Læknablaðið : fylgirit - 01.12.2000, Blaðsíða 82
I ÁGRIP VEGGSPJALDA / X. VÍSINDARÁÐSTEFNA LÆKNADEILDAR HÍ
V 75 Greinótt (1—>3)- (5-D-glúkan með sterka /n vitro
antikomplementvirkni einangrað úr fléttunni Thamnoiia
vermicularis var. subuliformis
Elín Soffía Ólafsdóttir’, B. Smestad Paulsen2, K. Jurcic3, H. Wagner3
1 Lyfjafræðideild HÍ, 2Institute of Pharmacy, Dpt of Pharmacognosy, University of
Oslo, Osló, ’Central Pharmacy Research Institute, Pharmaceutical Biology, Uni-
versity of Miinchen, Butenandtstr. 5-13, D-81377 Miinchen, pýskalandi
Netfang: elinsol@hi.is
Innj>angur: Fjölsykrur einangraðar úr plöntum, sveppum og fléttum
hafa margar hverjar sýnl verkun á ónæmiskerfið svo sem
antikomplementvirkni og aukna átfrumuvirkni og auk þess krabba-
meinshemjandi og veiruhemjandi verkun (1-3). Markmið verkefn-
isins var að greina byggingu fjölsykru sem er að finna í tæplega 2%
magni í basaextrakti fléttunnar Thamnolia vermicularis var. subuli-
formis (ormagras) og að ákvarða hvort fjölsykran væri ónæmisvirk.
Efniviður og aðferðir: Fjölsykran Ths-2, var einangruð úr basa-
extrakti fléttunnar með etanólfellingu í þrepum og himnuskiljun.
Einsykrusamsetning hennar var greind með metanólýsu og GC og
gaf eingöngu glúkósu. Staðsetning og tegund tengja var greind með
metýleringsgreiningu og GC-MS. 11C- and 'H-NMR rafsegulgrein-
ing var notuð til að ákvarða gerð tengja og til að staðfesta byggingu
sykrueininga, tengingar þeirra og hlutföll.
Niðurstöður: Byggingin reyndist vera samsett af (1—>3)- (3-D-
glúkópýranósýl einingum nteð hliðarkeðjum við 06.
Ths-2 hefur því byggingu sem svipar mjög til byggingar tveggja
sveppafjölsykra, lentinan og schizophyllan, en þær hafa krabba-
meinshemjandi áhrif og hafa verið notaðar, samhliða meðferð með
krabbameinslyfjum, gegn krabbameini hjá mönnum, í Japan (1).
Virkni Ths-2 var prófuð í in vitro antikomplementprófi og reyndist
vel virk. Ætla má að Ths-2 hafi svipaða ónæmisvirkni og hinar á-
þekku sveppafjölsykrur lentinan og schizophyllan.
Heimildir
1. Wagner H, ed. Immunomodulatory Agents from Plants. Basel: Birkhauser
Verlag; 1999.
V 76 Efnagreining og veiruhemjandi verkun xýlan-fjölsykra úr
sölvum
Elín Soffía Ólafsdóttir', Lilja Dögg Stefánsdóttirl, Rökkvi Vésteinsson',
Guðmundur Bergsson2
'Lyfjafræðideild HÍ, !Líffræðistofnun HÍ
Netfang: elinsol@hi.is
Inngangur: Fjölsykrur, einangraðar úr þörungum, sveppum og ýms-
um plöntum, hafa sýnt áhugaverða ónæmisörvandi, æxlishemjandi
og veiruhemjandi verkun. Markmið verkefnisins var að einangra,
byggingarákvarða og kanna veiruhemjandi virkni helstu fjölsykra
rauðþörungsins Palmaria palmata (söl). Söl hafa verið notuð til
manneldis hér á landi að minnsta kosti frá dögum Egils Skalla-
grímssonar.
Efniviður og aðfcrðir: Þörungurinn var fyrst extraheraður með ó-
skautuðum leysum og metanóli, því næst með heitu vatni og að lok-
um með köldum basa. Fjölsykrur voru felldar með etanóli úr vatns-
og basaextrakti og síðan hreinsaðar og aðgreindar með jónskipta-
skiljun og gelsíun. Einsykrusamsetning var athuguð með sýru-
hýdrólýsu og TLC. Einsleitni fjölsykranna og mólþyngd var ákvörð-
uð með HP-GPC tækni, en bygging ásamt gerð og hlutföllum tengja
voru ákvörðuð með 'H-NMR og l3C-NMR kjarnsegulgreiningu.
