Frjáls verslun - 01.04.2009, Blaðsíða 100
100 F R J Á L S V E R S L U N • 3 . T B L . 2 0 0 9
70 ára
skipst á kveðjum
Við eigum samleið
C M Y CM MY CY CMY K
FYRIRTÆKJALAUSNIR VALITOR • Laugavegi 77 • 101 Reykjavík • Sími: 525 2080 • fyrirt@valitor.is • www.valitor.is
Við bjóðum veflausnir og posa í erlendum gjaldmiðlum!
Þú getur selt erlendum ferðamönnum vörur og þjónustu í
erlendum gjaldmiðlum* og færð þá gert upp í sama gjaldmiðli.
*EUR, GBP, USD og DKK
V
ALITOR hét áður
Greiðslumiðlun hf.
og fagnaði 25 ára
afmæli á síðasta ári.
Upprunann má rekja til VISA
Íslands sem stofnað var í apríl
1983. „Hér á landi hefur byggst
upp gríðarlega öflugt rafrænt
greiðslumiðlunarkerfi með
kortum og hefur fyrirtækið átt
mikinn þátt í að koma því á,“
segir Höskuldur H. Ólafsson
forstjóri. „Hér er nánast seðla-
laust samfélag og greiðslumiðl-
unarkerfi VALITOR hafa öll
reynst traust í þeim erfiðleikum
sem við höfum gengið í gegnum
frá því síðastliðið haust, bæði
innanlands og erlendis.“
Starfsemi VALITOR skiptist
í þrjú afkomusvið: Kortalausnir,
Fyrirtækjalausnir og Alþjóða-
lausnir. „Fyrirtækið þjónustar
korthafa í gegnum bankana en
um 20 bankar og sparisjóðir
hafa gefið út VISA kort sem eru
nú orðin yfir 200 þúsund. Síðan
þjónustum við hátt í tíu þúsund
söluaðila innanlands og loks
höfum við verið að þróa þjón-
ustu við kaupmenn í útlöndum.
Sú þjónusta er orðin umtals-
verður þáttur í rekstrinum og
hefur uppbyggingin gengið
örugglega og mun halda áfram
að þróast.“
Boð- og raðgreiðslur
íslensk uppfinning
Hér á landi hefur byggst upp
greiðslukortaþjónusta sem
er með þeirri þróuðustu sem
þekkist í heiminum að sögn
Höskuldar enda Íslendingar
fljótir að tileinka sér nýjungar.
„Ákveðnir hlutir í kortastarf-
seminni hafa auk þess beinlínis
verið fundnir upp hér eins
og boð- og raðgreiðslur sem
eru orðnar hluti af kortaum-
hverfinu víða um heim. Þetta
er íslensk hugmynd sem var
þróuð tæknilega og markaðs-
lega af VISA Íslandi.
Mikill vöxtur hefur verið í
innanlandsstarfseminni sem sést
best á því að fyrsta árið urðu
kortin 7500 og söluaðilar voru
530 talsins. Vöxturinn hefur
verið stöðugur fram á síðasta ár,
en þá bættist við vöxtur vegna
samvinnunnar við erlenda aðila.
Hér er orðin nokkur mettun í
kortanotkuninni, sem er með
því mesta sem þekkist, og eru
yfir 70% af einkaneyslu Íslend-
inga greidd með kortum.
Við teljum mikilvægt að þróa
áfram viðskipti erlendis í þeim
tilgangi að auka möguleika fyrir-
tækisins, þótt samdráttur og
þrengingar séu hér, allavega
tímabundið.“
Áhersla á tæknilegt umhverfi
Hjá VALITOR er lögð áhersla
á tæknilegt umhverfi, hámarks-
öryggi og framþróun hvað
varðar lausnir á sviði greiðslu-
miðlunar. Menn muna þá tíð er
kortin voru þrykkt og þrykki-
vélar notaðar. Síðar komu seg-
ulrönd og rafræn viðskipti, þá
vefviðskipti og gsm-greiðslur.
Við þetta má bæta alls kyns fríð-
indum og þjónustu til handa
korthöfum á borð við vild-
arpunkta og ferðatryggingar.
Fyrsti forstjóri fyrirtækisins
var Einar S. Einarsson. Hall-
dór Guðbjarnason tók við af
honum og nú heldur Hösk-
uldur H. Ólafsson um stjórn-
völinn. Hjá VALITOR starfa
rúmlega 100 manns og þar er
stöðugt hlustað eftir þörfum
markaðarins og unnið með
söluaðilum að nýjungum og
tækniframförum.
Einhver mesta
kortanotkun
í heimi
valitor:
Markmið:
Gera viðskipti milli kort-
hafa og söluaðila, örugg
og þægileg.
Stofnár: 1983
Höskuldur H. Ólafsson er forstjóri VALITOR.