Tímarit Máls og menningar - 01.03.1951, Page 38
28
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR
verður aðeins leidd til endanlegs sigurs með landher, að við bættri
persónulegri hæfni, persónulegum karakter og persónulegri trú ein-
staklingsins á hugsjónina, sem hann berst fyrir.
Mörgum hefur orðið tíðrætt um dýrð atómsprengjunnar, enda hafa
bandarískir pólitíkusar lagt mikla stund á að hræða mannkynið með
hótunum um beitingu þessa skemmtilega morðvopns alla tíð síðan
1945, eins og reynt er að kúga börn til undirgefni með löggunni. Það
sýnist liggja betur fyrir þeim þar vestra að tala en að gera sér grein
fyrir afleiðingum orða sinna, því að nú er svo komið, að engri þjóð í
heimi stendur þvílíkur stuggur af atómsprengjunni sem þegnum Banda-
ríkjanna.
Til er þó vopn, sem er drjúgum afkastameira en atómsprengjan,
stórum ódýrara og miklu einfaldara að gerð. Þetta vopn er öllum þjóð-
um, sem búa til algengar sprengjur, auðvelt að framleiða. Það er hel-
rykið, geislavirkt duft, sem hægt er að slökkva með líf heilla stórborga
og drepa með allan jarðargróður víðra landflæma á nokkrum klukku-
stundum. En þeir, sem kunna að sleppa lífs af út úr þessum ósýnilega
geisladauða, eiga það á hættu að verða örkumlamenn, það sem eftir er
ævinnar, og að afkvæmi þeirra, ef nokkur verða, fæðist andvana eða
vanskapningar og fábjánar, að því er sérfræðingar segja. Þessum voða
má strá úr flugvélum yfir bæi og byggðir, án þess að menn viti fyrri til
en þeir eru orðnir helsjúkir og gróður jarðarinnar dauður. Það verður
enginn hvellur, enginn ljósglampi í lofti, engar drunur frá hrynjandi
húsum. Það er í raun og veru ekkert sem gerist annað en þetta, að
lífið deyr. í samanburði við þetta vopn getur atómsprengjan heitið
meinlítill morðkuti.
Þá má nefna bakteríurnar, sem okkur hefur verið hótað í næsta
stríði. Þær drápu miklu fleiri í spænsku pestinni en lífið létu á vígvöll-
unum í heimsstyrjöldinni fyrri. En Morgunblaðið á kannski eftir að
hressa upp á ykkur með þeirri huggun, að Rússar hafi kraftminni
bakteríur en Ameríkumenn. Þá huggun vil ég ekki verða til að hafa af
ykkur. Þið hafið nóg að bera samt.
Næsta heimsstyrjöld, ef hún skellur yfir, verður úrslitahríð milli auð-
valds og sósíalisma. Til þess verður hún háð. Af þeirri ástæðu og
einnig sakir hinnar síauknu tækni má telja víst, að hún verði rekin af
geigvænlegri grimmd og með stórvirkari vopnum en heimsstyrjaldirn-