Frjáls verslun - 01.04.2009, Blaðsíða 55
F R J Á L S V E R S L U N • 3 . T B L . 2 0 0 9 55
70 ára
haft aðstöðu hjá Hagfræðistofnun Háskóla Íslands sem hefur verið
mér mjög kærkomið. Síðustu misserin hef ég aðallega verið að skrifa
greinar um námsár mín í Svíþjóð og tekið þátt í nokkrum mál-
stofum. Síðast var ég með fyrirlestur í apríl á þessu ári í Vísindafélagi
Íslendinga sem hét Í leit að staðfestu og fjallaði um þróun peninga-
mála frá því Ísland varð fullvalda.“
Nauðsynlegt að ganga í Evrópusambandið
Jónas segist hafa fylgst allvel með því sem gerst hefur í kjölfar banka-
hrunsins. „Ég og Einar Benediktsson, fyrrverandi sendiherra, skrif-
uðum í fyrrasumar, rétt áður en hrunið átti sér stað, nokkrar blaða-
greinar þar sem við hvöttum stjórnvöld til að sækja þegar í stað um
aðild að Evrópusambandinu í því augnamiði að taka upp evru.
Mín skoðun er sú að það hafi verið mikil mistök þegar Ísland
gekk inn í Evrópska efnahagssvæðið í stað þess að ganga beint í Evr-
ópusambandið. Við vorum í EFTA, og það gekk vel, en þegar kom
að því að EFTA-löndin vildu sameinast Evrópusambandinu upp úr
1990 kusu íslensk stjórnvöld að ganga frekar í undirdeildina EES.
Með því var í raun tekið við öllu Evrópusambandsbatteríinu, nema
sjávarútvegs- og landbúnaðarstefnum, auk þess sem við vorum utan
myntsamstarfsins og þess öryggis sem það veitir. Ég held að staða
okkar núna væri mun betri hefðum við gengið strax í Evrópusam-
bandið upp úr 1990.
Satt best að segja lít ég svo á að Íslendingar hafi löngum verið úti á
þekju með samskipti sín við umheiminn og við hneigjumst til að líta
svo á að best sé að einangra sig sem mest. Þetta er ekki farsæl afstaða,“
segir Jónas H. Haralz að lokum.
„Ég dvaldi hér um
bil eitt ár í mexíkó og
skrifaði bók, ásamt
fleirum, sem fjallaði
um efnahagsmál
landsins.“
Nafn: Jónas H. Haralz.
Fæddur: 6. október 1919.
Makar: Guðrún Þorgeirsdóttir
og sylvia Matthews.
Sonur: Halldór Haralz viðskipta-
fræðingur. Hann er giftur Gyðu
rafnsdóttur og eru börn þeirra
Jónas Halldór Haralz og Guðrún
Gyða Haralz.
Stjúpbörn: kathleen Matthews
og philip Matthews.
Guðrún og Jónas H. Haralz ásamt Edith Waterrton (t.h), eiginkonu Alberts Waterrton,
samstarfsmanns Jónasar, á ferð í Mexíkó árið 1951 á vegum Alþjóðabankans.
Sonurinn, Halldór Haralz, 2ja ára í Honduras árið 1955 þegar Jónas H.
Haralz var fulltrúi Alþjóðabankans þar í landi.