Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1963, Side 81

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1963, Side 81
VERDI, SHAKESPEARE OG „MACBETH** Sá Macbeth, sem vér heyrum fluttan nú á dögum, er eins og fyrr segir allfrábrugð- inn þeim, sem kom fyrst fram árið 1847. Ballettmúsíkin, sem Verdi varð að fella inn í óperuna fyrir flutning hennar í París, skiptir engu sérstöku máli í þessu sam- bandi, — það eru hinar yfirgripsmiklu breytingar, sem skilja á milli gerðarinnar frá 1865 og frumútgáfunnar. Þriðji þáttur var næstum nýr í heild sinni, en þyngdar- punktur hans er hið mikilfenglega atriði, þar sem nomirnar særa fram að beiðni Macbeths anda þá, sem eiga að segja hon- um fyrir forlög hans. Þar er sérlega frum- legur leiðsöguþáttur hljómsveitarinnar við opinberun konunganna átta, — en hann er fluttur af fámennum hópi blásara, sem stað- settir eru sér í lagi undir sviðinu, og ltljóð- færaskipun er mjög sérkennileg: tvö óbó, sex a-klarinettur, tvö fagott og eitt kontra- fagott. „Þessi litla blásaraliljómsveit,“ skrifar Verdi Escudier, „leiðir fram ein- kennilegan, dulkynjaðan og næstum óvirki- legan hljómlíkama, sem engin önnur hljóð- færi myndu geta líkt eftir.“ Og þessi fagra, leyndardómsfulla tónlist virðist líka eins og komin frá öðrum heimi. — Kóramir tveir í 4. þætti voru líka nýir, og orrustuatriðið, sem Verdi hafði mjög hnyttilega valið fúguform. Nú bar dauða Macbeths að ut- an sviðs, þótt andlátsatriðinu frá 1847 hafi aftur verið bætt inn í við flutning síðar, en um það val má deila. Tveir fyrstu þætt- irnir voru líka í ýmsum atriðum endurskoð- aðir. Mynd Bankós var dregin skarpari tón- dráttum, og Lady Macbeth hafði bætzt ný aría í 2. þætti. Það þarf ekki að fara í grafgötur um, að útgáfunni frá 1847 hafi verið stórlega áfátt. Hversu stórt skref sem Verdi annars steig með Macbeth, gat hann ekki losað sig um- svifalaust með öllu undan því valdi, sem stíll hans fram að þeim tíma hlaut að hafa yfir honum, — og hann hefur haft gildar ástæður til að vera óánægður með þann Macbeth, sem hann tók til endurskoðunar 1864. Tókst honum þá líka að ráða bót á því, sem miður fór? má spyrja. Að hve miklu leyti samsvaraði hin nýja ópera þeim hugmyndum um músíkdramatískt mót, sem komu í ljós í vaxandi mæli í verkum hans frá árinu 1851. Því verður ekki neitað, að enn er ýmis- legt athugavert. í fyrsta lagi eru ýms atriði átakanlega „gamaldags" — í hreinni mót- sögn við áðurnefnt grundvallarlögmál um samræmi á milli tjáningarforms og efnis. Þetta á sérstaklega við um þær tvær aríur, sem Lady Macbeth syngur í 1. þætti og eru raddfimleikaþrautir og ekkert annað. Eink- um er það 2. arían — við textann „Rísið nú upp, allir Satans sinnar" — sem keraur skelfing fáránlega fyrir, svo sveipandi glæsileg sem hún er, þar sem hún stendur ekki í neinu sambandi við hið glæpsamlega ákall, sem hún flytur. Endirinn er eins og eftir Rossini — og það er næstum það versta, sem unnt er að hugsa sér á þessum stað. Aría Macbeths fyrir bardagann í síð- asta þætti er líka veik, í fyllsta máta hefð- bundin rómansa að formi til, sem dregur í væmni sinni úr dramatískum áhrifum verks- ins. — í annan stað hefur allvíða mis- heppnazt að tcngja eðlilega saman hin ýmsu atriði. í Macbeth fer fram greinilegt uppgjör við gamla óperustílinn, þar sem eitt „númerið“ tekur við af öðru, unz á- kveðinni tölu er náð, þ. e. a. s. aríur, ka- vatínur o. s. frv. (venjulega með formáls- tóni (recitativi)), — en tengslin á milli þessara einstöku númera, sem öll athyglin beindist að, voru afar lausleg. Eftir því sem músíkdramað þróaðist, varð það æ algeng- ara, að ákveðin atriði væru saman sett sem ein heild, en ekki keðjur af „númerum" — tóni + aríu. Aríukenndar tónaraðir og tjáningarfullt „parlando" (söngtal), sem beitt var af mýkt og fimi, sameinuðust þar í æðri einingu, — eins og Verdi heppnaðist til fullnustu í Othello og Falstaff. Macbeth 351

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.