Læknablaðið : fylgirit - 01.12.2000, Síða 72

Læknablaðið : fylgirit - 01.12.2000, Síða 72
■ ÁGRIP VEGGSPJALDA / X. VÍSINDARÁÐSTEFNA LÆKNADEILDAR HÍ vísbendingar til dæmis um tilvist IgA mótefna gegn Clq auk mótefna gegn kindablóðkornum. V 44 Er aukinn stýrður frumudauði í SLE sjúklingum og fyrst gráðu ættingjum þeirra, vegna galla í frumunum sjálfum eða miðlað af leysanlegum þætti í sermi? Kristín H. Traustadóttir', Gerður Gröndal2, Friðrika Harðardóttir', Ás- björn Sigfússon', Kristján Steinsson3, Kristján Erlendsson23 'Rannsóknastofa Háskólans í ónæmisfræði. 2Rannsóknastofan í gigtarsjúkdómum og ’lyflækningadeild Landspítala Hringbraut Netfang: kristtr@rsp.is Inngangur: í SLE sjúklingum eru fleiri T-eitilfrumur í stýrðum dauðafasa (apoptosis) í frumum sem eru mældar strax eftir einangr- un (tO) heldur en í heilbrigðum viðmiðunarhópi (control). I þessari rannsókn var þetta fyrirbæri kannað nánar. Settar voru upp þrjár aðskildar tilraunir þar sem í fyrsta lagi var kannað hvort aukin apoptosis við tO geti stafað af meðfæddum galla, sem komi einnig fram í fyrstu gráðu ættingjum án tillits til SLE einkenna. I öðru lagi var kannað hvort aukin apoptosis endurspegli frumugalla og mælist einnig eftir in vitro ræktun í einn, tvo og þrjá daga. í þriðja lagi var kannað hvort leysanlegur þáttur í sermi geti valdið aukinni apoptosis, sem þá væri hægt að flytja með serminu. Efniviður og aðferðir: I fyrstu tilraun var apoptosis mæld í 12 ein- staklingum sem allir voru úr sömu fjölskyldu. Til samanburðar voru 10 óskyld viðmið. í annarri tilraun voru mældir 12 SLE sjúklingar, þeirra makar og 10 óskyld viðmið. I þriðju tilraun voru sermi frá 10 SLE sjúklingum borin saman við sermi frá 10 óskyldum heilbrigð- um viðmiðum. Eitilfrumur voru einangraðar á Ficoll/Hisotopaq. Apoptosis var mæld í flæðifrumusjá með FITC-Annexin V. Til að fylgjast með gangi frumudauða var einnig gerð Propidium Iodide litun. Niðurstöður: Við tO var apoptosis marktækt aukin bæði í SLE sjúk- lingum og fyrst gráðu ættingjum þeirra miðað við viðmið. Eftir eins, tveggja og þriggja daga rækt er apoptosis aukin aðeins í SLE sjúk- lingum, en ekki í mökum þeirra eða viðmiðum. Apoptosis T frumna er hægt að flytja með sermi, því hún var marktækt meiri eft- ir 28 stunda rækt með sermi frá SLE sjúklingum en með sermi við- miða. Ályktanir: Þessi rannsókn bendir til að aukin apoptosis T frumna í SLE sjúklingum stafi af galla í frumunum sjálfum og geti auk þess verið miðlað af leysanlegum þætti í sermi. V 45 Stökkbrigði af Eschericia coli gatatoxínum (LT) örvar einkum myndun lgG2a og lgG3 mótefna eftir slímhúðarbólu- setningu með prótíntengdum pneumókokkafjölsykrum í músum Hávard Jakobsen', Dominique Schulz2, Rino Rappuoli3, ngileif Jónsdóttir' ‘Rannsóknastofa Háskólans í ónæmisfræöi, Landspítala Hringbraut, 2Aventis Pasteur, Marcy l'Etoile, Frakklandi, 3Immunobiology Research Institute Siena, Ítalíu Netfang: ingileif@rsp.is Inngangur: Við höfum sýnt fram á að slímhúðarbólusetning með prótíntengdum pneumókokkafjölsykrum (PNC) og ónæmisglæð- um vekur bæði staðbundið og útbreitt ónæmissvar og verndar mýs gegn ífarandi pneumókokkasýkingum. Fjölsykruhjúpurinn sem umlykur pneumókokka er aðalsýkiþáttur þeirra og eru mótefni gegn fjölsykrum, ásamt komplementum, mikilvægasta vörnin gegn