Niðurstöður: 0,05-0,3% af mólþyngd sölvanna reyndist vera vatns-
leysanlegar xýlan-fjölsykrur með mólþyngd á bilinu 160-790 kD.
Tengingar á milli xýlósaeinsykranna eru J3-( 1 —>3) og þ-(l—>4) í hlut-
föllunum 1:3 (Pal-B-ng og Pal-B-alg) eða 1:2 (Pal-D-ng) eftir því
hvort fjölsykran var einangruð úr vatn- eða basaextrakti sölvanna.
In vitro veiruhamlandi virkni grófhreinsaðra og upphreinsaðra fjöl-
sykra úr P. palmata gegn HSV-I og HSV-II (Herpes simplex) veiru
var könnuð í Vero frumum og samhliða var athugað hvort fjöl-
sykrurnar hefðu eituráhrif á frumurnar. Fjölsykrurnar veittu 50-
90% vernd gegn frumuskemmdum af völdum veiranna í styrkjum á
bilinu 200-1000 mg/ml án þess að hafa eituráhrif á frumurnar. Nið-
urstöðurnar benda til að neysla sölva gæti hugsanlega leitt til vernd-
andi áhrifa gegn Herpes simplex veiru.
V 77 Líffræðileg virkni baeomycesínsýru úr ormagrösum
Kristín Ingólfsdóttir', Helga Ögmundsdóttir2, Ute Franck3, Gunnar M.
Zoéga’2, Guðrún F. Guðmundsdóttir', Hildebert Wagner3
Lyfjafræðideild HI, rannsóknastofa Krabbameinsfélags íslands í sameinda- og
frumulíffræði, Institute of Pharmaceutical Biology, Miinchen, Þýskalandi
Netfang: kring@hi.is
Inngangur: Plöntur sem þola erfið vaxtarskilyrði mynda oft nýstár-
leg efni sér til viðurværis og varnar, og geta slík efni verið áhugaverð
til skoðunar frá efnafræðilegu og lyfjafræðilegu sjónarhorni. Fléttan
Thamnolia subuliformis (Ehrh.) W. Culb., ormagrös, er slík planta,
en vaxtarlag hennar sem smáir, stakir þræðir, gerir söfnun í miklu
magni erfiða.
Efniviður og aðferðir: Baeomycesínsýra, tvíhringja fenól samband
((3-orcinol depsíð), var einangruð úr T. subuliformis og staðfesting á
hreinleika og efnabyggingu fengin með TLC, IR, H NMR, C NMR
og MS greiningum. Á grundvelli efnabyggingar var virkni ba-
eomycesínsýru könnuð í völdum in vitro prófunum.
Áhrif á efnaskipti arakídonsýru voru könnuð með því að mæla
hindrunar virkni á 5-lípoxygenasa, cyklóoxygenasa-1 og cyklóoxy-
genasa-2.
Niðurstöður: Niðurstöður sýndu að baeomycesínsýra hindrar
virkni 5-lípoxygenasa með skammtaháðum hætti (IC« = 8,3 pM) án
þess að letja cyklóoxygenasa. í fyrri rannsóknum á fléttuefnum höf-
um við séð fylgni milli 5-lípoxygenasa hindrunar og vaxtarhindr-
andi áhrifa á illkynja mannafrumur í rækt. Til að kanna hvort uffl
slík tengsl geti verið að ræða hjá baeomycesínsýru voru áhrif henn-
ar á brjóstakrabbameinsfrumur (T-47D) og hvítblæðifrumur (K'
562) könnuð með því að mæla upptöku frumnanna á geislamerktu
thymidíni. Baeomycesínsýra dró verulega úr vexti brjóstakrabba-
meinsfrumnanna, með ED» gildi 20 pg/ml, en hafði lítil áhrif á hvft'
blæðifrumurnar. Verið er að prófa virkni baeomycesínsýru á aðrar
illkynja frumulínur svo og á eðlilegar frumur.
Ályktanir: Niðurstöður in vitro mælinga á hindrandi virkni gegn
angiotensín converting enzyme (ACE) sýna, að baeomycesínsýra er
miðlungshindri með IC* gildi 200 pM. Baeomycesínsýra er óviÁ
gegn sveppum og Gram jákvæðum/neikvæðum bakteríum.
82 Læknablaðið / FYLGIRIT 40 2000/86