Læknablaðið : fylgirit - 01.12.2000, Síða 84

Læknablaðið : fylgirit - 01.12.2000, Síða 84
■ ÁGRIP VEGGSPJALDA / X. VÍSINDARÁÐSTEFNA LÆKNADEILDAR HÍ V 81 Etanól í blóði eftir drykkju léttöls (2,25% v/v) Kristín Magnúsdóttir, Þorkell Jóhannesson Lyfjafræðistofnun, Rannsóknastofa í lyfja- og eiturefnafræði HÍ, Ármúla 30,108 Reykjavík Netfang: kristmag@hi.is Inngangur: Tilraunin á að sýna, hve mikið etanól gæti verið í blóði manna, sem drykkju á skömmum tíma 0,5 1 af léttöli (2,25% v/v) á fastandi maga, en léttöl telsl ekki til áfengra drykkja. Efniviður og aðferðir: Tilraunaþolar voru 12 (átta konur og fjórir karlar). Tilraunin fór fram að morgni og höfðu tilraunaþolar verið fastandi í að minnsta kosti átta klukkustundir. Tilraunaþolar voru á aldrinum 24-63 ára og vógu 47-100 kg. Etanól var ákvarðað í blóði áður en drykkja hófst, um leið og henni lauk og síðan þrisvar sinn- um á 10 mínútna fresti,þá tvisvarsinnum á 15 mínútna fresti ogloks þrisvar sinnum á 20 mínútna fresti. Alls voru því tekin 10 blóðsýni. Var síðasta sýnið tekið 120 mínútum (tveimur klukkustundum eftir að drykkju lauk. Niðurstöður: Þéttni etanóls í blóði var ákvörðuð með gasgreiningu. Niðurstöður sýndu, að í öllum tilvikum nema einu var þéttni etanóls mælanleg í blóði við lok drykkju. Þéttnin óx síðan hratt og náði há- marki 15-30 mínútum síðar. Hámarksþéttni var á bilinu 0,09-0,28%o. í öllum tilvikum nema fjórum (þrír karlar og ein kona) var etanól enn mælanlegt (0,02-0,08%o) 100 mínútum eftir að drykkju lauk. Allir tilraunaþolar töldu sig finna skammvinn áfengisáhrif stutta stund um það bil á sama tíma og þéttni etanóls var í hámarki. Alyktanir: Rætt hefur verið um að lækka sektarmörk vegna ölvun- araksturs úr 0,5%o í 0,2%o eða minna. Niðurstöður þessar sýna að ekki er ráðlegt að lækka þessi mörk niður fyrir 0,3%o. Að öðrum kosti verður að telja léttöl til áfengra drykkja eða vara ökumenn við neyslu þess. V 82 Framieiðsla á bóluefni gegn kókaíni og áhrif þess á dreifingu kókaíns til miðtaugakerfisins Kolbrún Hrafnkelsdóttir, Jón Valgeirsson, Sveinbjörn Gizurarson Lyfjafræöideild HÍ, Lyfjaþróun hf, Reykjavík Netfang: kolbrun@lyf.is Inngangur: Misnotkun kókaíns byggir á flutningi efnisins yfir til heilans þar sem það örvar starfsemi hans og veldur vímu. Ef dreif- ing kókaíns til miðtaugakerfisins er hindruð ætti að vera hægt að koma í veg fyrir þessi áhrif efnisins. Því er mikilvægt að finna leið til að koma í veg fyrir flutning kókaíns yfir til heila og hjálpa þannig sjúklingum sem háðir eru efninu. Markmið verkefnisins er að útbúa bóluefni sem virkjar ónæmis- kerfið gegn kókaíni, örva það til framleiðslu sérhæfðra mótefna sem binda kókaín og hindra þannig flutning þess til miðtaugakerfis- ins. Efniviður og aðferðir: Kókaínsameindir voru tengdar við burðar- prótínið og ónæmisvakann KLH (keyhole limpet hemocyanin). Síðan voru notaðir ónæmisglæðar til að örva mótefnaframleiðsluna enn frekar. Gerðar voru tvær samsetningar af bóluefninu, ein til bólusetningar á nefslímhúð og önnur til bólusetningar í kviðarhol. Bóluefnin voru prófuð á dýrum og sérhæfð mótefnasvörun þeirra í blóði eflir bólusetningu var mæld með ELISA. Átta vikum eftir upphafsbólusetningu var dýrunum gefið 3H-kókaín og dreifing þess um líkamann skoðuð með því að mæla styrk þess í sermi og heila. Niðurstööur: