Tímarit Máls og menningar - 01.03.1951, Blaðsíða 17
HVAR STENDUR ÍSLAND?
7
un í aldir fram. En miklu af þessum auði hefur gróðastéttin ýmist sóað,
spillt eða látið vanræktan, þar sem ekki nema brot eitt af landskostum
hefur verið hagnýtt. Eftir því sem á leið hefur hún sölsað undir sig
yfirráð yfir lífsskilyrðum fjöldans, atvinnutæki, banka og verzlunar-
vald, og orðið gagnsýrð af spillingu í fjármálum og stjórnarháttum,
sem var alls ókunn áður. Hún þáði að láta rétta sér upp í hendur
ávinning sjálfstæðisins án þess að hafa á því nokkurn áhuga né skiln-
ing, og sætti fyrstu dagráðum til að selja það af hendi fyrir baunadisk
handa sjálfri sér.
7
Það þarf ekki djúpt að grafa eftir svörum við spurningunum hér að^
framan. Þau eru þjóðinni ekki sama tabú, eða bannorð og foringjum
hennar, jafnvel þegar vænta mætti einlægni við hálfrar aldar skil. Hún
veit þau líka af hinum einföldustu hlutum, af daglaunum sínum og út-
gjöldum, af öllu er hún verður að gjalda og þola vegna stjórnarfars-
ins. ísland hefur á 4 árum verið látið þiggja um 465 miljón kr. meðgjöf,
lán og „gjafafé“, og nýjar viðstöðulausar lántökur eru framundan, jafn-
framt því sem íslenzka krónan hefur þegar verið felld um 75%. Hinar
svonefndu gjafir (sem eru jafnvel skuldum verri) eru með þeim hætti,
að móti hverju framlagi í dollurum verða Islendingar að leggja í mót-
virðissjóð hliðstæða upphæð sem alþingi fær ekki að ráðstafa nema
með samþykki marshallstofnunarinnar í Washington. Þessar skuldir og
ekki síður „gjafir“ hafa gert okkur svo háða Bandaríkjunum að al-
þingi íslendinga er ekki lengur frjálst um að setja lög á íslandi, verður
jafnvel að kippa að sér málum sem þingvilji er fyrir, eftir erlendum
fyrirmælum, svo sem nýlega gerðist með smáíbúðafrumvarpið, og það
getur tekið stjórnarvöldin tvö ár að betla út leyfi í Bandaríkjunum til
að setja hér upp smáverksmiðju til innanlandsþarfa einna eins og
áburðarverksmiðjuna; og verða þar á ofan að birta auðmýkjandi
þakkargerð að bónargöngunni lokinni! Málum er svo komið að ísland
er ekki sjálfstætt nema að nafni til. Fjármálin eru ekki aðeins undir'
erlendri yfirstjórn og íslenzkt land leigt undir bandaríska herstöð og
nýlendu, heldur er Island sjálft sem engan her á og haft hefur frið og
hlutleysi að gunnfána sínum fjötrað í hernaðarbandalag landræningja
nútímans, fulltrúar þess út á við látnir húka sem spélniatriði á undir-