Frjáls verslun - 01.04.2009, Blaðsíða 61
F R J Á L S V E R S L U N • 3 . T B L . 2 0 0 9 61
1. Lækkun bankavaxta: Skipun frá banka-
málaráðherra til ríkisbankanna um að
lækka vexti niður í 5%. peningastefnunefnd
Seðlabankans mun þá neyðast til að lækka
stýrivexti, þannig að þeir verði í samræmi
við aðstæður í efnahagslífinu.
Samkvæmt AGS á skammtímamarkmið
peningastefnunnar að vera stöðugleiki í
gengismálum. AGS hefur m.ö.o. sett pen-
ingastefnunefnd Seðlabankans markmið
sem hagkerfið mun ekki ná, þar sem við-
skipti með krónuna eftir fall bankanna
munu alltaf verða of lítil til að koma í veg
fyrir að verð- og magnbreytingar á mörk-
uðum fyrir sjávarafurðir komi fram í
óstöðugu gengi.
2. Endurskipulagning bankakerfisins:
ljúka verður endurskipulagningu bankakerf-
isins, þannig að stærð nýju bankanna verði
sem mest í samræmi við innlend innlán.
Jafnframt þarf að stofna eignaumsýslufélag
sem getur tekið yfir vanskilalán í lífvæn-
legum fyrirtækjum. Eignaumsýsla banka
leiðir til hagsmunaárekstra og tryggir ekki
gagnsæi við ákvarðanatöku m.a. vegna
bankaleyndar.
3. Skattur á útstreymi fjármagns:
Afnema þarf gjaldeyrishöftin og leggja skatt
á útstreymi fjármagns. leggja á 30% skatt
á útstreymi fjármagns yfir ákveðna upphæð.
Skatturinn lækkar síðan í 10% eftir þrjú ár
eða árið 2012.
tilgangur slíkrar skattlagningar er tví-
þættur. Í fyrsta lagi að koma í veg fyrir frek-
ara gengishrun og kjararýrnun. Í öðru lagi
að afla ríkinu tekna til að fjármagna hall-
ann af völdum fjármálakreppunnar. talið er
að fjármagn t.d. erlendra aðila (jöklabréf
og ríkisskuldabréf) séu um 550 milljarðar.
30% skattur á þessa upphæð myndi þýða
165 milljarða í tekjuauka fyrir ríkissjóð en
auðvita myndi þetta fjármagn aldrei fara allt
út í einu.
Stytting vinnuviku
4. Réttur allra til vinnu: Innleiða verður
réttinn til vinnu eftir 3-6 mánaða atvinnu-
leysi til að koma í veg fyrir fátækt og
félagslegan óstöðugleika. Gera verður fyr-
irtækjum og stofnunum kleift að ráða fólk af
atvinnuleysisskrá tímabundið með stuðningi
Atvinnuleysistryggingasjóðs.
Auk þess þarf að fara í samstarf við
aðila vinnumarkaðarins um styttingu vinnu-
vikunnar (úr 45 í 40 stundir hjá þeim sem
eru í fullu starfi) og um sveigjanleg starfslok
fyrir þá sem þess óska.
5. Leiðrétting fasteignalána: Grípa
verður til almennrar aðgerðar til að leiðrétta
hækkun fasteignalána. Markmið aðgerð-
arinnar er að draga úr eignatilfærslu frá
skuldurum til fjármagnseigenda sem varð
gegnum verðtrygginguna í kjölfar óvænts
verðbólguskots síðustu mánaða.
Útrásarandinn ræður enn
„Það sem kemur mest á óvart þegar litið
er til baka, er hversu mikil sátt hefur ríkt
í samfélaginu um aðgerðir ríkisstjórnar
Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar,“ segir
lilja. „Þær tryggðu fyrst og fremst rétt fjár-
magnseigenda til eigna sinna eftir banka-
hrunið.
Innstæður hafa verið tryggðar að fullu,
eignir í peningamarkaðssjóðum ofmetnar og
ekki náðist samstaða á þingi um að frysta
eignir auðmanna sem áttu þátt í falli einka-
bankanna.“
lilja segir að sjö mánuðum eftir hrunið
séu engin áform uppi um að horfið verði af
þessari braut, þrátt fyrir háværar kröfur um
réttlæti og aðgerðir sem jafna betur skulda-
byrðar fjármálakreppunnar.
„Samfélagið er enn fast í gildum
útrásarinnar sem birtast m.a. i skoðunum
eins og hver sé sinnar (ó)gæfusmiður og
ekki megi þrengja að útrásarvíkingunum,
fjármagnseigendum og öðru hátekjufólki,“
segir lilja. „óánægja meðal þeirra sem
misst hafa vinnuna, orðið gjaldþrota og eru
að kikna undan skuldabyrðinni fer vaxandi
og spurningin hvort koma þurfi til óeirða
áður en sátt næst um að dreifa byrðunum
með sanngirni, jöfnuð og réttlæti að
leiðarljósi.“
lilja Mósesdóttir segir að á tímum fjármálakreppu þurfi að
grípa til aðgerða sem tryggi bæði „efnahagslegan og félags-
legan stöðugleika“. Ráðin sem hún gefur eru:
LiLJa MóSESdóttiR, HAGFRæðINGuR
OG ÞINGMAðuR VINStRI GRæNNA:
fyrirSkipa
lækkun vaxta
hjá rÍkiSbönkum
Lilja Mósesdóttir, hagfræðingur og þing-
maður VG.