Tímarit Máls og menningar - 01.04.1967, Blaðsíða 71
stökum lögum áriÖ 1940, var friðlýst
sem friðland samkvæmtnáttúruvernd-
arlögunum árið 1960. Hverirnir og
hveramyndanirnar á Hveravöllum
voru friðlýstar sem náttúruvætti 1960.
Grábrókargígur í Norðurárdal var
friðlýstur sem náttúruvætti árið 1961.
Illuti Rauðhólasvæðis í lögsagnarum-
dæmi Reykjavíkur var einnig frið-
lýstur sem náttúruvætti hið sama ár.
Og árið 1965 var Surtsey friðlýst
sem friðland. Fyrir sex árum sam-
þykkti náttúruverndarráð að stefna
að því að jörðin Skaftafell í Öræfum
skyldi friðlýst sem þjóðvangur, en
það var ekki fyrr en á síðastliðnu ári,
að tekizt hafði að afla nægilegs fjár
til kaupa á jörðinni og samkomulag
hafði að fullu náðzt við eigendur um
kaupin. Hluti fjárins var veittur á
fjárlögum en hinn hlutann veitti al-
þjóðlegur sjóður, World Wildlife
Fund, sem m. a. hefur það markmið
að stuðla að stofnun slíkra þjóð-
garða víða um heim, og er féð úr
sjóðnum veitt með því skilyrði einu,
að Skaftafell verði friðlýst, íslenzka
ríkið verður eigandi þess. Eftir er
því aðeins að ganga formlega frá
friðlýsingu Skaftafells og verður það
gert nú í vor. A síðastliðnu ári sam-
þykkti náttúruverndarráð einnig að
friðlýsa 25 plöntutegundir þar sem
þær vaxa villtar hér á landi, en allar
þessar tegundir eru sjaldgæfar og
sumar aðeins til á einum stað á land-
inu, að því er menn bezt vita. Slíkar
Náttúruvernd á Islandi
friðlýsingar tegunda eru að vísu allt-
af tvíeggjað sverð, því vera má að
frekar sé sótzt eftir tegundunum fyrir
bragðið, en þó verður að treysta því,
að Islendingar séu ekki það skilnings-
sljóir á gildi þessara sjaldgæfu teg-
unda, að þeir rífi þær upp til að
þurrka eða flytja í garða sína, og út-
rými þeim um leið á hinum náttúr-
legu vaxtarstöðum. Tilkynning um
þessa friðlýsingu verður birt með
vorinu og öðlast hún þá gildi og
verða þá nöfn tegundanna birt.
Náttúruverndarráð hefur einnig
haft til athugunar og rætt um mögu-
leika á því að friðlýsa fleiri staða,
t. d. Búðahraun á Snæfellsnesi, Hell-
isey, gljúfur Jökulsár á Fjöllum frá
Dettifossi og niður úr, Rauðamels-
ölkeldu og Þjórsárver.
Stærsta málið, sem náttúruverndar-
ráð hefur fengið til umsagnar, er tví-
mælalaust bygging og rekstur kísil-
gúrverksmiðju við Mývatn. Vorið
1964 setti Alþingi lög um kísilgúr-
verksmiðju við Mývatn, án þess að
nokkurs álits væri leitað áður hjá
náttúruverndarráði um það, hvort
hinni sérkennilegu náttúru Mývatns-
sveitar myndi stafa hætla af slíkri
verksmiðju. Stjórn Kísiliðjunnar hf.,
þ. e. hlutafélags þess sem reisa og
reka skyldi þessa verksmiðju, leitaði
aftur á móti álits ráðsins á hinum
fyrirhuguðu framkvæmdum og hefur
náttúruverndarráð lagt á það ríka
áherzlu, að ýtrustu varkárni skyldi
61