Frjáls verslun - 01.04.2009, Blaðsíða 74
74 F R J Á L S V E R S L U N • 3 . T B L . 2 0 0 9
70 ára
skipst á kveðjum
Við eigum samleið
I
ðnfyrirtækið SET ehf. á Sel-
fossi framleiðir plaströr og
foreinangruð hitaveiturör
fyrir Íslenska lagnamark-
aðinn og einnig til útflutnings
en útflutningur hefur eflst á nýj-
ustu afurð fyrirtækisins, forein-
angruðum plaströrum, undir
vöruheitinu Elipex.
Að sögn Bergsteins og Arnars
Einarssona horfir fyrirtækið nú
fram á gjörbreyttar aðstæður á
innanlandsmarkaði þar sem sýnt
er að verulega hefur dregið úr
framkvæmdum. ,,Þær aðstæður
hafa gjörbreytt stefnu fyrirtæk-
isins í átt til aukins útflutnings
og kappkostað verður að láta
þá niðursveiflu vinna með fram-
gangi starfseminnar.“
SET rekur upphaf sitt til
fyrirtækis Einars Elíassonar,
Steypuiðjunnar, sem hóf starf-
semi árið 1968 og framleiddi
steinsteypt holræsarör, en tíu
árum síðar stofnaði Einar SET
sem hóf framleiðslu á forein-
angruðum stálpípum fyrir
hitaveitulagnir. Einar Elíasson
er stjórnarformaður SET en
synir hans, þeir Bergsteinn og
Örn, stýra daglegum rekstri.
,,Fyrirtækið fagnaði þrjátíu ára
afmæli síðastliðið sumar og því
að fjörtíu ár voru liðin frá upp-
hafi röraframleiðslu félaganna,“
segja þeir bræður.
Leiðandi á sínu sviði
Mikil vöruþróun varð eftir að
fyrirtækin hófu plaströrafram-
leiðslu og fjölmargir nýir vöru-
flokkar bættust við og til varð
umfangsmikil framleiðslu- og
sölulína á innfluttum hlið-
arvörum. SET er leiðandi aðili
á Íslandi á sínu sviði og styrkur
fyrirtækisins felst í framleiðslu
og sölu á lausnum á lagnasviði.
Að sögn Bergsteins og Arnar
varð SET leiðandi í fram-
leiðslu fyrir veitu- og bygging-
ariðnaðinn snemma á tíunda
áratugnum, einkum eftir mikla
framþróun í gæða- og tækni-
málum sem lauk með form-
legri vottun gæðakerfisins 1997.
,,Innan veggja fyrirtækisins
hefur myndast afar sterk og
samþætt heild reyndra starfs-
manna á sviði markaðs-, fram-
leiðslu- og tækniþekkingar og
vinna þeirra og afrek undanfarin
ár mun verða veganesti fram-
fara í landvinningastefnu fyr-
irtækisins einkum á sviði afurða
fyrir fjarvarma og orkumark-
aðinn erlendis. Áherslan hefur
verið á Evrópu þar sem víða er
hefð fyrir lagningu foreinangr-
aðra hitaveitukerfa,“ segja þeir
bræður að lokum.
set ehf.:
Framleiðslu-
fyrirtæki með
sterkt tækni- og
þekkingarstig
Markmið:
Að nýta auðlindir sínar til að
verða öflugur þátttakandi á
erlendum markaði.
Stofnár: 1968
Bræðurnir Bergsteinn og Örn Einarssynir: ,,Fyrirtækið fagnaði þrjátíu
ára afmæli síðastliðið sumar og því að fjörtíu ár voru liðin frá upphafi
röraframleiðslu félaganna.“
Starfsfólk SET (frá vinstri til hægri): Örn Einarsson, framleiðslustjóri, Jóhann Valdimarsson, tæknistjóri,
Arnar Bjarnason, vinnslustjóri Elipex röra, Valdimar Hjaltason, tæknifræðingur, Louise Harrison, sölufull-
trúi og Bergsteinn Einarsson, framkvæmdastjóri.