdómar, vítamínneysla, lýsisdrykkja, fiskát, tölvunotkun og infrarautt Ijós. Alyktanir: Skýmyndun í augasteinskjarna er aldurstengd og afar al- geng eftir sjötugt. Vegna fjölgunar í elstu aldurshópunum á kom- andi árum mun algengið enn aukast og aðgerðum fjölga. Niðurstöð- ur benda til þess að áhættuþættir skýmyndunar í augasteinskjarna séu að nokkru leyti tengdir lífsvenjum fólks og því væri mögulega hægt að hafa áhrif á framgang og tíðni með forvörnum. E 14 Algengi augn- og munnþurrks á íslandi með hliðsjón af heilkenni Sjögrens Jórunn Atladóttir', Ólafur Grétar Guðmundsson2, Peter Holbrook3, Ragnar Sigurðsson4, Björn Guðbjörnsson56 'Læknadeild og 'tannlæknadeild HÍ, ‘augn- og 'lyílækningadeild FSA. 'augnlækn- ingadeild og ‘Rannsóknarstofan í gigtarsjúkdómum Landspítala Hringbraut Netfang: bjorngu@landspitali.is Inngangur: Heilkenni Sjögrens er samkvæmt erlendum rannsókn- um einn af algengari fjölkerfasjúkdómunum. Sjúkdómurinn ein- kennist af dagsþreytu, stoðkerfisverkjum og þurrkeinkennum frá slímhúðum. Algengi augn- og munnþurrks er ekki þekkt hér á landi né heldur algengi heilkennis Sjögrens. Markmið rannóknarinnar var að kanna algengi helstu einkenna heilkennis Sjögrens og finna líklegar algengistölur fyrir heilkennið hérlendis. Efniviður og aðferöir: Slembiúrtak var fengið úr tveimur aldurs- hópum; 40-49 ára og 70-75 ára íslendingum búsettum á höfuðborg- arsvæðinu og á Akureyri. Notast var við spurningakver með 14 spurningum um algengustu einkenni heilkennis Sjögrens. Sjúkling- um er játuðu einkennum augnþurrks var boðið til skoðunar með Schirmer-I prófi, mælingu á tárafilmurofstíma og Rose Bengal lilun fyrir glæru- og tárabólgu. Ennfremur var gerð munnvatnsrennslis- mæling. Til samanburðar var einstaklingum er neituðu sömu ein- kennum einnig boðið til skoðunar. Niðurstöður: í úrtakinu var 621 einstaklingur, 300 karlar og 321 kona. Skilatíðni spurningakversins var 74%. Alls 24% þátttakenda höfðu einkenni um augnþurrk og 19% höfðu munnþurrk, hvort tveggja var marktækt algengara hjá konum (p<0,001). Fimm prósent kvörtuðu um öll þrjú aðaleinkenni heilkennis Sjögrens. Eitt hundrað og þremur einstaklingum með einkenni um augn- og/eða munn- þurrk verður boðin skoðun, jafnframt verður samanburðarhópur einstaklinga er neituðu þurrkeinkennum skpðaður. Framkvæmdar verða mælingar á gigtarprófum meðal þátttakenda. Bráðabirgðanið- urstöður benda til að algengi heilkennis Sjögrens sé 0,5% hér á landi. Nánari niðurstöður verða kynntar á rannsóknaráðstefnunni. Ályktanir: Niðurstöður sýna að einkenni augn- og munnþurrks eru algeng hér á landi, sem og þrjú aðaleinkenni heilkennis Sjögrens. Því er nauðsynlegt að styðjast við ströng greiningarskilmerki þegar staðfesta skal sjúkdómsgreininguna heilkenni Sjögrens. Ekki er unnt að fullyrða um algengi heilkennis Sjögrens hér á landi fyrr en rannsókninni er að fullu lokið. E 15 Eitilfrumumein í aukalíffærum augna á íslandi Margrét Sigurðardóttir , Haraldur Sigurösson2, Sigrún Kristjánsdóttir', Bjarni