Tímarit Máls og menningar - 01.03.1951, Qupperneq 43
MEÐ FRIÐI LIFUM VIÐ • í STYRJÖLD DEYJUM VIÐ
33
hafa hlotnazt nokkur svör við þeim. En svörin eru samt býsna einföld
og liggja í augum uppi:
Það veit enginn til, að Rússar hafi árásarstyrjöld í huga, og það
hefur hvergi komið fram minnsti snefill af rökum né líkum fyrir því.
En sannleikurinn er sá, að árásaraðdróttununum er beitt til þess að gera
þjóðirnar hræddar við Rússa, í því skyni að beygja þær undir vopna-
kaup af Bandaríkjunum og undirbúa meðal þeirra stríðsstemningu til
árásar á Rússland. Að hér sé fremur ófagur byssnes að verki, auk árás-
arfyrirætlananna, má skýlaust sjá af framkomu vesturveldanna við
Dani. Danir áttu miklar birgðir vopna, sem Þjóðverjar skildu eftir,
þegar þeir voru reknir burt úr Danmörku. Þessum vopnaforða hafa
vesturveldin skipað Dönum að kasta í sjóinn. Og hvers vegna? Vegna
þess, að það opnar meiri markað fyrir amerísk vopn í Danmörku og
ýtir svolítið undir verðbréfin í Wall Street. En hvað myndu svona lýð-
ræðislegir viðskiptahættir hafa verið kallaðir, ef Rússar hefðu beitt
þeim?
Friðarhreyfingunni hefur verið hrundið af stað af raunsæjum vit-
mönnum, sem búa yfir þekkingu til að sjá það fyrir, hvílík tortíming
bíður mannkynsins, ef út skyldi brjótast ný heimsstyrj öld, og þessir
menn hafa tekið höndum saman til þess að forða heiminum frá slíkum
ragnarökum. Að friðarhreyfingunni stendur því fólk úr öllum stjórn-
málaflokkum og öllum skoðanakerfum. Þar eru ekki aðeins kommún-
istar, heldur og íhaldssinnar, frjálslyndir menn svokallaðir, gamlir frið-
arvinir, sósíaldemókratar, samvinnumenn, embættismenn, verkamenn,
prestar, trúboðar og heiðingjar, — fólk hvaðanæva, sem hefur sam-
einazt um þessa hugsjón, sem nú er mikilvægust í heimi, að bægja
frá mannkyninu nýrri heimsstyrjöld. Á fundi, sem Norðurlandafulltrú-
arnir héldu eitt kvöld í Varsjá, meðan þingið stóð, var til dæmis meiri
hluti fundarmanna andstæður kommúnisma. Er ákaflega erfitt að skilja
það, að það sé sitthvað að vera kommúnisti og að vilja ekki láta drepa
sig með atómsprengju?
Friðarhreyfingin hefur verið skipulögð og efld vegna allra þjóða á
jarðarhnettinum. Hún vinnur verk sín engu síður til verndar banda-
rískum borgurum en rússneskum, engu síður til verndar Englending-
um en Kínverjum, engu síður til verndar Frökkum en Pólverjum, engu
síður til verndar íslendingum en Albaníumönnum. Friðarhreyfingin
Tímarit Máls og menningar, 1. h. 1951 3