Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1951, Side 118

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1951, Side 118
108 varð ekkert eins og kunnugt er. Svörin heimtust yfirleitt vel, svo að ekki vant- ar nema 7 sóknalýsingar og eina sýslu- lýsingu. Hingað til hafa þessar merki- legu heimildir verið lítið notaðar, enda ekki sérlega greiðar aðgangs. Fáeinar sóknalýsingar hafa verið gefnar út á víð og dreif í ýmsum ritum, en slíkt kemur ekki af hálfu gagni; það eina sem dugir er að gefa þær út í heild, eins og for- göngumenn útgáfunnar hafa réttilega skilið. Eins og gefur að skilja eru lýsingam- ar býsna misjafnar að gildi og gæðum. En óhætt mun þó að fullyrða að þær séu í heild sinni ein merkasta samtíma heimild um landshagi á íslandi á fyrri helmingi 19. aldar. Spurningamar snú- ast í fyrsta lagi um náttúru landsins, landslag og veðráttufar, í öðm lagi um bjargræðisvegi og afkomu manna, í þriðja lagi um menntun, siðferði, heil- brigðismál og fomleifar. Má af þessu marka að í svörunum muni kenna margra grasa og að margt megi af þeim læra. T. d. er hér. saman kominn einhver mesti sægur örnefna sem til era í nokkru einu riti íslenzku, og er það eitt ekki lítils virði. Enn má nefna það að þegar allar lýsingarnar eru birtar verða þær hinn ákjósanlegasti grundvöllur til at- hugunar og samanburðar á ólíkum at- vinnu- og lifnaðarháttum hvarvetna á landinu. Bindi það sem út er komið, Húnavatns- sýsla, er sennilega gott dæmi um lýsing- ar þessar yfirleitt, kosti þeirra og galla. Lengst er þar og ýtarlegust lýsing sr. Eggerts Ó. Bríms á Höskuldsstaðasókn (rituð 1873), 44 stórar bls., enda er hún hin merkasta ritgerð og fer langt út fyrir umgerð spurninganna. En margar hinna lýsinganna eru og hinar fróðlegustu, og TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR sumar smáfyndnar, eins og lýsing sr. Ögmundar Sigurðssonar á Tjamarsókn. Ástæðulaust er að ætla að aðrar sýslur séu síðri en þessi, og er þetta bindi því ærin sönnun þess að hér er hið mesta nauðsynjaverk á ferðinni. Upphafs- og forstöðumenn útgáfunnar, þeir Jón Ey- þórsson og Pálmi Hannesson, eiga því liinar mestu þakkir skilið fyrir að hafa hrundið henni af stað, og ekki síður bókaútgáfan Norðri, sem hefur sýnt þann stórhug að ráðast í þetta fyrir- ferðarmikla verk, þó að það sé ekki lík- legt til að verða gróðafyrirtæki. Þegar um svo merkilegt heimildarrit er að ræða er vitanlega skylt að vanda til útgáfunnar eftir fremsta megni; eng- ar líkur eru til að þetta rit verði gefið út í annað sinn á næstu mannsöldrum. Þessi útgáfa verður því að vera svo úr garði gerð að henni sé fyllilega treyst- andi í hvívetna; allt annað er óþolandi. Utgefendur gera grein fyrir tilhögun út- gáfunnar í formála, og segir þar m. a.: „1. Útgáfan er orðrétt, en ekki stafrétt, það er að segja: Orðalagi höfunda er í engu breytt, en réttritun vikið til sam- ræmis við núgildandi stafsetningu, eftir því sem fært þótti. ... 2. Staðanöfnum og örnefnum er haldið óbreyttum, nema um hreina rangstöfun eða stafsetningar- atriði sé að ræða.“ Þessar reglur eru góðar það sem þær ná, en þó hefði ekki sakað að þær hefðu verið skýrara orðaðar. Það er t. d. aug- ljóst, eins og síðar verður að vikið, að út- gefendur telja það orðrétt að breyta orð- myndum sem eiga fullan rétt á sér jafnt og þeim sem eru hrein stafsetningarat- riði. En þetta er mesti misskilningur. í riti eins og þessu væri einmitt alveg sér- staklega æskilegt að halda óbreyttum öllum orðmyndum sem nokkurt mál-
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.