Tímarit Máls og menningar - 01.12.1947, Side 140
------------------------------------------------------------------------------------------------s
Bók sem á erindi til okkar flestra
DAVID HAROLD FINK:
Hvíldu þig - hvíld er góð
Allt of margir hafa komizt úr jafnvægi á ýmsan hátt á þessum síðustu og
verstu tímum, misst starfsgleði sína og lífsánægju, eru þreyttir, önugir,
taugaóstyrkir og illa fyrir kallaðir. Höfundur þessarar bókar, sem er kunn-
ur amerískur taugalæknir, hefur sett sér það markmið að rétta öllu þessu
fólki hjálparhönd til þess að komast á réttan kjöl, kenna því aðferðir til
að losna við taugatruflanir sem eru undirrót margvíslegra sjúkdómsein-
kenna, andlegra og líkamlegra. Bókin er leiðarvísir til andlegrar heilbrigði,
kennsla í einföldum og hagnýtum aðferðum til hvíldar og slökunar, leið-
beining í því að líta hlutlaust á vandamál sjálfs sín. Hún er skrifuð af
þekkingu og mannviti, en framar öllu er hún uppörvun þeim sem við erf-
iðleika eiga að stríða, hjálp til aukinnar sjálfsþekkingar, uppspretta nýs
lífsþors. — Verð 35 kr. innb.
Ný heimskautabók
Ljós yfir norðurslóð
eftir TICHON SEMÚSJKÍN
Þessi hók er saga eins fyrsta menningarleiðangursins til Síberíu, saga um
baráttu við erfiða náttúru og hættur heimskautalandanna, baráttu við hjá-
trú og tortryggni frumbyggjanna. En að lokum fer æskulýðurinn að skilja
boðbera nýja tímans og hjálpar hinum eldri áleiðis til aukinna þæginda
og betri lífskjara. — Ljós yfir norðurslóð er bók sem ungir og gamlir
lesa sér til ánægju og fróðleiks. Iíún sameinar kosti ferðabókar og menn-
ingarsögu. — Verð 23 kr. ób., 30 kr. í rexínbandi. Aðeins já eintök óseld.
Bókabúð Máls og menningar
Laugavegi 19 . Sími 5055
V
PRENTSMIÐJAN HOLAR H-F