Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.2009, Blaðsíða 40

Frjáls verslun - 01.04.2009, Blaðsíða 40
40 F R J Á L S V E R S L U N • 3 . T B L . 2 0 0 9 70 ára 2000-2003 2000: Netbólan sprakk – fyrsta hrunið árið 1999 var mikill meðbyr á hlutabréfamörkuðum um allan heim og var í tísku að fjárfesta í tæknifyrirtækjum. hlutabréfaverð um allan heim hækkaði skarpt og var því líkt við gullæði. Eftir nokkurra ára meðbyr skall á óveður á vormánuðum árið 2000. netbólan sprakk. Lækkanir voru linnulausar út árið 2000 og héldu áfram á árinu 2001. Þeir sem lögðu mikið undir á bandaríska tæknimarkaðnum, nasdaq, urðu fyrir enn meiri skakkaföllum en hluthafar í venjulegum fyrirtækjum. Þetta var í raun fyrsta alvöru hrunið í Kauphöll íslands og fengu margir íslendingar óvænt að kenna á því að hlutabréf geta ekki bólgnað endalaust út. En svo fór sólin að skína aftur á árinu 2002 og um mitt árið 2003 varð hún ansi skær og hélst svo fram í ágúst 2007. 2001: Útrásin komst í tísku 2002: Landsbankinn seldur á 12,3 milljarða Eignarhaldsfélag þeirra Björgólfs guðmundssonar, Björgólfs Thors Björgólfssonar og Magnúsar Þorsteinssonar kaupir 45,8% hlut í Landsbanka íslands haustið 2002 á 12,3 milljarða króna. gengið var endanlega frá kaupunum undir áramót sama ár. íslenskir peningamenn, sem litu á sig sem alþjóðlega fjárfesta, voru komnir inn í landið. 2000: Nokkrir viðskiptaháskólar – „allir“ í viðskiptanámi Menntabyltingin upp úr 1970 hefur lagt grunn að bættum lífskjörum og hagsæld þjóðarinnar. á árinu 2000 blasti hins vegar við ný sýn í viðskiptamenntun á íslandi; háskólum hafði fjölgað. Viðskiptanám var kennt í háskóla íslands, Endurmenntun háskóla íslands, háskólanum á akureyri, Viðskiptaháskólanum á Bifröst, háskólanum í reykjavík og Tækniskóla íslands. sagt var frá því í fréttum að hundraðasti hver íslendingur væri í viðskiptanámi. Útrás íslendinga hófst snemma á síðustu öld. Útrásin felst í því að íslensk fyrirtæki vaxa erlendis með stofnun nýrra fyrirtækja eða kaupum á fyrirtækjum erlendis. sölusamtökin í sjávarútvegi stofnuðu fyrirtæki erlendis til að selja fisk, t.d. Coldwater í Bandaríkjunum í kringum 1940 þegar hraðfrystingunni óx fiskur um hrygg. Eimskip var með söluskrifstofur erlendis og Loftleiðir héldu í víking með ameríkufluginu, beinu flugi á milli Lúxemborgar og Bandaríkjanna, og ráku umfangsmikla starfsstöð og skrifstofu í new York. íslendingar hafa alltaf verið stoltir af íslendingum sem gera það gott erlendis. Upp úr 1995 bar á því að stoðtækjafyrirtækið Össur færði út kvíarnar erlendis og árið 2000 tilkynnti það um kaup á stórfyrirtæki í heimi stoðtækjanna í Bandaríkjunum, Flex-foot. Það var sem skriðu væri hleypt af stokkunum. næstu árin varð útrás algengasta orðið í íslensku atvinnulífi. allt snerist um að kaupa fyrirtæki erlendis og vaxa til útlanda. Formúlan var sú að kaupa góð og vönduð fyrirtæki erlendis og greiða aðeins hærra verð fyrir þau. Bankarnir voru hryggjarstykkið í útrásinni og fjármögnuðu hana – með lánsfé. Þeir keyptu sömuleiðs fjöldann allan af erlendum fjármálafyrirtækjum. sú saga er núna á enda.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.