Tímarit Máls og menningar - 01.03.1951, Síða 91
ANNÁLL ERLENDRA TÍÐINDA 1951
81
Viðskiptajölnuður bandarískrar utanríkissteínu
Ræður þessara tveggja bandarísku stjómmálamanna sýna ljóslega, að hinn
pólitíski einstefnuakstur núverandi Bandaríkjastjórnar á ekki lengur þeim vin-
sældum að fagna í Bandaríkjunum sem þeir menn skyldu ætla, er blindaðir hafa
verið af hinum dæmalausa bandaríska stjórnaráróðri, sem rekinn er um allan
hnöttinn. Fullyrt er, að % hlutar bandarísku þjóðarinnar séu fylgjandi þeim
sjónarmiðum, er Herbert Iloover túlkaði í ræðu sinni. Frá fornu fari hefur repú-
blíkanaflokkurinn verið talinn flokkur hins bandaríska stórauðvalds. Þessi flokkur
hefur jafnan verið hatrammasti andstæðingur „kommúnismans" og reiðubúinn til
að ganga á milli bols og höfuðs á honum. En fulltrúar þessa flokks hafa þó ekki
enn gleymt að lesa höfuðbækur sínar og bera saman tekjur og gjöld á reksturs-
og efnahagsreikningi sínum. Síðan heimsstyrjöldinni síðari lauk hefur Ameríka
háð stríð sitt við kommúnismann. Samkvæmt tölum þeim, er Kennedy sendiherra
getur um í skýrslu sinni hefur þessi herkostnaður við kommúnismann numið 18
milljörðum og 246 milljónum dollara, því svo sem kunnugt er telst Marshall-
hjálpin til þessa illyrmislega stríðskostnaðar. 011 kurl koma þó ekki hér til graf-
ar. Kennedy getur ekki þeirra 6 milljarða dollara, sem Bandaríkin jusu í Sjang
Kaj-Sjek frá 1945—1948, né heldur þess, sem síðan hefur verið ausið í hann á
Formósu. Kostnaður Kóreustyrjaldarinnar er einnig ótalinn. Það er því engin:
furða þótt reikningsglöggum kaupsýslumönnum vaxi í augum fjárupphæðirnar,.
einkum þegar þess er gætt, hve heildarárangurinn er lítill. Baráttan gegn „komm-
únismanum" og frelsun siðmenningarinnar er sýnilega fyrirtæki, sem á máli
bandarískra kaupsýslumanna kallast bai business. Og þegar maður veltir fyrir
sér tölum Kennedys, þá veit maður ekki hvort maður á heldur að hlæja eða gráta.
Þorskalýsi og þurrkaðar baunir — það er eftirtekjan af þessu dýra og glæsilega
fyrirtæki Bandaríkjanna!
Kínaveldi bannfært
Það mun ekki leika á tveim tungum, að afskipti Kínverja af Kóreustyrjöldinni
hafi blátt áfram valdið aldahvörfum í sögu Asíu. Loksins eftir langan svefn hafði
Asíuþjóð risið upp og talað því máli, sem stórveldi nútímans skilja: múli valds-
ins. En svo brá við, að ]>að var sem Asía öll hefði fengið aðra reisn eftir að kín-
versku sjálfboðaliðarnir stöðvuðu sókn MacArthurs og ráku heri hans suður
Kóreuskaga. Indland, annað fjölmennasta ríki Asíu, virtist nú í fyrsta skipti geta
talað við Bretland og samveldislöndin eins og sá, sem valdið hefur. Langsofið
þjóðastolt Asíu vaknaði til vitundar um þann mátt, sem fólginn er í höfðatöl-
unni, í hinum mikla austræna múg. En áhrifanna gætti ekki aðeins í Asíu. Þau
læstu sig um öll þau ríki, er Ameríka hafði fylkt undir merki sín innan félags-
skapar Sameinuðu þjóðanna. Sú samfylking tók að riðlast, svo að við sjálft lá, að
yrði af full upplausn.
Saga janúarmánaðar ársins 1951 mun síðarmeir verða talin merkileg, þegar öll
kurl koma til grafar og allar heimildir eru birtar. Á þeim mánuði beittu Banda-
Tímarit Máls og menningar, 1. h. 1951 6