Tímarit Máls og menningar - 01.12.1963, Blaðsíða 16
JAMES BOGGS
Bandarísk bylting
(Margir trúa því statt og stöðugt að sagan muni aldrei kunna að greina frá annarri bylt-
ingu í Norður-Ameríku en þeirri sent átti sér þar stað á 18. öld og lauk fyrir 180 árum.
í ritgerð þeirri sem hér verða birtir úr nokkrir kaflar er þó haft fyrir satt að ekki einusinni
Bandaríki Norður-Ameríku sjálf séu óhult fyrir þeirri byltingu sem nú fer loga um æ
stærri hluta heimsins. Ritgerðin, sem er alls um 90 blaðsíður, birtist í júlí-ágúst hefti tíma-
ritsins Monthly Review, og töldu ritstjóramir hana þess virði að helga henni allt það hefti.
Höfundurinn er hálffimmtugur svertingi, fæddur í Suðurríkjunum, en hefur í meira en
tuttugu ár verið verkamaður í bílaverksmiðjum Detroit-borgar. Ritgerðin er lýsing á þjóð-
félagsástandinu í Bandaríkjunum um þessar mundir og skilgreining á þeim andstæðum
sem verða æ óleysanlegri að óbreyttu þjóðskipulagi, og munu að lokum verða að kveikju
hyltingar. Þær mótsagnir sem höfundur leggur mesta áherzlu á í því sambandi eru sprottn-
ar af hinni nýju framleiðslutækni, sjálfvirkninni, hnignandi heimsveldisstöðu, efnahags-
stjórn sem hefur stríðsrekstur að undirstöðu, og síðast en ekki sízt: af „negravandamál-
inu“.
Menn þurfa ekki að vera sammála Boggs í öllum atriðum til þess að viðurkenna skarp-
leik athugana hans; ritstjórar Monthly Review gera til dæmis fyrirvara um sumar þær nið-
urstöður sem hann dregur af aukinni sjálfvirkni bandarískrar framleiðslu. Tímarit Máls
og menningar birtir þessa kafla úr Bandarískri byltingu vegna þess að oss íslendingum
er mikil þörf á fræðslu um hið raunverulega þjóðfélagsástand í því ríki sem hefur, beint
og óbeint, meiri áhrif á þjóðlíf vort en nokkurt annað ríki í heiminum. í þeim tveim fyrstu
köflum ritgerðarinnar sem birtast í þessu hefti á sérstakt erindi til vor hin fróðlega frá-
sögn af verkalýðspólitík í Bandaríkjunum, vegna þess að um þessar mundir neyta íslenzkir
atvinnurekendur og aðstoðarmenn þeirra allra bragða til að koma hér á skipun svipaðri
þeirri sem tíðkast í þessum málum þar vestra. Til þess eru vítin að varast þau.
í næsta hefti verða birtir tveir síðustu kaflar ritgerðarinnar: um svertingja í Bandaríkj-
unum, og niðurstöður höfundar um þá bandarísku byltingu sem í vændum er. — S. D.)
Viðgancjur og hnignun
verkalýðssambandanna
UNDANFÖRNUM tuttugu árum hef-
ur átt sér stað' í Bandaríkjunum
iðnbylting, hraðstígari en í nokkru
öðru landi, og samfara henni hefur
orðið gagngerari breyting á stétta-
skiptingunni í landinu en nokkurn
hafði áður dreymt um. Svo hraðstíg
hefur þessi iðnbylting verið, að 60 af
hundraði af þeim starfsgreinum, sem
nú eru við lýði, voru ekki einu sinni
til í fyrri heimsstyrjöld, og 70 af
hundraði þeirra starfsgreina, sem
voru við lýði um aldamótin, eru nú
286