Frjáls verslun - 01.04.2009, Blaðsíða 94
94 F R J Á L S V E R S L U N • 3 . T B L . 2 0 0 9
70 ára
skipst á kveðjum
Við eigum samleið
Á
þessu ári fagnar
Þekking hf. tíunda
starfsári sínu en fyr-
irtækið var stofnað
þann 1. nóvember 1999 af
KEA og Íslenska hugbúnaðar-
sjóðnum. Fyrirtækið á sér mun
lengri sögu því fyrirrennari
þess er tölvudeild KEA sem var
stofnuð árið 1974. „Því byggir
þetta unga fyrirtæki á gömlum
grunni,“ segir Stefán Jóhann-
esson, framkvæmdastjóri Þekk-
ingar hf.
„Árið 2001 voru Þekking
og Tristan sameinuð í eitt öfl-
ugasta fyrirtæki landsins á sviði
rekstrarþjónustu og hýsingu
tölvukerfa.
Rekstur Þekkingar hefur
gengið vel á undanförnum miss-
erum. Í byrjun störfuðu tíu
manns hjá Þekkingu en við
höfum vaxið jafnt og þétt og
núna vinna fimmtíu manns hjá
okkur. Fyrirtækið hefur vaxið
hægt en örugglega með innri
vexti. Ég þakka einnig góðan
árangur öflugum hópi starfs-
manna og þeirri staðreynd að
fyrirtækið á stóran og traustan
hóp viðskiptavina; þar af eru
mörg fyrirtæki sem hafa átt við-
skipti við Þekkingu frá stofnun
fyrirtækisins. Þekking rekur í
dag tvær öflugar starfsstöðvar,
á Akureyri og í Kópavogi, enda
eru viðskiptavinir félagsins stað-
settir um land allt.“
Þjónusta stórfyrirtæki
„Á þessum tíu árum hefur
orðið töluverð aukning í
því að fyrirtæki og stofn-
anir útvisti rekstur tölvukerfa,
að hluta eða að öllu leyti, til
fagaðila eins og okkar. Við
sinnum margþættri þjón-
ustu, allt frá því að sinna skil-
greindum verkefnum eða ráð-
gjöf og uppí það að starfa
sem „tölvudeild“ okkar við-
skiptavina. Styrkleiki okkar
er sú breidd sem við höfum í
okkar þjónustu. Við sinnum
einföldum verkefnum eins og
t.d. hýsingu á tölvupósti en
jafnframt því rekum við heild-
arumhverfi tölvukerfa hjá fyr-
irtækjum sem eru í hópi þeirra
stærstu á Íslandi.
Alrekstur
Það hefur orðið aukning í að
fyrirtæki sæki í alrekstrarþjón-
ustu til okkar. Í því felst að við
önnumst alla útstöðva- og not-
endaþjónustu ásamt því að hýsa
og reka miðlægan búnað og
kerfi.“
Við ætlum á að halda upp
á tíu ára afmælið okkar með
pomp og prakt í haust. Við
erum bjartsýn á gott gengi
um ókomin ár, þrátt fyrir það
óveður sem geisar í íslensku
efnahagslífi um þessar mundir,“
segir Stefán að lokum
Bjartsýn á gott gengi
þekking Hf:
Stefán Jóhannesson, framkvæmdastjóri.
Markmið:
Að bjóða fyrirtækjum og
stofnunum upp á alhliða
rekstrarþjónustu tölvu-
kerfa, örugga hýsingu bún-
aðar og kerfa ásamt ráð-
gjöf og sérlausnum á sviði
upplýsingatækni.
Stofnár: 1999