Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1947, Page 64

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1947, Page 64
158 TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR Adríanovitsj glottir háðslega, fær sér vænan vínteyg og leggur þetta opinbera plagg frá sér. Loksins kemur þó reglulegt bréf. Það er frá París, frá fornvini hans, skáldi, sem naut mikillar hylli í Rúss- landi fyTir nokkrum árum, en lifir nú í útlegð við þverrandi gengi. Skáldið skrifar: „Þú veizt, að þrátt fyrir kaldranalegt útlit hef ég alltaf verið kurteis við konurnar. En það eru tvær konur, sem ég hef aldrei getað þolað. Onnur er Hel, en hin er Byltingin. Þá fyrr- nefndu þekki ég sem betur fer aðeins af afspurn, en hina aftur á móti . . .“ Adrían Adríanovitsj kinkar kolli til samþykkis. Lampinn fær að hafa alla sína hentisemi og teygir langa tungu út úr sér framan í tunglið. En tunglið er hátt yfir þetta hafið og svífur á burt yfir sjóinn. Lítill tilrauna- og kennslubátur, sem liggur við festar fram undan skólanum, glitrar eins og brennt silfur í tunglsljósinu. Og að lokum kemur síðasta bréfið. Það er í ódýru, kauðalegu umslagi, og utanáskriftin er ógreinileg. Adrían Adríanovitsj opnar bréfið og les: „Elsku bezti frændi!“ Hann stanzar og lítur á lampann: frændi — hvers frændi er hann? Jú, það var alveg rétt: Hann átti systurdóttur, sem hét Aglaja. Það hafði nú víst sitt af hverju drifið á daga hennar . . . bíðum við, jú, hún var gift kommúnista. Hvað lá henni nú á hjarta, þessari Aglaju, sem hafði svo dæmalaust líkan vangasvip og Teodóra keisaradrottning í Miklagarði. Hún hafði ekki gefið neitt lífsmark frá sér í óratíma, og nú fór hún allt í einu að skrifa. Hún skrifaði, að hún væri ekki vel frísk. Maðurinn sinn hefði verið sendur til Síberíu til að koma af stað samvinnustarfsemi, og nú langaði hana til að koma niður að ströndinni með börnin sín. Henni hafði dottið í hug sinn elskulegi frændi og trúði ekki, að hann mundi neita sér um gistivináttu sína. Hún óskaði eftir svari símleiðis. Adrían Adríanovitsj brýtur heilann langa hríð. Auðvitað mundi það eyðileggja sumarið fyrir honum. Hins vegar hafði Aglaja verið indæl og skemmtileg, þegar hún var lítil. Hún hafði verið ákaflega sólginn í ávexti og ævintýr. Einu sinni, þegar hún fékk að sjá kókoshnot, sagði hún:
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.