Tímarit Máls og menningar - 01.12.1947, Page 22
116
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR
Gervilitir
Ein af merkustu uppfinningum þessarar aldar eru ,,gervilitir“
þeir, sem notaðir eru til litunar hvers konar fataefna. Snjöllum
efnafræðingum hefur tekizt að vinna alla þessa margvíslegu liti
úr tjöru, og örfáum sniðugum gróðabrallsmönnum hefur tekizt að
koma framleiðslu þeirra og sölu þannig fyrir, að hver einasta fjöl-
skylda á öllum hnettinum greiðir þeim sérstakan skatt án þess að
hafa nokkra hugmynd um það. Gervilitaframleiðslan, sem nátengd
er sprengiefnaframleiðslunni, hófst í Þýzkalandi um aldamótin, og
náði miklum vexti bæði þar og í Bandaríkjunum á stríðsárunum
fyrri. Fljótlega eftir stríðið tókst að mynda litahring í Þýzkalandi,
og árið 1925, þegar þessum hring hafði þegar tekizt að teygja anga
sína til Sviss og ná samkomulagi um verð við svissneska framleið-
endur, var skipulagi hans breytt og honum gefið nafnið I. G. Farben-
industrie. Þetta var upphaf þess hrings, sem frægastur hefur orðið
allra auðhringa. Árið 1927 er samkomulagi náð við franska lita-
framleiðendur, og tveimur árum seinna er húið að koma á lagg-
irnar litahring, er náði yfir alla Evrópu. I sambandi við þessa
hringmyndun var það mjög látið í veðri vaka, að afleiðing hennar
mundi verða aukin og ódýrari framleiðsla. Oþarft er raunar að taka
það fram, að afleiðingin var hin gagnstæða, minnkandi framleiðsla
og hækkandi verðlag. Um sama leyti hafði þýzki hringurinn byrjað
að færa sig upp á skaftið í Bandaríkjunum, og honum tókst á nokkr-
um árum að leggja undir sig eitt stærsta fyrirtækið í þessari grein
þar í landi, Grasselli. Árið 1929 næst samkomulag á milli I. G.
Farben, Imperial Chemicals í Englandi og helzta litafyrirtækis
Bandaríkjanna, du Pont. Eftir það var verðið á þessum vörum bæði
í Evrópu og Ameríku ákveðið af þessum eina liring, og honum tókst
einnig brátt að leggja undir sig Asíu með samkomulagi við japanska
auðhringinn Mitsui. Afleiðingin varð m. a. 25—52% verðhækkun
á gervilitum á kínverska markaðinum. „Góð tíðindi“, skrifaði einn
af fulltrúum handarísku litaframleiðendanna, er hann heyrði þessa
frétt. Á kreppuárunum tókst með þessu móti að halda uppi og liækka
verðið á þessum vörum um víða veröld.
En óvæntar hættur steöjuðu að þessum hringum, er komið liöfðu