Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1951, Side 127

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1951, Side 127
117 „ALLAR'ÞESSAR bækur eru OKKUR GÓÐIR VINIR“ fyrstu árin. Vegna alls þessa umróts hafa félagsmenn oft haft æma ástæðu tí\ óánægju. Sérstaklega hefur mikillar óánægju orðið vart út af því, hve seint heful gengið að koma út langþráðum verkum eins og Arfi Islendinga og Mannkynssög- unni. Sá seinagangur má vafalítið skrifazt á reikning stríðsgróðans á einn eða annan hátt. Það er hins vegar vaxtarmerki félagsins, er félagsmenn bíða óþreyju- fullir aukinnar útgáfustarfsemi. Annað stríðsgróðafyrirbærið er bókaflóðið, sem gengið hefur yfir landið hin síðari ár. Þar hefur Mál og menning fyrir hitt sinn skæðasta keppinaut í ýmsum skilningi. Og þótt Mál og menning fagni heils hugar mörgum ágætum bókum, sem flotið hafa með straumnum, er ekki þess að dyljast, að meira flýtur þar af alls konar afmenningardóti. Má fullyrða, að mál þjóðarinnar og menning standi mjög traustum fótum, ef hún sleppur, er tímar líða, að fullu óskemmd út úr því eld- húsreyfara og „filmstjörnu“-flóði, sem streymt hefur um allar landsins æðar í seinni tíð. Og ekki má „gleyma garminum honum Katli“, skriðuföllum blekkinga- áróðursins, sem blekníðingar ýmsir hyggjast gefa þjóðinni inn sem einhvern „lífs- elexír", að því er virðist til þess að halda henni á vissu sértrúarstigi og stálsetja hana gegn því „er sannara reynist". Það verður að vera hlutverk víðtækrar og sannleiksunnandi bókaútgáfu að spyrna gegn afmenningarbroddunum, hvaðan sem þeir koma. Það er hlutverk bók- mennta/é/ags, sem skipar öndvegi vísindum og listum, og veitir alþjóð menning- arleg viðfangsefni í stað deyfilyfja. Slíkt félag er Mál og menning og getur þó verið það í miklu fyllri skilningi en orðið er. En til þess að svo verði þarf félagsmannatalan enn að aukast og útgáfan að vaxa að fjölbreytni í líkingu við það, sem brautryðjendurnir hugsuðu sér í upphafi. Það mundi auðvitað kosta félagsmenn hærra árgjald. Gæti ég trúað, að þeir mundu flestir greiða það með ánægju, yrði það útgáfunni til eflingar. „En hvað er þá orðið okkar starf?“ Hafa hugsjónir brautryðjendanna revnzt haldkvæmar? Því verður hiklaust svarað játandi. Mál og menning hefur hlotið sína eldskírn. Tíminn hefur einmitt leitt í ljós hið mikla gildi landssamtaka um bókaútgáfu með þeim markmiðum, sem Mál og menning setti sér í upphafi. Nú lifa samtökin blómalífi og félagsmenn geta litið til baka yfir glæsilegan ár- angur af starfi þeirra, þrátt fyrir allan andblástur. Flestir bókamenn munu hafa haldið tryggð við félagið og nýtur það nú vaxandi vinsælda. Val verkefnanna hefur að mínum dómi tekizt ágætlega með e. t. v. fáum undan- tekningum. Við sjáum í bókahillum okkar úrval bókmennta, sem við aðeins gátum hlotið fyrir mátt samtakanna. Þar eru Vatnajökull, Efnisheimurinn, Andvökur, tvö bindi af Mannkynssögunni, Jóhann Sigurjónsson, Móðirin eftir Gorki, Eyjólfur Guðmundsson, Nexö, Vopnin kvödd og Þrúgur reiðinnar auk margra ágætra bóka, sem of langt yrði upp að telja. Og þegar stjórn félagsins þótti ganga of seint að hrinda í framkvæmd einhverju af hugsjónunum, réðst hún í að gefa út aukalega bækur, sem illa þóttu geta beðið. Ber þar hæst kórónu útgáfunnar, Arf íslendinga (sem nú loks er væntanlegt framhald af) og Undur veraldar. Fullyrða má, að flest- ar þessar bækur hefðu aldrei náð augum þess fjölda manna, sem raun ber vitni,
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.