Frjáls verslun - 01.04.2009, Blaðsíða 135
F R J Á L S V E R S L U N • 3 . T B L . 2 0 0 9 135
Now, var ekkert annað en hneyksli. Og ef nánar er farið út í gæði
kvikmyndanna sem tilnefndar voru þá er All That Jazz í leikstjórn
Bobs Fosse mun merkilegri kvikmynd en Kramer vs. Kramer sem
fékk níu tilnefningar og fimm óskara. Apocalypse Now fékk aðeins
tvo óskura í minniháttar flokkum og All That Jazz fjóra óskara.
Þær tvær kvikmyndir sem fengu að fljóta með í tilnefningunni um
bestu kvikmyndina eru Breaking Away og Norma Rae, en þær áttu
enga möguleika.
Jafnræði er með þeim kvikmyndum sem tilnefndar voru sem
besta kvikmynd fyrir árið 1989, engin skaraði fram úr en voru þess
virði að fá tilnefningu. Þessar myndir eru Born on the Fourth of July,
Dead Poets Society, Driving Miss Daisy, Field of Dreams og My Left
Foot. Sigurvegarinn var Driving Miss Daisy sem fékk níu tilnefn-
ingar og fjóra óskara.
American Beauty var vel að óskarnum komin fyrir árið 1999.
Sterk og áhrifamikil kvikmynd sem hreyfði við flestum. Hún fékk
verðuga samkeppni frá annari frumlegri og merkilegri kvikmynd,
The Sixth Sense. Þær þrjár myndir sem fengu að fljóta með eru The
Insider, The Cider House Rules og The Green Mile. American Beauty
fékk fimm óskara af átta tilnefningum.
Markaðssetning skiptir máli
Það kemur ekki í ljós fyrr en í mars á næsta ári hvaða kvikmynd
þykir hafa skarað fram úr á þessu ári en öfugt við árið 1939, þegar
kvikmyndaáhugamenn þurftu að bíða í fjögur ár eftir Gone with
the Wind, þá má telja öruggt að búið verði að sýna hana í kvik-
myndahúsum hér á landi þegar kemur að verðlaunaafhendingunni.
Óskarsverðlaunamyndin fyrir 2008, Slumdog Millionaire, var búin
að ná miklum vinsældum hér á landi, sem og annars staðar í heim-
inum, þegar hún var valin besta kvikmyndin og var vel að þeim
sigri komin. Er markaðssetning Slumdog Millionaire er dæmigerð
fyrir markaðssetningu kvikmyndar sem þykir líkleg til óskarsverð-
launa. Þær reglur gilda varðandi óskarinn að það verður að vera
búið að sýna kvikmynd fyrir árslok svo hún sé tekin gild í forvalið.
Og þar sem líklegra þykir til árangurs að vera með kvikmynd í sýn-
ingu meðan akademían er að velja tilnefningar, eru þær kvikmyndir
sem framleiðendur vilja að komi til greina sýndar fyrir fáeina áhorf-
endur fyrir áramót en síðan teknar til almennra sýninga í janúar og
febrúar. Þannig var markaðssetning Slumdog Millionaire. Líklegt er
því að við eigum eftir að berja augum þá kvikmynd sem þykir sig-
urstranglegust fyrir árið 2009.
1979 Kramer vs. Kramer
1989 Driving Miss Daisy
1999 American Beauty
2009 Slumdog Millionaire
70 ára