A Agnarsson1 'Rannsóknastofa Háskólans í meinafræði, 2augndeild Landspítala Hringbraut Netfang: bjarniaa@rsp.is Inngangur: Eitilfrumumein í aukalíffærum augna geta verið erfiðar í greiningu ef ekki koma til viðbótarrannsóknir til að skera úr um hvort meinin séu einstofna (monoclonal) það er illkynja eða fjöl- stofna (polyclonal) það er góðkynja. Til þess þarf hins vegar frystan vef sem oft er ekki fyrir hendi. Nýlega hefur komið fram PCR að- ferð sem hægt er að beita á paraffín innsteyptan vef í því skyni að kanna hvort að um einstofna eða fjölstofna eitilfrumumein er að ræða. Tilgangur þessarar rannsóknar var að gera klíníska og meina- fræðilega rannsókn á þessum meinsemdum á Islandi og kanna hvort PCR rannsókn gæti nýst til að skera úr um góðkynja eða ill- kynja eiginleika þeirra. Efniviður og aðferðir: Leitað var að upplýsingum um heilsufar, klínísk einkenni, staðsetningu meinsemdar, útbreiðslu sjúkdóms, meðferð og horfur sjúklinga og vefjasýni endurskoðuð auk þess sem gerð var PCR rannsókn á þessum sýnum. Niðurstöður: Alls fundust 15 tilfelli (níu karlar og sex konur). Sjö fengu greininguna inflammatory pseudotumor, einn lymphoid hyperplasia (ótvírætt góðkynja útlit), fjórir atýpísk lymphoid hyperplasia (óvíst hvort góðkynja eða illkynja) og þrír lymphoma (ótvírætt illkynja útlit). Ellefu meinsemdir voru í augntóft, ein á augnlokum og þrjár annars staðar. PCR rannsókn var gerð á 14 sýn- um. Ellefu sýni voru fjölstofna (tvö atýpísk hyperplasia, fimm in- flammatory pseudotumor, þrjú lymphoma (tvö frá sama sjúklingi), eitt lymphoid hyperplasia), en þrjú sýni voru einstofna fyrir B frum- um (eitt lymphoma, eitt atýpísk hyperplasia, eitt inflammatory pseudotumor). Ályktanir: Pessar niðurstöður benda til þess að PCR aðferð við rannsóknir á þessum meinum sé lítt gagnleg og verður því áfram að leggja áherslu á að sýni af þessari gerð berist fersk á rannsóknar- stofu til að unnt sé að meta hvort þau séu einstofna eða fjölstofna. E 16 Einangrun örsmárra æða úr augnbotnum til að mæla áhrif carbonic anhydrasa blokkera Atli Jósefsson, Þór Eysteinsson, Fífa Konráösdóttir, Stefán B. Sigurðs- son Lífeðlisfræðistofnun, læknadeild HÍ Netfang: thore@rsp.is Inngangur: Carbonic anhydrasa hamlarar eins og dorzólamíð (Trusopt®, MSD) eru mikið notuð glákulyf til að lækka augnþrýst- ing. Nýlegar rannsóknir (1) gefa í skyn að þessi lyf geti aukið blóð- flæði til bæði sjóntaugar og sjónhimnu. Ymislegt hefur einnig kom- ið fram sem bendir til minnkunar á blóðflæði og þar með súrefnis- skorts í augnbotnum samfara gláku. Þessi blóðflæðisskortur gæti stafa af auknum þrýstingi inni í auganu það er eins konar utanað- komandi þætti sem dregur úr blóðflæði inn í augað og/eða sam- drætti í æðum í augnbotninum það er eins konar innri þætti sem hindri eðlilegt blóðflæði um æðarnar. Rannsóknir okkar beinist að síðarnefnda þættinum. 28 Læknablaðið / FYLGIRIT 40 2000/86

x

Læknablaðið : fylgirit

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.