Bólusettar mýs höfðu hærri styrk sérhæfðra mótefna gegn kókaíni og einnig mældist minna magn kókaíns í heila þessara dýra en hjá viðmiðunarhópnum. Ályktanir: Því verður að teljast að tekist hafi að útbúa aðferð sem hindrar flutning kókaíns yfir til heila. V 83 Tengsl sjálfsvíga og neyslu ávana- og fíkniefna 1995- 1999 Jakob Kristinsson , Gunnlaugur Geirsson Rannsóknastofa í lyfja- og eiturefnafræði Hll, Rannsóknastofa í réttarlæknisfræði HÍ2 Netfang: jakobk@hi.is Inngangur: Greint er frá afturskyggnri rannsókn á niðurstöðum réttarlæknisfræðilegra og réttarefnafræðilegra rannsókna á sjálfs- vígum á tímabilinu 1995-1999. Markmið rannsóknarinnar var: a) Að skoða hve oft sjálfsvíg væru tengd neyslu amfetamíns, benzó- díazepínsambanda, kannabis, kókaíns, morfínlyfja og etanóls. b) Að athuga hve margir hinna látnu væru ávana- og fíknefnaneytendur samkvæmt fjölþjóðlegum staðli. c) Að meta gagnsemi skimunar eft- ir ávana- og fíkniefnum við rannsóknir á sjálfsvígum. Elniviðiir og aðferðir: Rannsóknin náði til 105 karla (meðalaldur 40,2 ár) og 29 kvenna (meðalaldur 41,1 ár). Fjörutíu og sjö höfðu svipt sig lífi með hengingu, 30 með útblásturslofti bifreiða, 22 með skotvopni, 13 með töku lyfja, níu með drekkingu, sex með falli af háum stað, fjórir með kæfingu og þrír með öðrum aðferðum. Farið var yfir krufningaskýrslur, lögregluskýrslur og skýrslur um réttar- efnafræðilegar rannsóknir á sjálfsvígum á tímabilinu. Skráður var aldur og kyn hins látna, sjálfsvígsaðferð, niðurstöður réttarefna- fræðilegra rannsókna og saga um neyslu ávana- og fíkniefna. Niðurstöður: Rannsóknir reyndust ófullnægjandi í 10 tilvikum. Á- stæðan var óupplýst í fjórum tilvikum, í þremur tilvikum vantaði sýni eða þau voru ónothæf og í þremur tilvikum var lagst gegn rann- sókn af hálfu lögreglu. Ávana- og fíkniefni og/eða etanól fundust í 57 tilvikum (46,0%). Þar af voru ávana- og fíkniefni eða lyf í 32 (25,8%) og etanól í 38 (30,6%). Benzódíazepínsambönd komu fyr- ir í 13 tilvikum (10,5%), amfetamín (þar með talið MDMA) í 12 (9,7%), morfínlyf í níu (7,3%), kannabínóíðar í átta (6,5%) og kókaín í einu (0,8%). Átján einstaklingar (14,5%) greindust sem á- vana- og fíkniefnaneytendur samkvæmt staðli. Sú ályktun var dreg- in af niðurstöðunum að við rannsóknir á sjálfsvígum sé skimun eft- ir ávana- og fíkniefnum jafn mikilvæg og skimun eftir etanóli. V 84 Áreiðanleiki neyslusögu ungs fólks á aldrinum 15-24 ára við komu á sjúkrahús SÁÁ í Vogi Elísabet Sóibergsdóttir', Guðbjörn Björnsson2, Jakob Kristinsson', Þórarinn Tyrfingsson2, Þorkell Jóhannesson' 'Lyfjafræðistofnun, Rannsóknastofa í lyfja- og eiturefnafræði HÍ, Ármúla 30,108 Reykjavík, 'Sjúkrahús SÁÁ Vogi Netfang: betajona@hi.is Inngangur: Tilgangur rannsóknarinnar var tvíþættur. í fyrsta lagi að afla sem áreiðanlegastra upplýsinga um vímuefnaneyslu ungs fólks á aldrinum 15-24 ára, sem lagt er inn á sjúkrahúsið Vog til afeitrun- ar. í öðru lagi að kanna hversu áreiðanlegar neyslusögur sjúklinga eru. Flestar rannsóknir um vímuefnaneyslu ungs fólks eru eingöngu byggðar á neyslusögu þess við innlögn á meðferðarstofnanir eða komu þeirra á göngudeildir. 84 Læknablaðið / FYLGIRIT 40 2000/86
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Læknablaðið : fylgirit

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.