Tímarit Máls og menningar - 01.12.1963, Síða 68
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR
röddun, tónstyrkur, bygging); 2)
kunnátta í nótnalestri og nótnaskrift;
3) fræðsla um mannsrödd, hljóðfæri,
hljómsveit; 4) yfirlit yfir líf og starf
mikilla klassískra og nokkurra so-
vétskra tónskálda og skilningur á
þjóðlagi og alþýðumúsík. — Eftir
fyrstu fjóra ársfjórðunga eru börn
komin svo langt að þau syngja í C-dúr
þekkt lög með nótnanöfnum; á 3. ári
skólavistar eru kennd tónbil, fjarlægð
milli tóna, sem öll lög byggjast á og
allur söngur frá blaði (prima-vista-
söngur), sem er fulllærður eftir 5 ára
skólagöngu.
Allt músíkuppeldi í sovétskum
skólum hlýtur hvatningu frá ummæl-
um Tsjaikovskís: „Mér virðist, að
listhrifning sú sem menn verða fyrir
á æskuárum, skilji eftir spor sín alla
ævi og sé einnig á efri árum mikil-
vægur prófsteinn á það, hvernig við
með samanburði metum listaverk.“ Á
sjötta skólaári eiga börnin því að
kynnast verkum eftir Borodin, Tsjai-
kovskí, Glinka, Bizet o. fl. Yfirleitt er
meginreglan sú að örva námslöngun
barnanna, að lœra er Ijós, að lœra
ekki er myrkur. Eftir þennan tíma
kemur fram, hver er gæddur beztri
rödd, næmastri tónheyrn og örugg-
astri takttilfinningu. Kennarinn er þá
oft ráðunautur foreldra um fram-
haldsmenntun.
Áhugasamir nemendur sækja mús-
íkskóla fyrir börn, hér eru skóla-
gjöld miðuð við tekjur foreldra.
Námstími er 7 ár fyrir fiðlu og píanó,
styttri fyrir önnur hljóðfæri; hér
byrja börn 6—7 ára gömul. Fyrir sér-
stök hæfileikabörn eru æðri músík-
skólar í stærstu borgum með 11 ára
námstíma eins og t. d. Kórsöngsskól-
inn í Moskvu með mjög ströngum
inntökuskilyrðum. í venjulegum mús-
íkskóla verður fiðlunemandi á sj ö ár-
um að sækja 470 stundir í sérfagi
sínu, fiðluleik, auk þess 140 stundir
í kórsöng, 270 stundir í hlj ómsveitar-
leik, 100 stundir í skyldunámsgrein
píanóleik, 370 stundir í heyrnarþj álf-
un og tónritun, 70 stundir í tónfræði
og 100 stundir í bókmenntakynn-
ingu; það eru alls 1150 stundir.
Ekki leggja allir þeir fyrir sig mús-
ík sem atvinnu, er þennan byrjunar-
skóla sækja. Sumir snúa sér að verk-
legri vinnu eða háskólanámi, en þeir
hafa öðlazt dýrmætt veganesti sem
tómstundamúsíkantar og góðir hlust-
endur. Þeir beztu eru teknir í músík-
fagskóla. Hér hverfa skólagjöld og
sérhver nemandi fær námsstyrk.
Námstími er hér 4 ár; og hér öðlast
menntun kennarar í barnamúsikskól-
um, músíkantar fyrir kóra og hljóm-
sveitir, kórstjórar og stjórnendur
músikflokka. Teknir eru nemendur á
aldrinum 15—30 ára. Allir verða að
taka þátt í kórsöng, og fiðlunemend-
ur og aðrir strokleikarar leika í
hljómsveit, á 3. námsári í kammer-
músík, á 4. ári í strokkvartett. — Hér
er nú enn valið úr. Beztir kraftar eru
338