Frjáls verslun - 01.04.2009, Blaðsíða 29
F R J Á L S V E R S L U N • 3 . T B L . 2 0 0 9 29
70 ára
Hagsagan í 70 ár
1944:
Lýðveldið Ísland
lýðveldið var stofnað. fátæk eyþjóð norður í hafi
var orðin sjálfstæð og horfði björtum augum til
framtíðar og fram á efnahagslegan bata. Þetta
var þjóð sem hafði haft lifibrauð sitt af fiskveiðum
og landbúnaði en í stríðinu tók hún stór skref í
iðnaði og verslun með aukinni tækniþekkingu og
verkkunnáttu.
1945:
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn
alþjóðagjaldeyrissjóðurinn var stofnaður 27. desember
árið 1945. stofnaðilar voru 29 lönd. í stofnskrá sjóðsins
kom fram að tilgangur hans var að greiða fyrir alþjóða-
viðskiptum og, eins og hið formlega enska nafn bank-
ans gefur til kynna, að stuðla að enduruppbyggingu eftir
seinni heimsstyrjöldina. ísland var í hópi þeirra 29 ríkja
sem tóku þátt í stofnun alþjóðagjaldeyrissjóðsins. frá stofnun hefur ísland fimm
sinnum tekið lán, síðast í nóvember 2008.
1940 - 1945:
Stríðsárin
– 10% hagvöxtur á ári
stríðið breytti lífsskilyrðum þjóðarinnar til
hins betra og til frambúðar. Þjóðin var að vísu
áfram fátæk þrátt fyrir verulegan stríðsgróða. í
skýrslum Hagstofunnar má sjá að árlegur með-
alvöxtur þjóðartekna á árunum 1939 til 1945
var um 10%. Það er mesta einstaka hagvaxt-
arskeið í sögu þjóðarinnar.
Emil Jónsson, Finnur Jónsson, Ólafur Thors, Sveinn Björnsson forseti
Íslands, Pétur Magnússon, Áki Jakobsson, Brynjólfur Bjarnason.
1944:
Nýsköpunarstjórn Ólafs Thors
ríkisstjórn björns Þórðarsonar, sem var utanþingsstjórn, sat að völdum
frá 1942 og fram til 16. desember 1944. Það var því utanþingsstjórn á
íslandi þegar lýðveldið var stofnað.
fyrsta ríkisstjórn lýðveldisins sem studdist við þingræðislegan
meirihluta var önnur ríkisstjórn ólafs thors. Þessi stjórn er gjarna nefnd
nýsköpunarstjórnin. að henni stóðu sjálfstæðisflokkur, sósíalistaflokkur
og alþýðuflokkur. fyrsta ríkisstjórn ólafs thors sat í um hálft ár árið 1942,
eða frá maí til desember það ár. Hún var ríkisstjórn sjálfstæðisflokksins.