Frjáls verslun - 01.01.2009, Qupperneq 21
F R J Á L S V E R S L U N • 1 . T B L . 2 0 0 9 21
fjármálagerningar og vafningar sem hafa verið
í gangi ekki alltaf samastað í skattalögum.“
En breytinga er þörf að mati Elínar: „Ég
vona að menn taki skattalögin til endurskoð-
unar. Þau gera ekki ráð fyrir því ástandi sem er
núna í þjóðfélaginu og í ljós eru að koma ann-
markar í lögunum sem ekki voru fyrirsjáan-
legir. Það er verið að breyta lögum og reglum
í þessu ástandi sem ríkir og skattalögin eiga
ekki að vera undanskilin enda hefur komið í
ljós að á einstaka sviðum geta þau verið óréttlát
eins og t.d. í meðferð söluhagnaðar hlutabréfa.
Hverjum hefði dottið í hug fyrir ári síðan að
bankarnir væru að semja við fyrirtækin sem
voru í viðskiptum við þá, til þess eins að halda
þeim gangandi? Slíkir samningar fela oft í sér
að verið er að gefa eftir skuldir og samkvæmt
skattalögunum getur eftirgjöf á skuldum
myndað skattskyldar tekjur. Það sama getur
gerst hjá einstaklingum sem eiga hlutabréf
sem eru einskis virði í dag. Þeir geta þurft að
greiða skatt af söluhagnaði á árinu án þess að
geta dregið þetta tap frá, þar sem samkvæmt
skattalögum er ekki um sölutap að ræða.
Einnig þyrfti að kveða skýrt á um að eftirgjöf
skulda hjá einstaklingum myndi ekki skatt-
skyldar tekjur; í dag er það undanþegið en ein-
göngu ef eftirgjöfin er vegna nauðasamninga
viðkomandi. Það þarf að vera hægt að koma
til móts við fólk án þess að fara hina formlegu
leið nauðasamninga og gjaldþrota. Nú er t.d.
spurning hvort hið sama gildi um „greiðsluað-
lögunina“ sem boðuð hefur verið. Þau úrræði
kunna að verða algerlega marklaus ef ekki er
tekið tillit til þeirra skattalega.
Ég vil einnig sjá frjálsari túlkun í sambandi
við ívilnunarheimildir skattalaga. Það er að
heimild til lækkunar á tekjuskattsstofni ein-
staklinga vegna allskonar áfalla verði rýmd. Í
ívilnunarheimildum eru m.a. talin upp veik-
indi, eignatjón og slys en ekkert skilgreint
í því áfalli sem fólk hefur orðið fyrir í þeim
hremmingum sem nú hafa dunið yfir okkur,
hjá sumum algjört fjárhagslegt hrun. Stað-
reyndin er sú að ívilnunarheimildir eru yfir-
leitt túlkaðar mjög þröngt og skattyfirvöld
taka það ekki upp hjá sér að rýmka reglurnar.
Sú rýmkun verður að koma til í formi laga-
breytinga eða reglugerða þar sem kemur skýrt
fram hver ívilnunin má vera.
Það væri efni í langa grein að telja upp allt
sem betur má fara í skatta-
lögunum, bæði hvað varðar
tekjuskatt og virðisauka-
skatt. Við megum ekki
gleyma því að skattkerfið er
eitt mikilvægasta tæki rétt-
arríkisins. Þetta er vand-
meðfarið og afar brýnt er að
réttlætis sé gætt, fólki ekki
mismunað og að skattar verði ekki ósann-
gjarnir, reynslan sýnir að þá verður bara meira
um undanskot og skattsvik. Ekki má gleyma
því að nýta má skattareglur til að ýta undir
nýsköpun og ýmiskonar frumkvöðla- og
þróunarstarf. Þá hefur í mörg ár verið barist
fyrir úrbótum í skattalögum til að laða hingað
erlent fjármagn – en það er kannski tómt mál
að tala um slíkt í dag.
endurskipulagning fyrirtækja
Hagur fyrirtækja og einstaklinga hefur breyst
mikið á síðustu mánuðum og Elín býst við
að margt verði öðruvísi en verið hefur hjá
mörgum þegar kemur að skattframtalinu:
„Mikil þörf er nú á heildarendurskipulagn-
ingu fyrirtækja, allt þarf að stokka upp og
skoða hvar megi skera niður og spara. Einnig
þarf fólk að horfa meira í heimildir sem það
getur nýtt sér til lækkunar á tekjuskattsstofn-
inum sem þýðir kannski að möguleiki er á
endurgreiðslu á hluta af því sem búið er að
staðgreiða.
PricewaterhouseCoopers vinnur fyrir mörg
af stærstu fyrirtækjum og
fjármálastofnanir lands-
ins. „Við sinnum jafnframt
ýmissi ráðgjöf í tengslum við
nauðasamninga, greiðslu-
stöðvanir og gjaldþrot en
hætta er á að verðmæti fari
forgörðum auk þess sem
menn geta bakað sér bæði
skaðabóta- og refsiábyrgð ef ekki er rétt að
málum staðið. Einnig finnum við fyrir mik-
illi þörf fyrir aðstoð við að semja við lánafyr-
irtæki, sumir samningar sem fólk hefur verið
að gera eru svo flóknir or margslungnir að erf-
itt er að segja fyrir um afleiðingar þeirra.
Í bígerð er heildarendurskipulagning á
starfsemi banka, fjármálastofnana sem og
margra annarra fyrirtækja, stórra sem smárra.
Í þessu felast óneitanlega ýmis tækifæri og ný
fyrirtæki munu koma fram. Vonandi verður
þessi vinna til þess til að koma hjólunum af
stað í atvinnulífinu sem allra fyrst.“
Miklar breytingar
eru framundan í
þjóðfélaginu og þar
ættu skattalögin ekki
að vera undanskilin.
skógarhlíð 12 105 reykjavík
sími: 5505300 netsíða: www.pwc.com/is