Tímarit Máls og menningar - 01.03.1951, Side 86
76
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR
Ræða Herberts Hoovers
„I þessum heimi óstöðugleikans er ekki hægt að leggja neinn fullnaðarúrskurð
á hið alþjóðlega ástand. En til þess að finna þjóðbraut vora verðum vér jafnan að
gera oss grein fyrir, hverju vér höfum fengið áorkað og velta fyrir okkur hversu
miðar. Ég legg ekki til, að vér göngum á enda þá glötunarbraut, sem leitt hefur
okkur þangað, sem vér nú stöndum.
Þessa stundina er aðeins ein árásarmiðstöð í heiminum. Það er meginlands-
flæmi Asíu og Evrópu, sem byggt er 800 milljónum manna, er búa við stjórn
kommúnista. Þeir hafa sennilega meira en 300 herfylki, vopnuð og æfð, meira en
30.000 skriðdreka, 10.000 flugvélar, tilbúnar til hernaðar, og mikið varalið, sem
þeir geta beitt innan 90 daga.
Andspænis þessari ógnun á vígstöðvum Evrópu standa um 160 milljónir manna,
sem ekki lúta stjórn kommúnista, og án Spánar hafa þeir minna en 20 herfylki,
mjög fá skriðdrekaherfylki og lítilfjörlegar hersveitir á sjó og í lofti. Þó eru þess-
ar þjóðir lítt búnar til að verja sig og skoðanamunur mikill með þeim.
Frá hernaðarlegu sjónarmiði er Brezka heimsveldið sérstaklega mikilvægt. Það
telur 150 milljónir manna, sennilega 30 vígbúin herfylki, ágætan flota, en ekki
sérlega marga skriðdreka. I Bandaríkjunum eru 150 milljónir manna, sem geta
skipað fram 3,5 milljónum manna í tröllaukinn flugher og sjóher og um það bil
30 vígbúin herfylki.
Þegar vér metum þennan herafla í því ástandi, sem hann nú er í, hljótum vér að
komast að eftirfarandi niðurstöðum:
a) Vér verðum að gera ráð fyrir, að yrði þessum tvístruðu hereiningum hinna
ókommúnisku landa beitt í landhernaði gegn hinu kommúníska meginlandsflæmi,
þá mundi það þýða stríð án sigurs, stríð án pólitísks árangurs. Allar tilraunir til
að heyja innrásarstríð um hina ótryggu grund Kína, Indlands eða Vestur-Evrópu
eru auðsæ fásinna. Milljónum ungra Ameríkana yrði þar búinn kirkjugarður og
afleiðingin yrði sú, að þetta Gíbraltar vestrænnar menningar mundi hrynja til
grunna.
Jafnvel þótt herbúnaður Vestur-Evrópu færi langt fram úr því, sem ætlazt er til
í hvaða heráætlun sem væri, gætum vér aldrei komizt til Moskvu. Þjóðverjum mis-
tókst þetta þótt þeir ættu á að skipa ágætum her, sem taldi 240 orustuherfylki,
geysilegum flugher og skriðdrekasveitum.
b) Sömuleiðis getum vér Ameríkumenn, ef vér eigum aðeins sjó- og flugflota,
haft slíkt eftirlit með Atlanzhafi og Kyrrahafi, að herir kommúnista gætu ekki
gert neina innrás á vesturhelming jarðarinnar.
c) Frá þessu hernaðarsjónarmiði verðum vér að skilja, að kjarnorkusprengjan
er alls ekki það úrslitavopn, sem einu sinni var talið.
d) Það er ljóst, að Bandaríkin hlutu að biða ósigur í Kóreu vegna árásar hins
kommúníska Kínaveldis. Það er ekki til sá her í öllum heimi, er gæti boðið Kín-
verjum birginn.
Vér getum rannsakað hag Bandaríkjanna nánar. Vegna útgjalda stjórnarinnar
eru hinar 150 milljónir Ameríkumanna þegar orðnir aðþrengdir fjárhagslega. Vér