Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1960, Síða 36

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1960, Síða 36
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR völdin hafa hinsvegar farið hægt í sakirnar, að' vísn var málið fengið í hendur borgara- legum rannsóknardómara í Frakklandi, en hingað til liafa hershöfðingjarnir komið í veg fyrir að dómaranum takist að inna hlutverk sitt af hendi, og dómsmálaráðherra ekki orðið til að taka af skarið. Þegar svo var í pottinn búið gerði „Maurice-Audin-nefndin“ sína eigin rannsókn í málinu, hafði tal af vitnum og athugaði málsgögn, og í desember s.l. gaf hún að lokum út skýrslu sem óhætt er að telja örugga niðurstöðu. Hún sannar það sem áður var skýrt frá um rás athurðanna og nafngreinir pyndarana; það eru þeir sömu sem önnuðust Alleg og í frásögn hans eru tilgreindir með fyrstu stöfum nafna þeirra. Pyndingameistarinn, Cha..., segir skýrslan að hafi misst vald á sér andspænis óbifandi þögn Audins, ráðist á hann í pyndingaklefanum og kyrkt hann. Orlög þeirra Audins og Allegs eru ekki fyrir þá sök merkileg að þau séu neitt einsdæmi. Þeir voru hvorki fyrstu né síðustu fórnardýr franskra pyndara í Alsír. Það er sönnu nær að þeir hafi liðið sömu þjáningar og þúsundir annarra í stríðinu í Alsír. Sérstakar að- stæður hafa valdið því að þeirra mál hafa komið fram í dagsbirtuna fremur en mörg önnur hliðstæð. „Maurice-Audin-nefndin“ hefur ekki heldur með baráttu sinni viljað hefna Audins eins: með því að berjast fyrir að pyndararnir séu kallaðir til ábyrgðar krefst hún þess að frönsk stjórnarviild hætti að halda hlífiskildi yfir svívirðu pynding- anna, sem þau gera meðan þau hafast ekki að. En þó örlög þessara manna séu síður en svo einsdæmi, þá hefur frásögn Allegs næstum einstæða þýðingu. Áður en hún kom á prent höfðu birzt í frjálslyndum málgögnum í Frakklandi margar frásagnir af pyndingunum í Alsír. En þær voru ekki sagðar af píslar- vottunum sjálfum; þær voru mannúðlegar skýrslur um líkamlegar misþyrmingar; þær gátu ekki lýst þreki hinna píndu, manndómi þeirra gagnvart mannleysunum. Þetta gerir aftur á móti Rannsóknin; hin æðrulausa, hlutlæga og næstum hlutlausa frásögn Allegs er siguróður. — Þessari sérstöðu, hinni djúpu merkingu Rannsóknarínnar, lýsir heimspek- ingurinn Jean-Paul Sartre af nærfærnum skilningi í grein sem hann ritaði eftir útkomu bæklingsins og síðan hefur verið látin fylgja flestum þýðingum hans. Grein þessi nefnist Sigur og verða hér prentaðir nokkrir kaflar hennar: „... Með Rannsókninni verður alger breyting. Alleg leysir okkur undan örvæntingunni og skömminni vegna þess að hann er fórnarlamb og hann hefur lifað pyndingarnar. Þessi afstöðubreyting felur óhjákvæmilega í sér nokkurt dapurlegt skop; hann hefur verið pyndaður í okkar nafni, og fyrir hans skuld öðlumst við loksins aftur dálítið af stolti okkar: við erum hreykin að liann skuli vera Frakki. Lesendurnir endurholdgast í honum af öllum kröftum sálar sinnar, þeir fylgja honum út á yztu þröm þjáninganna; einir og naktir standast þeir eldraunina með honum. Væru þeir, værum við færir um það í reynd- inni? Það er annað mál. Mest um vert er það að fórnardýrið leysir okkur með því að láta okkur uppgötva, eins og það uppgötvar sjálft, að við liöfum getu og ber skylda til að þola allt. Okkur sundlaði yfir hyldýpi hins ómannlega; en einn harður og þrár maður, sem hefur einsett sér að gera sína skyldu sem maður, er fær um að hrista af okkur ómegið: „rann- sóknin“ er ekki ómannleg; hún er ekkert annað en svívirðilegur og saurugur glæpur, framinn af mönnum gagnvart mönnum. Ilið ómannlega er hvergi til, nema í þeim óráðs- draumum sem óttinn innblæs. Og einmitt hin rólega karlmennska píslarvotts, hógværð 274
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.