Tímarit Máls og menningar - 01.04.1967, Síða 72
Tímarit Máls og menningar
gætt við framkvæmdir og ýmsar var-
úðarráðstafanir gerðar til þess að
koma í veg fyrir að olía og úrgangur
geti á nokkurn hátt borizt í vatnið
og valdið þar tjóni. Auðvitað verður
ekki hjá því komizt, að Reykjahliðar-
svæðið, þar sem verksmiðjan er reist,
breyti eitthvað um svip og þá fyrst
og fremst vegna þeirrar miklu aukn-
ingar, sem verður á byggðinni þar.
En verksmiðjuþorpið er staðsett þó
nokkuð frá vatninu og því ekki yfir-
vofandi hætta á að vatnið sjálft og
líf í því spillist, ef þess er vandlega
gætt, að enginn úrgangur frá þorpinu
lendi út í vatnið. I þessum efnum
hefur stjórn verksmiðjunnar verið
mjög skilningsgóð og samvinnuþýð
og fallizt á, að allar hugsanlegar var-
úðarráðstafanir verði gerðar til að
vernda líf í og við Mývatn.
Það eru því miður ekki allir, sem
hafa gætt þess jafn vel að fylgja því
ákvæði náttúruverndarlaganna sem
segir, að skylt sé að leita álits nátt-
úruverndarráðs, áður en hafizt er
handa við mannvirkjagerð eða jarð-
rask utan kaupstaða og kauptúna,
sem hætta sé á, að breyti svip sér-
kennilegs landslags eða spilli merk-
um náttúruminjum. Við fyrirhugaðar
vegalagningar er t. d. sjaldnast tekið
tillit til náttúruverndarsjónarmiða
eða álits leitað, og við framkvæmd
vegalagninga er landi oft spillt fer-
lega að þarflausu.
Umgengni fólks úti í náttúrunni er
því miður einnig mjög oft ábótavant,
þó heldur miði í rétta átt í þeim efn-
um, að flestra manna dómi, eftir því
sem skilningur á gildi þessara mála
eykst. Náttúruverndarráð hefði ef til
vill átt að beita sér meira fyrir fræðslu
um náttúruverndarmál, þó engin á-
kvæði séu um það í náttúruverndar-
lögunum, en segja má að öll náttúru-
verndarstarfsemi byggist á skilningi
almennings og ráðamanna á nauðsyn
hennar, enda hefur víða erlendis ver-
ið lögð mikil áherzla á slíka út-
breiðslustarfsemi. Náttúruverndarráð
hefur reyndar skort hæði fé og starfs-
lið til slíkrar fræðslustarfsemi, en all-
ir meðlimir ráðsins vinna þau störf,
sem þar eru unnin, í aukavinnu. Hvað
snertir fræðslu um þessi efni í skól-
um, þá er ákvæði um það í námsskrá
fyrir nemendur á fræðsluskyldualdri,
að kynna skuli nemendum lög og regl-
ur, sem í gildi séu um náttúruvernd.
Mér er mjög til efs, að þetta sé al-
mennt gert við náttúrufræðikennslu,
þrátt fyrir þetta ákvæði, enda ekki
mikið á þessi mál minnzt í kennslu-
hókum í náttúrufræði, en úr því er
brýn nauðsyn að bæta.
I lögum um náttúruvernd er á-
kvæði um að ríkisstjórninni sé heim-
ilt að gera ráðstafanir til þess, að
lsland gerizt aðili að alþjóða nátt-
úruverndarsambandinu, en ekki hef-
ur það verið gert ennþá. Aftur á móti
er Island aðili að alþjóða fuglafrið-
unarsambandinu og hefur tekið þátt
62