Frjáls verslun - 01.04.2009, Blaðsíða 22
að því núna eftir bankahrunið hversu mikið góðæri árin frá 2003 til
2008 hafi í raun verið þegar bankar heimsins bjuggu til útlána- og
eignabólu með því að ausa fé í fólk og fyrirtæki.
Þörfin til að vaxa út var mikil
„Við breytum hins vegar ekki sögunni. Þörf fyrirtækja fyrir að vaxa
og stækka hratt var mikil upp úr 1995. Þegar komið var í kringum
aldamótin horfðu íslensk fyrirtæki mjög til útlanda. Þeim fannst
innri vöxtur á Íslandi vera of hægur og markaðurinn hér heima of
lítill og takmarkaður. Það yrði að stækka til útlanda; þar væri fram-
tíðin.
Útrásin var hugsuð og rökstudd í upphafi þannig að það ætti að
kaupa góð fyrirtæki erlendis í stað lélegra og fyrir vikið að greiða
hærra verð fyrir þau. Rökin voru að allar fjárfestingar þyrftu á end-
anum að greiða sig upp með hagnaði á ákveðnum fjölda ára. Góðar
fjárfestingar erlendis væru líklegri til að skila hagnaði og greiða sig
upp en lélegar sem skiluðu tapi.“
Jón segist nýlega hafa verið spurður að því í kjölfar bankahruns-
ins, þegar allir helstu útrásarvíkingarnir væru fallnir, hvort skrif blaðs-
ins um þessa víkinga á undanförnum árum hefðu ekki verið unnin
fyrir gýg.
„Ég svaraði því til að fjölmiðlar gætu auðvitað ekki skrifað og
fjallað um annað en það sem gerðist hverju sinni í þjóðfélaginu
og væri efst á baugi. Ef útrás og kaup á erlendum fyrirtækjum eru
efst á baugi eru það fréttir sem fjölmiðlarnir flytja. Viðskiptablöð
hljóta að endurspegla það sem fyrirtækin og forstjórarnir gera.
Fjölmiðlar segja fréttir af atburðum og fólki – líkt og veðurfræð-
ingar segja fréttir af veðri. Þeir segja frá sólskini án þess að bæta
því alltaf við neðanmáls að það geti komið rigning eftir einhverja
daga eða vikur.
Ég er sammála því að fjölmiðlar hefðu átt að vera gagnrýnni á
útrásina og þá sérstaklega ákafa bankanna, en það hefðu allir átt að
vera það, þar er enginn undanskilinn. Fjölmiðlar og stjórnmálamenn
hafa ríka upplýsingaskyldu en þeir eiga ekki að hugsa fyrir fólk. Það
Eygló Svala
Arnarsdóttir,
ritstjóri netmiðlanna
icelandreview.com
og heimur.is.
Ingvar Kristjánsson,
ritstjóri What´s On.
Jón G. Hauksson,
ritstjóri Frjálsrar
verslunar.
Sigurjón
Kristjánsson,
útlitshönnuður
Á ferð um
Ísland, Áningar
og What´s On.
Frjáls verslun er hluti af Heimsveldinu
Frjáls verslun er hluti af Heimsveldinu og að sjálfsögðu fagna allir starfsmenn Heims 70 ára afmælinu. Útgáfufélagið Heimur gefur út fjölda
tímarita og er stærsti útgefandi landsins á sviði ferðamála. Á meðal tímarita sem Heimur gefur út eru Vísbending, Ský, Atlantica, Iceland
Review, What’s On, Á ferð um Ísland, Áning, Veiðimaðurinn, Issues & Images, Iceland Trade Directory og að sjálfsögðu Frjálsa verslun.
22 F R J Á L S V E R S L U N • 3 . T B L . 2 0 0 9