Frjáls verslun - 01.04.2009, Blaðsíða 131
F R J Á L S V E R S L U N • 3 . T B L . 2 0 0 9 131
4 stórir og 1 MiNNi Mig
Mest seldi bíll allra tíma er Toyota Corolla sem kom
á markaðinn 1966, en 33 milljón Corollur hafa selst
síðan. Næstur er Ford F serían en tæplega 33 millj-
ónir hafa verið framleiddir síðan 1948. Volkswagen
Golf kom fyrst á markaðinn þjóðhátíðarárið 1974
og síðan hafa 28 milljónir rúllað af færibandinu.
Fjórði er Bjallan frá sama framleiðanda, en á árunum
1938 til 2005 voru 22 milljónir og 300 þúsund VW
bjöllur gerðar. Tveimur og hálfri milljón fleiri en Ford
Escortinn sem var framleiddur á árunum 1968 til
2000. Nokkru neðar, eða með rúmlega 17 milljón
bíla, er Honda Civic sem hefur verið framleiddur síðan
1972.
Q5 er bráðskemmtilegur jepplingur frá Audi. Hann er
önnur bifreiðin frá Audi sem notar MPL-botnplötuna, hinn
er A5, nýi spennandi coupe-bíllinn. Fjöðrunin, fjórhjóla-
drifið er frábært á þessum millistærðar jepplingi, stýrið
er þungt, jafnvel of þungt í byrjun. En eftir að hafa ekið
bílnum nokkur hundruð kílómetra er niðurstaðan sú að
þetta er eitt besta stýri, grip, sem ég hef prófað í langan
tíma. Allur frágangur á bílnum er til fyrirmyndar. Öll stjórn-
tæki á hárréttum stað. Framsætin eru frábær, aftursætin,
fullkomin fyrir tvo, þröng fyrir þrjá. Skottið mætti og ætti
að vera stærra. Útlitið er lágstemmt, næstum því einum
of. Ekki fallegasti bílinn sem Audi hefur sent frá sér
nýlega. Hljóðeinangrun bílsins er frábær, það heyrist nær
ekkert vind- og vegahljóð. Kostur þegar lagt er af stað í
langferð, en þar nýtur hann sín best. Hann er eins og vilj-
ugur klár; Vill og getur farið hratt yfir. Qúl jepplingur.
Bara sMart
Smart fortwo bíllinn frá Mercedes Benz er nú að koma
í dísilútgáfu. Cdi-útgáfan er umhverfisvænsti og eyðslu-
minnsti bíll sem framleiddur er nú í heiminum. Eyðslan
er komin undir 3 lítra á hundraðið. Með start-stopp bún-
aði mælist bílinn með 2,9 l/100 km samkvæmt stöðlum
Evrópusambandsins. Vélin er 45 hestöfl, alveg nóg fyrir
svona littla og netta bifreið. Einn helsti kosturinn er að það
er hægt að leggja honum, næstum hvar sem er, jafnvel
þvert í stæði. Þótt díseltankurinn sé lítill er hægt að komast
1100 kílómetra á fyllingu, eða frá London til Prag, eða frá
Reykjavík, og suðurleiðina um Höfn, fyrir Austfirðina og alla
leið á bensínstöðina í Varmahlíð. Þaðan kostar um þúsund
kall í bæinn.
Qúl og klár