pneumókokkasýkingum. Fjölsykrumótefni sem myndast við pneu- mókokkasýkingar eru einkunt IgG2 í mönnum (IgG3 í músum), en við bólusetningu með PNC svara bæði börn og mýs með fjölsykru- sértækum mótefnum af IgGl gerð. Með notkun ónæmisglæða við bólusetningu má vekja ónæmissvar sem líkist ónæmissvari við sýk- ingu. Afeitruð stökkbrigði af Escherichia coli gatatoxíni (LT) eru vel skilgreindir ónæmisglæðar sem vekja bæði Thl og Th2-líkt svar gegn prótínum, en virkni LT gegn PNC er hins vegar óþekkt. Efniviður og aðferðir: Við rannsökuðum samsetningu IgG undir- flokka gegn fjölsykrum og burðarprótíni í sermi eftir bólusetningu músa um nef með PNC. Tvö stökkbrigði af LT, LT-K63 og LT-R72, voru notuð sem ónæmisglæðar. Niðurstöður: Miðað við hefðbundna stungubólusetningu með PNC án ónæmisglæðis, olli nefbólusetning með PNC og LT-stökkbrigð- unum marktækri aukningu í IgG2a, IgG3 og IgA mótefnum, bæði gegn fjölsykrunum og burðarprótíninu, en magn IgGl mótefna var svipað. Þegar LT-stökkbrigðin voru notuð við stungubólusetningu fékkst svipað IgG undirflokkamynstur og við nefbólusetningu sem bendir til þess að aukningin í IgG2a og IgG3 hafi verið vegna LT fremur en bólusetningarleiðarinnar. Ályktanir: Þessar niðurstöður sýna að ónæmisglæða má nota til að stýra ónæmissvari gegn prótíntengdum pneumókokkafjölsykrum til að líkja eftir náttúrulegu ónæmissvari gegn fjölsykruhjúpuðum bakteríum. V 46 Áhrif vatns- og fituleysanlegra glýseríða á slímhimnu nefsins Sesseija Bjarnadóttir , Sveinbjörn Gizurarson' 3, Sighvatur S. Árnason2 'Lyfjaþróun hf., Geirsgötu 9,101 Reykjavik, 'Lífeölisfræðistofnun HÍ, 'lyfjafræöi- deild HÍ Netfang: sesselja@lyf.is Inngangur: Glýseríð eru nokkuð mikið notaðir í lyfjafræði, bæði sem frásogsaukandi efni, hjálparefni við gerð fleyta og dreifa og nú nýlega sem ónæmisglæðir eða ónæmisörfandi efni. Verkunarmáti þessa efnis er ekki þekkt en það glýseríð sem hefur reynst best sem ónæmisglæðir er nokkuð flókin blanda af mono og di caprylic/- capric glýseríð. Markmið verkefnisins er að kanna áhrif glýseríða á slímhimnu nefsins og verkunarmáta þess og þá sérstaklega mono og di caprylic/capric glýseríð sem og polyethylenglycol mono og di caprylic/capric glyceríð. Efniviður og aðferðir: Til að skoða áhrifin á slímhimnurnar, voru nasaslímhimnur einangraðar úr sex mánaða nýslátruðum grísum. Himnurnar voru geymdar í ískaldri Krebslausn þar til komið var á rannsóknarstofu. Þar var vefurinn skorinn og komið fyrir í þekju- straumsmælitæki (Ussing chamber). Krebslausn var sett í kerin og vefnum var leyft að jafna sig í 30-60 mínútur. Kerin voru loftuð með 95% súrefni og 5% koldíoxíði og hitastigi lausnarinnar haldið við því sem næst 37°C. Því næst var stigvaxandi styrk af tveimur gerðum glýseríða sett á mucosal-hlið slímhimnunnar og áhrifin á straum og spennu himnunnar mæld í allt að tvær klukkustundir. Niðurstöður og ályktanir: Glýseríðin hafa áhrif á jónastraum yfir slímhúð. Samhengi mælist milli styrks glýseríðanna og áhrifa á slím- himnuna en áhrif glýseríðafleiða á slímhimnuna verða kynntar á þinginu. Rannsóknin skýrir því að hluta hvernig hægt er að fá ó- næmisglæðandi áhrif af glýseríðum. 72 Læknablaðið / FYLGIRIT 40 2000/86
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Læknablaðið : fylgirit

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.