Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.1962, Side 99

Tímarit Máls og menningar - 01.05.1962, Side 99
UMSAGNIR UM BÆKUR því að gera myrkrahöfðingjann að rektor æðstu menntastofnunar kirkjunnar. Sá sós- íalrealismi er eingöngu íslenzkur, að því er ég veit bezt. í íslenzkum þjóðsögum er mjög leitazt við að sanna sannleiksgildi þeirra. Þar eru þekktir menn mjög kallaðir til vitnis um hvaðeina, jafnvel stærðina á Jóni Loppu- fóstra. Stundum er þó látið nægja, hvað sumir sögðu. Sumir sögðu, að púkinn hefði setið uppi á kirkjubitanum, en aðrir, að hann hefði flegið kött neðan á honum. Það eru að minnsta kosti margir til frásagna um þennan sérkennilega kirkjugest. Allt frá því að þjóðsagnaútgáfa hófst snemma á 19. öld, hafa listamenn sótt í þær ómældan efnivið í ljóð, leikrit, söngleiki, listdansa og málverk og á síðustu áratugum hafa þjóðsögur og ævintýri reynzt kvik- myndamönnum ótæmandi námur. Ur ævin- týrum hefur Walt Disney skapað mörg sí- gild listaverk, sem heimsbyggðin dáir. Við Islendingar eigum okkur gríðarmikinn þjóðsagnaauð, og íslenzkir listamenn hafa ávaxtað hann að nokkru, en munu gera það betur síðar. Myndir Ásgríms Jónssonar, Hvarf séra Odds eftir Einar Benediktsson og Gullna hliðið eftir Davíð eru fyrirheit um það, sem koma mun. Menn munu aldrei skynja fegurðina til fulls eftir stærðfræði- legum formúlum og mannlífið eftir hand- bókum í heimspeki og sálarfræði. Raun- sæisstefnur í listum koma og hverfa, en rómantíkin blífur ásamt þjóðsögunni. Stað- reyndir greina, að grjót sé í klettum, fóður í grasi og H2O í vatni, en þessi fyrirbrigði náttúrunnar búa einnig yfir fegurð og afli. Þjóðsagan birtir heimsskoðun og náttúru- viðhorf barnsins, mannsins, sem er óspillt- ur af skilningslitlum lærdómi og hálf- menntun. í henni birtist oft hinn tærasti skáldskapur og hið dýpsta raunsæi. AUt, sem vel er unnið, kallar á framhald. Bókaútgáfan Þjóðsaga hefur leyst gott verk af höndum, og nú verður að halda áfram á sömu braut og gefa út önnur íslenzk þjóð- sagnasöfn á svipaðan hátt. Eg vildi, að ein hreyting yrði gerð á framhaldsútgáfu þjóð- sagna hér á landi. Það getur verið réttlæt- anlegt, að fylgja efnisskipan Jóns Árnason- ar í þessari útgáfu, skipa sögunum í flokka á sama hátt og hann gerði. Sú efnisskipan er þó ekki svo fræðileg sem skyldi. Betra væri að flokka sögurnar eftir minnum, þeim efnisatriðum, sem einkenna þær. Hafnarfirði, 3. maí 1962. Björn Þorsteinsson. Friðjón Stefánsson: í ljósaskiptum Stuttar sögur. Bókaútgáfa Menningarsjóðs, Reykjavík 1961. etta eru sögur andlegra átaka, með vissum hætti baráttusögur, og þó ekki í þeim skilningi að átökin eigi sér einkan- lega stað í nútímanum, á meðan myndinni er brugðið upp; þær skírskota nefnilega flestar til einhvers sem gerzt hefur áður fyr, stundum endur fyrir löngu. í sjálfu sér er slíkt hvorki kostur né galli. En það útheimtir e. t. v. þeim mun meiri kunnáttu og smekk í meðferð málsins sem erfiðara er að fara höndum um upprifjun án þess stíllinn verði flatneskjulegur, jafn- vel málfræðilega rangur. Við lestur sagna eins og þeirra sem hér um ræðir verður manni að spyrja sem svo: Hvaða tök kann höf. t. d. á háttum og tíðum sagnorða? Ifvernig beitir hann þessu í frásögn sinni og stfl? Og undir svarinu er það að miklu leyti komið hvort manni falla sögurnar í geð. 191
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.